Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 32

Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 32
MARKAÐURINN 23. ÁGÚST 2006 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R G E N G I S Þ R Ó U N Vika Frá áramótum Actavis 1% 30% Alfesca 4% 9% Atlantic Petroleum 0% 29% Atorka Group 3% -7% Avion Group 4% -26% Bakkavör 2% 2% Dagsbrún -7% -16% FL Group 14% -9% Glitnir 6% 9% KB banki 11% 5% Landsbankinn 9% -8% Marel -1% 24% Mosaic Fashions 1% -9% Straumur -1% -1% Össur 4% 4% Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn Stjórn Marels hefur fengið heim- ild til að hækka hlutafé félagsins vegna kaupa á Scanvægt. Einnig fær hún heimild til að selja sex- tíu milljónir hluta til hluthafa og annarra fjárfesta, þar af helming til fagfjárfesta eins og lífeyris- sjóða og erlendra aðila. Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marels, segir að það sé mikilvægt að breikka og stækka hluthafahópinn og horfir í því sambandi einkum til íslenskra lífeyrissjóða sem hefur vantað í hluthafahóp Marels. „Það væri mjög gott að fá þá inn í hluthafahóp Marels. Þeir hafa styrk og kraft til enn meiri verkefna.“ Árni Oddur nefnir einnig að mikill áhugi sé fyrir því að bjóða erlendum fagfjárestum að hlutabréf í félaginu. Lífeyrissjóðir eiga í dag um 3-4 prósent í Marel en ef áætlun stjórnenda gengur eftir myndi hlutdeild sjóðanna fara í um það bil tíu prósent. - eþa VILJA FÁ FAGFJÁRFESTA Árni Oddur Þórðarson stjórnarformaður og for- stjórinn Hörður Arnarson spjalla saman fyrir hluthafafund. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vilja fá lífeyrissjóði í hóp eigenda Úrvalsvísitala Kaup- hallarinnar hækkaði um tæp sjö prósent síðastliðna viku og stendur í rúmum 5.800 stigum. Bréf ell- efu félaga af fimmt- án hafa hækkað. Vísitalan hefur ekki verið hærri síðan snemma í júní á þessu ári og hefur nú hækkað um tæp fjögur prósent frá áramótum. Segja má að bankarnir hafi leitt hækkanirnar, enda vega þeir þungt í úrvalsvísitölunni; bréf í KB banka og Landsbankanum hafa hækkað um tólf prósent en bréf í Glitni um rúm sjö. Bréf í FL Group hafa þó hækkað allra mest, um rétt tæp þrett- án prósent. Þá hafa bréf í Flögu hækkað um tæp ellefu pró- sent. Bréf þriggja félaga lækkuðu und- anfarna viku; rúm- lega fimm prósenta lækkun hefur orðið á bréfum Dagsbrúnar, Straumur-Burðarás hefur lækkað um 0,6 prósent og Actavis um 0,2 prósent. Bréf héldu áfram að hækka í Kauphöllinni í gær og hafði úrvalsvísitalan hækkað um tæpt prósent um hádegisbilið. -jsk Hlutabréfamarkaður tekur við sér Bankarnir leiða hækkanir undanfarinnar viku í Kauphöllinni. FL Group hækkar félaga mest. KÁTT Í KAUPHÖLLINNI Úrvals- vísitala Kauphallarinnar hefur hækkað um tæp sjö prósent undanfarna viku. Norðmaðurinn Finn Thaulow tekur innan skamms við stjórnar- formennsku í sænska lággjalda- flugfélaginu FlyMe af Björn Olegård, sem mun sitja áfram í stjórn, að því gefnu að hluthafar samþykki þessa tilnefningu. Thaulow er gamall jaxl úr flug- heiminum en hann starfaði um þrjátíu ára skeið hjá SAS Group. Í lok þessa mánaðar mun stjórn FlyMe óska eftir því að hún fái heimild til að selja nýtt hlutafé fyrir tæpa þrettán millj- arða króna til þess að standa straum af yfirtökum. - eþa Reynslubolti í brú FlyMe Afkoma Kauphallar Íslands á fyrri helmingi ársins var tæplega níu sinnum betri en rekstraráætlan- ir í upphafi árs gerðu ráð fyrir. Hagnaður Kauphallarinnar nam alls 173 milljónum króna en stjórn- endur bjuggust við um tuttugu milljóna króna hagnaði. Kauphöllin er í eigu Eignar- haldsfélagsins Verðbréfaþings sem er í eigu banka, Seðlabankans og fleiri aðila. Frávikið skýrist af meiri veltu skráðra verðbréfa, auk þess sem hreinar fjármunatekjur voru meiri en reiknað var með. - eþa Nífalt betri en áætlað var Jón Skaftason skrifar Velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman um sextíu og fimm prósent á átta mánuðum. Veltan nam tæpum 2,2 milljörðum króna vikuna 11. til 17. júní en var rúmlega 6,1 milljarður vikuna 9. til 15. desember 2005. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,7 prósent í júlí síðastliðnum samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins. Verð á sérbýli hefur hækkað mest. Björn Rúnar Guðmundsson, sérfræðingur grein- ingardeildar Landsbankans, segir þessa þróun ekki koma á óvart. Fram séu komin fyrstu skýru merkin um verðlækkanir á fasteignamarkaði. „Við eigum von á því að þessi þróun haldi áfram. Það verða nokkrar lækkanir, þótt ekkert hrun sé í spilunum.“ Hann segist eiga von á samdrætti bæði eftir- spurnar og framboðs sem valdi því að smám saman dofnar yfir markaðnum. „Kaupsamningum hefur fækkað snarpt að undanförnu. Bæði er minna fram- boð af notuðu húsnæði auk þess sem eftirspurn er minni. Ég á jafnvel von á því að framboð nýbygg- inga dragist saman í kjölfarið.“ Á vef greiningardeildar Glitnis kemur fram að mikill þrýstingur sé til lækkunar íbúðaverðs um þessar mundir. Vaxtahækkanir, meiri fjár- magnskostnaður auk minni kaupmáttar neytenda hafi dregið úr eftirspurn á íbúðamarkaði. Þá hafi framboð á nýbyggingum aukist talsvert á sama tíma. Greiningardeild Glitnis reiknar með fimm til tíu prósenta lækkun á nafnverði íbúðaverðs næstu tvö árin. Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, segir sína tilfinningu að verð á leiguhúsnæði hafi hækkað um tuttugu til þrjátíu prósent síðan í vor. Hann segir eftirspurn eftir leiguhúsnæði jafnframt hafa aukist og að erfiðara sé fyrir leigjendur að finna húsnæði en áður. „Þetta er ekki lengur leigjendamarkaður. Verðið hefur hækkað talsvert eftir að aðgangur að fjármagni til húsnæðiskaupa varð erfiðari.“ Sigurður telur þó mikilvægt að leigjendur taki ekki mark á tröllasögum sem ganga um verð á leiguhúsnæði. „Fjölmiðlar eiga það til að blása upp undantekningartilvik um gríðarháa leigu. Þannig verða til tröllasögur sem valda jafnvel verðhækk- unum á endanum.“ Skýr merki um lækkun íbúðaverðs Fyrstu merki um verðlækkanir á fasteignamarkaði eru komin fram. Eftirspurn hefur aukist eftir leiguhúsnæði. Leiga hefur hækkað um fjórðung frá því í vor. 101 SKUGGAHVERFI Fasteignaverð lækkaði um 1,7 prósent í júlí. Sérfræðingur segir fyrstu skýru merkin um verðlækkanir á fasteigna- markaði komin fram. Töluverðar sveiflur hafa verið á tryggingaálagi á fimm ára skuldabréf viðskiptabankanna (CDS) undanfarna daga eftir að það lækkaði nokkuð hratt í byrj- un mánaðarins og má ráða að þær hækkanir sem hafa orðið á hlutabréfamarkaði á liðnum dögum skýrist ekki af þróun tryggingaálags. Jóhann Ottó Wathne, sérfræð- ingur í alþjóðlegri fjármögnun hjá Glitni banka, segir að það hafi heldur hækkað ef eitthvað er. Tryggingaálagið er nú um 55 punktar fyrir skuldabréf Glitnis, 65 fyrir Landsbanka og um 71 fyrir KB banka. Jóhann segir að það sé erfitt að spá um framhaldið en auðvit- að voni menn að álagið gefi eftir, enda hefur það verið notað sem viðmið við útgáfu nýrra skulda- bréfa bankanna. „Þetta er tölu- vert hærra álag en á sama tíma í fyrra og hefur það hækkað um þrjátíu til fimmtíu punkta, mis- munandi eftir bönkum.“ - eþa Sveiflur eru á trygg- ingaálagi skuldabréfa

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.