Fréttablaðið - 29.08.2006, Qupperneq 2
2 29. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
EKVADOR, AP Maria Esther de
Capovilla, elsta kona heims, and-
aðist á heimili sínu í Ekvador á
sunnudag, á 117. aldursári. Barna-
barn hennar greindi frá þessu í
gær.
De Capovilla fæddist 14. sept-
ember 1889, sama ár og Adolf
Hitler og Charlie Chaplin. Hún
var komin af hástéttarfólki í
Ekvador sem rakti ættir sínar til
spænsks aðals. Hún giftist árið
1917 og varð ekkja árið 1949.
Að henni genginni mun Eliza-
beth Bolden í Memphis í Tennes-
see í Bandaríkjunum vera kvenna
elst. „Hún er 116 ára, ellefu mán-
uðum yngri en Capovilla,“ segir
Robert Young hjá Heimsmetabók
Guinness. Emiliano Mercado del
Toro í Púertó Ríkó er elsti karl-
maður í heimi. Hann varð 115 ára
fyrir viku. - aa
116 ára kona frá Ekvador lést:
Elsta kona
heims fallin frá
MARIA ESTHER DE CAPOVILLA Sést hér á
heimili sínu í desember sl. með mynd af
eiginmanninum, sem dó árið 1949.
Brutust inn í bíl Tveir góðkunningjar
lögreglunnar voru gripnir glóðvolgir eftir
að hafa brotið bílrúðu til að komast inn
í bíl í austurhluta Reykjavíkur aðfaranótt
mánudags. Þeir voru handteknir og
gistu fangageymslur lögreglunnar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Banvæn elding Sautján ára danskur
piltur dó í gær í kjölfar áverka sem hann
hlaut er eldingu laust niður þar sem
hann var að leika knattspyrnu fyrir lið
sitt, Ulfborg á Jótlandi, á laugardaginn.
Níu aðrir leikmenn hlutu brunasár.
Mörgum leikjum var aflýst í Danmörku
um helgina vegna þrumuveðurs.
DANMÖRK
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
������� ����������� �
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��
LÖGREGLUMÁL Þrjátíu og tveggja
ára kona, sem starfar sem fata-
fella á nektardansstaðnum Bóhem,
hefur kært yfirmann sinn, Viðar
Má Friðfinnsson, fyrir að ráðast á
sig með höggum og hnésparki
aðfaranótt föstudags. Bjarnþór
Aðalsteinsson, varðstjóri í ofbeld-
isbrotadeild lögreglunnar í
Reykjavík, segir málið hafa komið
inn á borð lögreglu á föstudaginn.
„Ég get staðfest að það hefur
komið inn á okkar borð kæra
vegna átaka karlmanns og konu á
nektardansstaðnum Bóhem.
Áverkavottorð hefur ekki borist
til okkar ennþá en konan taldi sig
hafa rifbeinsbrotnað vegna hné-
sparks frá manninum. Frekari
rannsókn á málsatvikum og áverk-
um stendur yfir og ekki liggur
fyrir hvenær henni lýkur.“
Konan, sem ekki vildi láta nafns
sín getið, lenti í rifrildi við Viðar
Má eftir að starfsemi lauk á staðn-
um síðastliðið fimmtudagskvöld.
„Ég veit ekki alveg af hverju hann
réðst á mig en við höfðum verið að
rífast og svo allt í einu brjálaðist
hann og réðst á mig,“ sagði konan
en hún hefur unnið með hléum á
staðnum síðan árið 1995. „Hann
sló mig í andlitið og henti mér í
gólfið með látum. Síðan stökk
hann á mig og setti hnéð í bring-
una á mér með þeim afleiðingum
að ég rifbeinsbrotnaði. Stutt frá
okkur stóðu barþjónninn og einn
dyravörður en þeir gátu ekki
komið í veg fyrir árásina. Ég hef
leitað mér aðstoðar hjá lögfræð-
ingi sem vinnur nú að framgangi
málsins,“ sagði konan.
Viðar Már segir konuna vera að
reyna að koma á sig höggi með
upplognum lýsingum af atburðin-
um. „Ég þurfti að halda konunni
vegna þess að hún sló mig og lét
öllum illum látum. Ég sleppti
henni þegar hún reyndi að sparka
aftur fyrir sig í klofið á mér, í
háhæluðum skóm,“ sagði Viðar
Már og lagði áherslu á að konan
væri augljóslega að reyna að ná
sér niðri á honum. „Eftir að hún
gaf mér á kjaftinn ákvað ég að
koma henni út úr húsinu. Hún
lýgur því að ég hafi slegið hana og
beitt hana ofbeldi. Það er hugsan-
legt að hún hafi meitt sig lítillega
þegar hún lenti eftir að ég sleppti
henni, en ég gat ekki haldið henni.
Það var bara ekki hægt,“ sagði
Viðar Már. magnush@frettabladid.is
Kærður fyrir að rif-
beinsbrjóta fatafellu
Fatafella á Bóhem hefur kært Viðar Má Friðfinnsson, framkvæmdastjóra
staðarins, fyrir að ganga í skrokk á sér eftir lokun aðfaranótt föstudags. Hún
segist hafa rifbeinsbrotnað og marist illa eftir högg og spörk Viðars Más.
BÓHEM Framkvæmdastjóri nektardansstaðarins Bóhem, Viðar Már Friðfinnsson, hefur verið
kærður fyrir líkamsárás. Hann var áður dyravörður á nektardansstaðnum Goldfinger.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPURNING DAGSINS
Guðjón, hefur einhver þuklað
á þér nýlega?
„Mér brá mjög þegar ég heyrði að
þetta stæði til, en mér hefur blessunar-
lega tekist að halda öllum þuklurum
frá mér undanfarið.“
Meistaramót í hrútaþukli fór fram á
Ströndum á dögunum og kepptu fimmtíu
keppendur í tveimur flokkum. Guðjón Davíð
Karlsson leikari er í hrútsmerkinu.
LÖGREGLUMÁL Sautján ára piltur
var handtekinn í Leifsstöð við
komuna til landsins frá Amster-
dam seinnipartinn í fyrradag, með
um hundrað grömm af kókaíni
innvortis.
Tollgæslan á Keflavíkurflug-
velli stöðvaði piltinn við reglu-
bundið eftirlit og vöknuðu grunn-
semdir. Hann var sendur í
röntgenmyndatöku og reyndist
hafa komið efninu fyrir í enda-
þarmi. Efninu var tryggilega
pakkað í umbúðir.
Ferðafélagi piltsins var einnig
handtekinn við komuna. Þeir voru
báðir færðir til yfirheyrslu en
engin fíkniefni fundust á ferðafé-
laganum. Að sögn lögreglu hefur
pilturinn ekki áður komist í kast
við lögin. Í málum sem þessu,
þegar lögbrjótur er undir átján
ára aldri, er haft samband við
barnaverndaryfirvöld. Pilturinn
má þó eiga von á því að réttað
verði yfir honum sem fullorðnum.
Tollgæslan á Keflavíkur-
flugvelli hefur lagt hald á mun
meira kókaín það sem af er árinu
en allt árið í fyrra. Alls hefur toll-
gæslan lagt hald á um fimm kíló af
kókaíni í ár miðað við átta hundr-
uð grömm í fyrra. Þá hefur toll-
gæslan lagt hald á um fjögur kíló
af amfetamíni, en það er svipað
magn og allt árið 2005. - æþe
Sautján ára piltur tekinn í Leifsstöð með hundrað grömm af kókaíni:
Faldi kókaín í endaþarmi
TYRKLAND Þrennt lést og
fjöldi særðist í sprengju
sem sprakk við veit-
ingastaði í ferðamanna-
bænum Antalyu í Tyrk-
landi í gær. Degi áður
særðist 21 í sprengjutil-
ræði í strætisvagni í
ferðamannabænum
Marmaris. Einnig voru
tvær ruslatunnur í
bænum sprengdar og
sex særðust þegar fjar-
stýrð sprengja sprakk
nálægt skrifstofu ríkis-
stjóra í Istanbúl.
Atli Már Gylfason var staddur
á Fidam-hótelinu í Marmaris og
þaut hann út á svalir þegar hann
heyrði strætisvagninn springa.
„Ég hljóp svo niður til að sjá
þetta betur og sá að strætisvagn-
inn sprakk svona 150 metra frá
hótelinu,“ sagði Atli
Már. „Það var mikil
ringulreið og geðs-
hræring og búið að
girða svæðið af. Ég sá
fólk með höfuðáverka,
en lögreglan reyndi að
halda fólki og fjöl-
miðlum frá svæðinu.
Strætisvagninn var
frekar illa farinn, allar
rúður í honum farnar,
en hann var ekki gjöró-
nýtur. Þetta er strætó
sem túristarnir hafa
notað og ég hef ferðast
með honum.“
Um þrjú hundruð Íslendingar
eru á svæðinu og á hótelum í nær-
liggjandi bæjum. Tíu breskir
ferðamenn og ellefu Tyrkir særð-
ust í sprengingunni. Enginn hefur
lýst árásunum á hendur sér. - sgj
21 særðist í strætisvagnasprengju og þrennt lést í sprengju við veitingahús:
Um 300 Íslendingar á svæðinu
ATLI MÁR GYLFASON
SPRENGINGIN Í ISTANBÚL Sex manns
særðust í sprengjunni nálægt ríkisstjóra-
skrifstofunni í Istanbúl. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Konan sem lést
er hún varð fyrir
bíl á Faxabraut í
Reykjanesbæ í
fyrradag hét
Bryndís
Zophoníasdóttir.
Bryndís var til
heimilis að dvalar-
heimili aldraðra
að Hlévangi í
Keflavík.
Hún fæddist
4. september 1931 og var því 74
ára þegar hún lést. Hún lætur eftir
sig einn son.
Banaslys í Reykjanesbæ:
Nafn konunn-
ar sem lést
BRYNDÍS
ZOPHONÍASDÓTTIR
VIÐSKIPTI Landsvirkjun tapaði 6,5
milljörðum króna á fyrstu sex mán-
uðum ársins. Á sama tíma í fyrra
hagnaðist fyrirtækið um tvo
milljarða.
Tap fyrirtækisins skýrist af
veikingu krónunnar. Stór hluti
langtímaskulda þess eru í erlendri
mynt og nam gengistap 24,9 millj-
örðum króna. Tap fyrir skatta nam
tæpum 23 milljörðum, 25 milljörð-
um króna verri afkoma en fyrir
ári. Landsvirkjun greiðir á árinu í
fyrsta skipti skatt af starfsemi
sinni. Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir nam 4,65 milljörðum en
handbært fé frá rekstri tæpum 5,6
milljörðum króna. - óká/jab
Krónan setur strik í reikninginn:
Mettap hjá
Landsvirkjun
Maðurinn sem
lést í vinnuslysi á
Álfsnesi á laugar-
dag hét Jens
Willy Ísleifsson,
til heimilis að
Frostafold 22 í
Grafarvogi.
Hann var
fæddur 25. nóv-
ember 1959 og
var því 46 ára
þegar hann lést.
Jens Willy var ókvæntur og
barnslaus.
Vinnuslys á Álfsnesi:
Nafn manns-
ins sem lést
JENS WILLY
ÍSLEIFSSON
Reyndi að frelsa félaga sinn Tveir
menn gistu fangageymslur lögreglunnar
á Ísafirði á sunnudagskvöldið eftir úti-
stöður í miðbæ bæjarins. Annar mann-
anna lenti í átökum við þriðja manninn
og skarst lögregla í leikinn. Lögregla
handtók mennina og gerði félagi annars
þeirra sér þá lítið fyrir og reyndi að frelsa
vin sinn úr haldi lögreglu. Hann var þá
handtekinn í kjölfarið og var færður í
fangageymslur ásamt félaga sínum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR Haft var
samband við barnaverndaryfirvöld eftir að
sautján ára piltur var tekinn í Leifsstöð með
hundrað grömm af kókaíni innvortis.