Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 60
23. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér til hliðar má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
RIVER PHOENIX
FÆDDIST ÞENNAN DAG 1970
„Ég vil ekki deyja í bílslysi.
Dagurinn sem ég dey
verður stórkostlegur.“
Glæstur leikferill Rivers Phoenix fékk
sviplegan endi þegar hann lést af
ofneyslu eiturlyfja.
MERKISATBURÐIR
1821 Mexíkó fær sjálfstæði frá
Spáni.
1921 Faisal I er krýndur konungur
Íraks.
1954 Steinkista Páls Jónssonar
biskups finnst við uppgröft
í Skálholti en Páll lést árið
1211.
1967 Danska knattspyrnulands-
liðið vinnur það íslenska
með fjórtán mörkum gegn
tveimur í Kaupmannahöfn.
1990 Armenía lýsir yfir sjálfstæði
frá Sovétríkjunum.
1990 Vestur- og Austur-Þýska-
land tilkynna að ríkin verði
sameinuð 3. október.
1992 Fellibylurinn Andrew kemur
til Suður-Flórída.
Magnús Leopolds-
son fasteignasali er
60 ára.
Úlfar Eysteinsson
matreiðslumeistari er
59 ára.
Rudolph Valentino, eitt helsta kyntákn þöglu mynd-
anna, lést á þessum degi árið1926. Leikarinn var
aðeins 31 árs þegar blæðandi magasár
dró hann til dauða. Valentino var
flestum harmdauði og það bárust fréttir
af ófáum sjálfsmorðstilraunum harmi
sleginna aðdáenda hans og ástkona
hans, pólska leikkonan Pola Negir, var
sögð óhuggandi.
Aðdáendur hans hópuðust saman í
tugum þúsunda og vottuðu honum
virðingu sína við kistulagninguna í New
York. Þá komu 100.000 syrgjendur
saman fyrir utan kirkjuna þar sem
minningarathöfn var haldin um hann en jarðneskar
leifar hans voru síðan sendar með lest til Holly-
wood þar sem hann var borinn til grafar.
Valentino tókst á stuttum leikferli að festa sig í sessi
sem meiri háttar kyntákn og var alla jafna kallaður
„elskhuginn mikli“. Hann fæddist í Castellaneta á
Ítalíu árið 1895 og fluttist til Bandaríkj-
anna árið 1913. Þar vann hann fyrir sér
sem garðyrkjumaður, uppvaskari, þjónn
og fylgdarsveinn þangað til hann fór til
Hollywood. Árið 1917 brá honum fyrir
í danshlutverki í myndinni Alimony. Í
kjölfarið fylgdu nokkur smáhlutverk og
hann varð eftirsóttur í hlutverk illmenna
þar til stóra tækifærið kom árið 1921
þegar hann landaði aðalhlutverkinu í
Four Horsemen of the Apocalypse. Þar
dansaði hann tangó í eftirminnilegu
atriði sem bræddi fjölmörg kvenhjörtu um víða
veröld og gerði hann að stórstjörnu. Vinsældir hans
jukust svo jafnt og þétt með ástarsögunum The
Sheik, Blood and Sand og The Eagle.
ÞETTA GERÐIST 23. ÁGÚST 1926
Elskhuginn mikli fellur frá
ÚTFARIR
14.00 Guðlaug Sjöfn Hannes-
dóttir, Hrafnkelsstöðum,
verður jarðsungin frá
Hrunakirkju.
14.00 Logi Sigurðsson, Sólbrekku
2, Húsavík, verður jarðsung-
inn frá Húsavíkurkirkju.
15.00 Gertrud M. Sigurjónsdótt-
ir, húsmóðir, Krókahrauni
12, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju.
AFMÆLI
Hlynur Sigurðsson hefur
verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Fríhafnarinnar ehf.
og tekur við starfinu þann
fyrsta september næstkom-
andi.
Hlynur lauk meistara-
prófi í rekstrarverkfræði
frá Háskólanum í Álaborg
árið 2002 og segir hann að
námið þar hafi nýst sér
mjög vel hér á landi. Hann
hóf störf sem innkaupa-
stjóri Fríhafnarinnar árið
2003 þar sem hann hefur
verið allar götur síðan.
„Þetta leggst mjög vel í
mig,“ segir Hlynur og við-
urkennir að nýja starfið sé
ansi umfangsmikið. „Við
erum með 150 manns í starfi
og það þarf að halda utan
um það og sömuleiðis söl-
una. Svo er annað sem er á
þessum framkvæmdatím-
um, en það breytingarnar á
búðunum sem mun taka
töluverðan tíma frá öðru,“
segir hann og á þar við
stækkun brottfararverslun-
arinnar og breytingu og
flutning komuverslunarinn-
ar.
Hvað varðar áhugamál
nefnir Hlynur golfið til sög-
unnar. „Það er að verða
áhugamál þó svo að tíminn
sé vandamálið. Vinnan hefur
fyrst og fremst verið í for-
grunni undanfarin þrjú ár.“
Vonast hann til þess að golf-
ið eigi eftir að koma sterkt
inn á næstu árum.
Auk þess að starfa sem
innkaupastjóri hjá Fríhöfn-
inni hefur Hlynur hefur
starfað undanfarin tvö ár
sem afleysingakennari í
stjórnun og rekstri fyrir-
tækja við Meistaraskólann í
Reykjavík. Mun hann láta af
því starfi fyrir þessa önn og
einbeita sér að nýju fram-
kvæmdastjórastöðunni.
Hlynur, sem er 33 ára að
aldri og býr í Hafnarfirði,
er ættaður úr Hörgárdal
fyrir norðan Akureyri.
Hann er kvæntur Helgu
Völu Gunnarsdóttur félags-
fræðingi og eiga þau þrjú
börn.
Sturla Eðvarðsson, sem
verið hefur framkvæmda-
stjóri Fríhafnarinnar und-
anfarin fjögur ár, hefur
ráðið sig til starfa sem fram-
kvæmdastjóri Samkaupa.
freyr@frettabladid.is
HLYNUR SIGURÐSSON: NÝR FRAMKVÆMDASTJÓRI FRÍHAFNARINNAR EHF.
Með 150 manns í starfi
HLYNUR SIGURÐSSON Hlynur hefur störf sem framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar þann fyrsta september næstkom-
andi.MYND/ELLERT GRÉTARSSON
Okkar bestu þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Friðbjörns H. Guðmundssonar
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 11E á
Landspítalanum v. Hringbraut fyrir alúðlega umönnun og
einstaka góðvild. Einnig þökkum við sr. Karli V.
Matthíassyni og tónlistarfólki kærlega fyrir vel unnin störf.
Kristín G. Friðbjörnsdóttir Grétar Örn Magnússon
Þorvarður Friðbjörnsson Ragnhildur Sigurðardóttir
Guðmundur Friðbjörnsson Anna Margrét Kristjánsdóttir
afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, amma, langamma og langalangamma,
Regína Sveinbjarnardóttir
frá Skálabrekku í Þingvallasveit,
lést á Hrafnistu í Reykjavík að morgni 21. ágúst.
Guðrún Þóra Guðmannsdóttir
Hörður Guðmannsson
Óskar Arnar Hilmarsson Guðlaug Christensen
Guðmann Reynir Hilmarsson Hrönn Ægisdóttir
Guðmann Ólafsson Kristjana Knudsen
Jón Ólafur Ólafsson
langömmubörn og langalangömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ólöf Jónasdóttir
frá Magnússkógum,
lést á dvalarheimilinu Silfurtúni, Búðardal, aðfaranótt
laugardagsins 19. ágúst. Útförin fer fram frá
Hvammskirkju í Dölum laugardaginn 26. ágúst kl. 14.
Ingibjörg Guðmundsdóttir Magnús Pálsson
Jónas Guðmundsson Sigurbjörg Jónsdóttir
Guðbjörn Guðmundsson Jóhanna B. Jóhannsdóttir
Jensína Guðmundsdóttir Andrés P. Jónsson
Guðrún Guðmundsdóttir Helgi Þorvaldsson
barnabörn og fjölskyldur.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
bróðir,
Björn Bjarnason
Hellisgötu 25,
lést föstudaginn 4. ágúst á Sólvangi í Hafnarfirði.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Björn Björnsson Guðrún Þóra Sigurðardóttir
Stefán Björgvin Björnsson
Bjarni Gunnar Björnsson Guðrún Þórdís Ingólfsdóttir
Hólmfríður Steinunn Björnsdóttir Jose Antonio Rodriguez
Gonzalez
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Elskulegur eiginmaður minn og bróðir,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Halldór Jón Kristinsson
sem lést að dvalarheimilinu Hornbrekku Ólafsfirði,
mánudaginn 14. ágúst, verður jarðsunginn frá Ólafs-
fjarðarkirkju föstudaginn 25. ágúst kl. 14. Þeir sem vilja
minnast hans vinsamlega látið dvalarheimilið
Hornbrekku njóta þess.
Hulda Helgadóttir
Sigríður Kristinsdóttir
Anna Halldórsdóttir Svanberg Þórðarson
Bragi Halldórsson Auðbjörg Eggertsdóttir
Gunnar Halldórsson Sigurlaug Anna Sigtryggsdóttir
Svanfríður Halldórsdóttir Gunnar L. Jóhannsson
Jón Halldórsson Guðlaug Skúladóttir
og afabörnin.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Sigurður Sigurðsson
Hátúni 12, Reykjavík, fyrrverandi bóndi og
sjómaður frá Hamraendum, Stafholts-
tungum, Mýrasýslu,
er látinn. Jarðarförin auglýst síðar.
Sigrún Sigurðardóttir
Jóhann Sigurðarson Guðrún Sesselja Arnardóttir
Ólöf Sigurðardóttir Stígur Snæsson
Þorsteinn Gauti Sigurðsson Halldóra Björk Friðjónsdóttir
afabörn, langafabarn og aðrir aðstandendur.