Fréttablaðið - 23.08.2006, Síða 40
MARKAÐURINN 23. ÁGÚST 2006 MIÐVIKUDAGUR10
Ú T T E K T
T I L K Y N N I N G
K A U P H A L L A R I N N A R
U M V I Ð R Æ Ð U R
V I Ð O M X
Í byrjun ágústmánaðar sendi
Kauphöll Íslands frá sér tilkynn-
ingu um að Kauphöllin og OMX,
sem á og rekur kauphallirnar í
Stokkhólmi, Helsinki, Kaup-
mannahöfn og Eystrasalts-
ríkjunum, hafi hafið viðræður um
nánara samstarf. „Viðræðurnar
eru á frumstigi. Kauphöllin og
OMX eiga nú þegar með sér
samstarf um ýmsa þætti við-
skiptaumhverfis kauphallanna“
segir þar og
tekið er fram að
viðræðurnar
nú snúist um
hvernig kaup-
hallirnar gætu
aukið sam-
starfið til
hagsbóta
fyrir skráð
félög,
markaðs-
aðila og
fjárfesta.
Í viðskiptalífinu hækka sífellt þær raddir
sem telja krónuna einn helsta þröskuldinn í
vegi þess að erlendir fjárfestar sýni íslensk-
um fyrirtækjum áhuga. Stór íslensk fyrirtæki
sem hafa bæði tekjur og skuldir í erlendri
mynt horfa nú til þess að skrá hlutabréf sín
í evrum, eða jafnvel bandaríkjadölum og
tengja það viðræðum sem Kauphöll Íslands
á við um samstarf, eða jafnvel sameiningu
við OMX-kauphöllina, en það er samstarfs-
vettvangur kauphalla á Norðurlöndunum og
Eystrasaltsríkja. Þórður Friðjónsson segir
Kauphöll Íslands gjarnan vilja vera „fjöl-
myntarkauphöll“ og segist bíða þess að fyr-
irtæki fari fram á það. Tæknilegar hindranir
virðast þó vera í vegi þess að hægt sé að
fara þá leið, sér í lagi að lokauppgjör hvers
viðskiptadags kauphallar þarf að fara fram
í landi gjaldmiðilsins sem notaður er í við-
skiptum með hlutabréfin. Hér fer lokaupp-
gjör í gegnum reikninga Seðlabanka Íslands
og í evrulöndum sér Seðlabanki Evrópu um
uppgjörið.
Í lok síðustu viku ræddi Árni Oddur
Þórðarson, stjórnarformaður Marels, smæð
Kauphallarinnar og evruskráningu hluta-
bréfa á hluthafafundi í fyrirtæki sínu. Hann
skorar á Kauphöll Íslands og OMX-kauphöll-
ina að ljúka yfirstandandi viðræðum sínum
með fullum samruna. Verði af honum íhugar
fyrirtækið að breyta skráningu hlutabréfa
sinna úr krónum í evrur, en hann segir liggja
beinast við að fyrirtæki sem fara vilji þessa
leið taki upp evruna, enda yrði óhentugt að
vera með mjög marga gjaldmiðla í gangi í
Kauphöllinni. „Þarna eru félög á borð við
Actavis, Bakkavör, Marel og Össur og senni-
lega bankarnir líka, sem eru með verulegan
hluta tekna sinna í erlendri mynt,“ segir Árni
Oddur.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, telur
einnig að sameining Kauphallarinnar og
OMX sé nauðsynleg. „Ef ekki verður af henni
hleypur bara þróunin frá íslenska hlutabréfa-
markaðnum,“ segir hann og kveðst einnig líta
á skráningu hlutabréfa fyrirtækis síns sem
rökrétt skref. „Við verðum vör við mikinn
áhuga fjárfesta á Össurarbréfum, enda er
tæpur helmingur bréfa fyrirtækisins í hönd-
um erlendra fjárfesta,“ segir hann, en telur
að krónan fæli erlenda fjárfesta frá.
Halldór Kristmannsson, forstöðumaður
innri og ytri samskipta Actavis, segir að þar
á bæ hafi menn mikinn áhuga á skráningu
bréfa félagsins í annarri mynt en krónunni,
en áréttar að eigi að ýta undir erlendar fjár-
festingar þurfi að koma til fleiri breytingar
í starfi Kauphallarinnar. „Við höfum aðeins
rætt þetta við Kauphöllina, en eins og ég skil
þetta strandar ekki á Kauphöllinni heldur
fremur á sjálfri Verðbréfaskráningunni
og þá hvernig fram
fer upp-
gjör milli króna og evra. Þetta skilst mér að
sé ekki búið að leysa. En þetta myndi vissu-
lega einfalda málið,“ segir hann og segir
félagið finna fyrir miklum áhuga hjá erlend-
um fjárfestum, en sérkenni markaðarins
hér og krónan virðist vera þeim töluverð-
ur þröskuldur. „Óvissa í kring um krónuna
hefur áhrif og svo þurfa erlendir aðilar alla
jafna að fara í gegnum íslenska banka til
að eiga viðskipti í Kauphöllinni hér, eða
smærri óþekktari banka í útlöndum.“ Hann
segist hafa unnið að því um skeið að fá til liðs
fleiri kauphallaraðila og telur líklegt að stór
alþjóðlegur banki bætist í hópinn á næstu
misserum. „Ég nefni hann kannski ekki strax,
en við erum í samstarfi við hann og hann
mun jafnframt taka upp greiningu á Actavis,
sem væri þá í fyrsta skipti sem erlendur
banki gerði það. Enn hefur ekkert íslenskt
fyrirtæki fengið erlenda greiningaraðila og
það held ég að menn þurfi að sjá hér. Til þess
að laða að erlenda fjárfesta þarf markaður-
inn að fá ákveðinn gæðastimpil úti og það
fæst þegar erlendir greiningaraðilar fara
að meta fyrirtækin og stærri fjárfestingar-
sjóðir koma inn í þessi félög.“ Halldór segir
samruna Kauphallarinnar og OMX ágætan
út af fyrir sig þótt það myndi kannski ekki
breyta svo miklu fyrir Actavis, þar sem
helstu markaðir félagsins væru í Bretlandi
og Bandaríkjunum. „Við höfum ekki verið
að markaðssetja okkur sérstaklega gagnvart
fjárfestum á Norðurlöndunum, en evran gæti
verið mjög jákvætt skref.“
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, bendir
á að Kauphöllin hafi
í byrjun mán-
a ð a r i n s
sent
Fyrirtæki hugleiða að kasta krónunni
Stór fyrirtæki vilja fá að skrá hlutabréf sín í erlendri mynt og telja að þar með yrði rutt úr vegi einni af þeim hindrunum
sem erlendir fjárfestar horfa til. Einnig er hvatt til sameiningar Kauphallar Íslands og OMX-kauphallarinnar. Óli Kristján
Ármannsson kynnti sér vangaveltur um krónuna í viðskiptalífinu og víðar. Í haust verða mál gjaldmiðilsins einnig rædd á
ársfundi Alþýðusambands Íslands, þar sem menn hafa velt fyrir sér launagreiðslum í evrum.