Fréttablaðið - 29.08.2006, Page 6
6 29. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
EFNAHAGSMÁL Ekki er ráðlegt að
hefja framkvæmdir við Sunda-
braut og mislæg gatnamót Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar
fyrr en í fyrsta lagi seint á næsta
ári. Þetta er mat Tryggva Þórs
Herbertssonar, forstöðumanns
Hagfræðistofnunar.
„Eins og fjölmargir hagfræð-
ingar hafa margítrekað er mjög
brýnt að halda að sér höndum
með framkvæmdir á meðan
þenslan er að ganga niður,“ segir
Tryggvi. „Ég tel að fresta eigi
þessum framkvæmdum ótíma-
bundið og þær komi ekki til fyrr
en efnahagsástandið gefur til-
efni til þess.“
Tryggvi segir það líklega ekki
verða fyrr en í fyrsta lagi í lok
næsta árs. „Það er sagt að Seðla-
bankinn komist á verðbólgu-
markmið seint á næsta ári. Það
þýðir samt ekki að það sé hægt
að byrja framkvæmdir þá vegna
þess að það er alls konar ójafn-
vægi í hagkerfinu sem þarf að
lagast áður en hægt er að byrja.“
Þá segir Tryggvi tilkynningar
um að framkvæmdir muni hefj-
ast á tilteknum tíma einnig
þensluvaldandi. Þær hafi áhrif á
væntingar og valdi því að neysla
dragist minna saman en ella.
Gísli Marteinn Baldursson,
formaður samgöngu- og
umhverfisráðs Reykjavíkur,
hefur sagt að vinna eigi þessi
verk eins snemma og eins hratt
og auðið er. - sh
Hagfræðingur telur að fresta eigi stórum framkvæmdum vegna efnahagsástands:
Ráðlegt er að fresta Sundabraut
SUNDABRAUT Formaður samgöngu- og umhverfisráðs borgarinnar segir að vinna eigi
verkin eins snemma og hratt og unnt sé.
Verð kr. 29.990 í viku
/ kr. 39.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í 2 vikur, 14. sept. eða 1
eða 2 vikur 21. september.
Heimsferðir bjóða ótrúlegt
tilboð á síðustu sætunum til
Benidorm í 2 vikur 14. sept
eða í 1 eða 2 vikur 21. sept.
Þú bókar og tryggir þér sæti
og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir.
Gríptu tækifærið og tryggðu
þér sumarauka á frábærum
kjörum.
Stökktu til
Benidorm
Verð kr. 39.990 í viku
/ kr. 49.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi /
stúdíó / íbúð í 2 vikur, 14. sept. eða 1 eða
2 vikur 21. september.
14. eða 21.sept.
frá kr. 29.990
Síðustu sætin
LEXINGTON, AP Engin skýring hafði í
gær fengist á því hvers vegna far-
þegaflugvélinni sem fórst í
Kentucky í Bandaríkjunum síðdeg-
is á sunnudaginn var flogið á loft af
of stuttri flugbraut.
Aðalflugbraut Blue Grass flug-
vallarins í Lexington í Kentucky er
rúmlega 2.100 metrar að lengd, sem
hefði dugað til þess að vélin tækist
almennilega á loft þar sem hún þarf
ekki nema rúmlega 1.500 metra
langa flugbraut. Af einhverjum
ástæðum var vélinni flogið á loft af
annarri flugbraut, sem er 1.066
metrar að lengd, sem dugar hvergi
nærri til þess að vélin komist á
flug. Flugmaður vélarinnar hefði
átt að átta sig á því að hann var ekki
á réttri braut. Á vellinum eru merki
sem sýna réttu brautina. Lýsing á
stuttu brautinni er minni en á þeirri
lengri, og yfirborð stuttu brautar-
innar er þakið sprungum, sem ekki
getur talist venjulegt á aðalflug-
braut.
Með vélinni fórust 49 manns,
allir farþegarnir og öll áhöfnin að
undanskildum aðstoðarflugmanni,
sem í gær lá lífshættulega slasaður
á sjúkrahúsi. Mikið eldsneyti var
um borð í vélinni og svo virðist sem
eldur sem kviknaði í vélinni við
hrapið hafi valdið dauða flestra
þeirra sem fórust.
Lögreglumaðurinn sem bjarg-
aði aðstoðarflugmanninum, James
M. Polehinke, úr flugstjórnarklef-
anum skömmu eftir hrap vélar-
innar hlaut brunasár. - gb
BLUE GRASS FLUGVÖLLURINN Í LEXINGTON Í KENTUCKY Farþegavélin hrapaði í skóglendinu
efst á myndinni, eftir að reynt hafði verið að fljúga henni frá stuttu flugbrautinni fyrir miðju
myndarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Flugslysið í Kentucky veldur heilabrotum:
Ekki vitað af hverju
flugbrautin var notuð
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnahundur
Tollgæslunnar gaf merki um að
eitthvað væri athugavert við
fangavörð á Litla-Hrauni sem var
að mæta á vakt á laugardags-
morgun. Aðrir fangaverðir leit-
uðu á manninum og fundu þá
pakkningar með umtalsverðu
magni af hassi á honum, sam-
kvæmt upplýsingum Fréttablaðs-
ins.
Fangavörðurinn sem tekinn
var með hassið er um tvítugt og er
í sumarafleysingastarfi. Hann var
að kvöldi laugardags úrskurðaður
í sjö daga gæsluvarðhald. Á
sunnudagskvöld voru svo tveir
refsifangar á Litla-Hrauni
úrskurðaðir í sex daga gæsluvarð-
hald. Lögreglan í Árnessýslu fer
með rannsókn málsins. Hún bein-
ist meðal annars að því hvort
fangavörðurinn hafi verið eins
konar burðardýr fyrir gæslu-
fanga á Litla-Hrauni og komið
fíkniefnum inn í fangelsið. Mikið
hefur verið um fíkniefni á Litla-
Hrauni í sumar og um verslunar-
mannahelgina var ástandið sér-
lega slæmt, samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins.
„Ég get alveg staðfest að
ástandið hefur verið mjög slæmt í
sumar,“ segir Sigurjón Birgisson,
formaður Fangavarðafélagsins og
aðstoðarvarðstjóri á Litla-Hrauni.
Hann segir aðstöðu fangavarða á
Litla-Hrauni, og í fangelsum lands-
ins yfir höfuð, mjög slæma. Þeir
búi við skort á starfsfólki, slæma
vinnuaðstöðu og yfirfull fangelsi.
Því sé erfitt að koma með öllu í
veg fyrir að fíkniefni berist þar
inn. Þetta sé nauðsynlegt að laga.
„Þegar við getum stoppað þetta
innstreymi getum við fyrst farið
að vinna með þessum mönnum og
gera eitthvað úr þeim,“ segir
hann. „Það er mjög erfitt þegar
ekki er hægt að einangra þá sem
eru í neyslu frá hinum.
Starf fangavarða er gríðarlega
erfitt og menn eru undir miklu
álagi,“ heldur Sigurjón áfram.
„Það þarf betra bakland fyrir þá,
þannig að ef þeir lenda í aðstæð-
um, svo sem hótunum, geti þeir
leitað sér einhverrar aðstoðar.
Það er ekki til staðar í dag.
Við munum setjast yfir það á
næstu dögum með fangelsismála-
stjóra hvernig bæta megi bakland
fangavarða. En þetta umrædda
atvik er slæmt í alla staði og áfall
fyrir fangavarðastéttina.“
jss@frettabladid.is
LITLA-HRAUN Rannsókn lögreglunnar í Árnessýslu á hassmálinu á Litla-Hrauni beinist
meðal annars að því hvort aðstoðarfangavörðurinn hafi verið burðardýr milli fanga og
fíkniefnasala.
Fíkniefnahundur fann
hassið á fangaverðinum
Fíkniefnahundur Tollgæslunnar gaf merki um að eitthvað grunsamlegt væri við afleysingafangavörð á
Litla-Hrauni. Fangaverðir fundu umtalsvert magn af hassi á manninum. Þrír sitja nú í gæsluvarðhaldi.
HEILBRIGÐISMÁL Siv Friðleifsdóttir,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, undirritaði í gærmorgun
verksamning vegna lokafrágangs
D-álmu við Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja.
Samið var við fyrirtækið FB
Festingu sem átti lægra tilboðið af
tveimur í verkið og hljóðaði það
upp á tæpar 80 milljónir króna.
Stefnt er að því að verkinu
verði að fullu lokið í apríl eða maí
á næsta ári.
Tvær skurðstofur og ein minni
aðgerðastofa ásamt stoðrýmum
verða á þriðju hæð álmunnar.
Verður þá unnt að gera margvís-
legar aðgerðir sem eins og stend-
ur er einungis hægt að fram-
kvæma í Reykjavík. - sdg
Frágangur D-álmu í Keflavík:
Skrifað undir
verksamning
SAMNINGURINN UNDIRRITAÐUR Finnbogi
Björnsson, frá FB Festingu, Sigríður Snæ-
björnsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
stofnunarinnar, og Siv Friðleifsdóttir skrifa
hér undir verksamninginn.
MYND/ELLERT GRÉTARSSON
NOREGUR Norsk heilbrigðisyfirvöld
hafa undanfarið brugðist við nýju
heilbrigðisvandamáli í Noregi með
því að sérpanta ný rúm og upp-
skurðarbekki. Þetta kemur fram á
fréttavef Aftenposten.
Sjúkrahúsin í Arendal og
Kristiansand hafa pantað upp-
skurðarbekki sem þola 225 kíló og
fyrrnefnda sjúkrahúsið hefur jafn-
framt pantað tíu rúm fyrir fólk í
yfirvigt, en venjuleg sjúkrahús-
rúm þola allt að 150 kílógrömm.
Jafnframt verða nýjar börur
pantaðar í sjúkrabíla í Arendal.
Þær munu þola 225 kíló, sem er
staðallinn í Bandaríkjunum. - smk
Nýtt vandamál í Noregi:
Rúm keypt fyrir
feita sjúklinga
Ferðamaður velti bíl Erlendur ferða-
maður missti stjórn á bílaleigubíl sem
hann ók við Tjörn á Vatnsnesi skömmu
eftir klukkan fjögur í gær. Maðurinn var
einn í bílnum, sem valt við óhappið, og
slapp ómeiddur. Bíllinn mun vera mikið
skemmdur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Fimmti maðurinn gripinn Líbanska
lögreglan hefur handtekið fimmta
manninn grunaðan um að hafa komið
tveimur sprengjum fyrir í járnbrautar-
lestum í Þýskalandi í júlí. Sprengjurnar
sprungu þó ekki áður en þær uppgötv-
uðust, líklega vegna galla við samsetn-
ingu. Þrír hinna grunuðu voru hand-
teknir í Líbanon og tveir í Þýskalandi.
LÍBANON
KJÖRKASSINN
Ert þú flughrædd(ur)?
Já 28%
Nei 72%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eiga íslensk yfirvöld að beita
sér fyrir því að ná Hlyni Smára
Sigurðssyni heim úr brasilísku
fangelsi?
Segðu þína skoðun á visir.is