Fréttablaðið - 29.08.2006, Side 8
8 29. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
�������������������������������������������������������������������������������������������������������
����������� �� ��� �������� � ����� �������� ���� ����� ���� ��� ������� ������ ��� ����������� ������� ��� �������������
� ��������������������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
����������������������� ������������������
���� ����� ������ ��� ������� ������� ����������������� ���� ���
� ����������� �������� ������ ������ �������� ��� ����� �������
� ��������������� ���������������������� �������
����������������
����������������������
���������������������������
��������������� ������
������������������������� ����������������������� �������������������������� ��������������������� ������������������������
VEISTU SVARIÐ?
1 Hvað heitir austurríska stúlkan sem kom í leitirnar á dögunum eftir átta
ár í haldi mannræningja?
2 Hvað heitir íslenski förðunarsér-fræðingurinn sem gerir það gott í
Hollywood þessa dagana?
3 Í hvaða sæti lenti íslenska landsliðið í körfubolta á nýafstöðnu æfingamóti
í Hollandi?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 48
ÚLFLJÓTSVATN Viðræður eru enn í
gangi milli fasteigna- og þróunar-
félagsins Klasa og stjórnar Orku-
veitu Reykjavíkur um að draga úr
fyrirhugaðri sumarhúsabyggð við
Úlfljótsvatn.
Vonir standa til að niðurstaðan
liggi fyrir síðar í þessari viku.
Þorgils Óttar Mathiesen, for-
stjóri Klasa, staðfestir að Orkuveit-
an hafi áhuga á því að breyta fyrir-
huguðu skipulagi um
frístundabyggð á svæðinu og Klasi
hafi lýst sig reiðubúinn til við-
ræðna.
Fyrirhugað var að byggja sex
hundruð sumarhús ásamt þjónustu-
miðstöð og segir Þorgils Óttar rætt
um að fækka þeim í sextíu. Ef af
þessu verður verður viðskiptahug-
myndinni að baki frístundabyggð-
inni breytt og sumarhúsabyggðin
höfð með hefðbundnara sniði en
áður var fyrirhugað. - ghs
Viðræður um fækkun í byggðinni við Úlfljótsvatn:
Niðurstöðu er að
vænta í viklulokin
ÞORGILS ÓTTAR MATHIESEN Forstjóri Klasa,
Þorgils Óttar Mathiesen, segir að Klasi hafi
lýst sig reiðubúinn til viðræðna um breyt-
ingar á skipulagi við Úlfljótsvatn.
LÍBANON, AP Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, las bæði Ísraelsstjórn og
Hizbollah-samtökunum í Líbanon
pistilinn í heimsókn til Beirút í
gær. Hann sagði hvorugan stríðs-
aðilan geta „valið og hafnað“ það
sem þeim hentaði að hrinda í fram-
kvæmd úr vopnahlésályktun SÞ.
Hann ítrekaði kröfuna um að Hiz-
bollah-liðar létu lausa tvo ísra-
elska hermenn, sem þeir tóku til
fanga 12. júlí, og kröfuna um að
Ísraelar afléttu hafnbanni sínu á
Líbanon.
Annan sagði ályktun öryggis-
ráðs SÞ númer 1701 um vopnahlé í
Líbanon „fastan matseðil“. „Hún er
ekki hlaðborð þar sem hægt er að
velja og hafna. Við verðum að
hrinda ályktun 1701 í framkvæmd í
heild sinni og ég vona að allir hlut-
aðeigandi muni taka það til sín,“
sagði hann. „Verði ályktun 1701
ekki hrint samviskusamlega í fram-
kvæmd óttast ég að hættan sé mikil
á að vopnuð átök brjótist út á ný.“
Hann bauð aðstoð SÞ við að fá
ísraelsku hermennina lausa úr
haldi Hizbollah, ef samtökin gætu
með því orðið að liði við að bæta
friðarhorfurnar. Hann skoraði
einnig á Ísraelsstjórn að aflétta
hafnbanninu sem hún heldur enn
til streitu í Líbanon. Og hann ítrek-
aði kröfu SÞ um afvopnun Hiz-
bollah. „Í Líbanon ættu aðeins,
eins og um hefur verið samið, að
vera ein lög, ein stjórnvöld og
vopnavald á einni hendi,“ sagði
Annan.
Enn er verið að vinna að mönn-
un alþjóðlega friðargæsluliðsins,
sem samkvæmt vopnahlésáætlun-
inni á að gæta friðarins í Suður-
Líbanon, ásamt líbanska hernum.
Ítalska stjórnin samþykkti í gær
að senda 2.500 hermenn, og að Ítal-
ir tækju við forystu gæsluliðs SÞ í
Líbanon af Frökkum í febrúar á
næsta ári. Evrópusambandsþjóðir
hafa heitið samtals 6.700 hermönn-
um í liðið, en alls eiga 15.000 her-
menn að fylla raðir þess.
Ítalíustjórn ákvað jafnframt í
gær að veita Líbanon bráðaaðstoð
upp á 30 milljónir evra, andvirði
um 2,7 milljarða króna.
Tyrkneska stjórnin samþykkti
einnig í gær „í meginatriðum“ að
leggja gæsluliðinu í Líbanon til
hermenn. Leitað verður samþykk-
is tyrkneska þingsins við því í
þessari eða næstu viku. Andstaða
við að senda hermenn í þetta verk-
efni hefur farið vaxandi í Tyrk-
landi að undanförnu, þar sem
almenningsálitið er allt á bandi
Líbana og sú skoðun útbreidd að
hætta sé á að tyrkneskir hermenn
í friðargæslu í Líbanon yrðu álitn-
ir vera að þjóna hagsmunum Ísra-
els. Líbanon var í 400 ár hluti af
Tyrkjaveldi. audunn@frettabladid.is
ANNAN OG SANIORA Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, og Fuad Saniora, forsætisráðherra
Líbanons, á blaðamannafundi í Beirút í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Annan var
harðorður
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna brýndi
fyrir bæði Hizbollah-liðum og Ísraelsstjórn að virða
ákvæði vopnahlésályktunar.
KÁRAHNJÚKAR Ekki liggur fyrir
hvað kínverska manninum sem
misþyrmdi sjálfum sér á Kára-
hnjúkum gekk til með sjálfspynt-
ingunum. Maðurinn fannst liggj-
andi í blóði sínu í svefnskála á
svæðinu aðfaranótt 20. ágúst.
Hann sagði dulbúna menn hafa
ráðist á sig en nú bendir allt til
þess að hann hafi skaðað sjálfan
sig með naglbít.
Að sögn Steingríms Þorbjarn-
arsonar, trúnaðarmanns á Kára-
hnjúkum, er maðurinn kominn
austur aftur eftir að hafa verið
fluttur á spítala í Reykjavík, en
liggur þar á sjúkrahúsi og er enn
að ná sér eftir blóðmissinn. Stein-
grímur segir ástæður fyrir hátt-
erni mannsins ókunnar. Líkur hafa
verið leiddar að því að maðurinn
hafi viljað verða sér úti um trygg-
ingafé til að senda fjölskyldu sinni
í Kína, en Steingrímur segir ekk-
ert benda til þess. Þá er og talið
ólíklegt að hann hafi veitt sér
áverka vegna þess að hann hafi átt
að snúa heim og vildi frekar vera
um kyrrt og vinna á launum sem
eru hærri en í heimalandinu.
Kínverjinn mun líklega snúa til
síns heima þegar sjúkrahúsvist-
inni líkur þar sem hann mun þurfa
á sálfræðihjálp að halda og er
óvinnufær sökum þess. Steingrím-
ur segir samstarfsmenn mannsins
enn slegna yfir atburðinum og
málið mikið rætt. - sh
Enn óljóst hvað Kínverjanum á Kárahnjúkum gekk til með sjálfsmeiðingunum:
Fer heim eftir spítalavistina
KÁRAHNJÚKAR Kínverjinn mun að öllum
líkindum ekki starfa frekar á Kárahnjúkum
heldur fara heim og gangast undir sálfræði-
meðferð.
JAPAN, AP Junichiro Koizumi, for-
sætisráðherra Japans, vísaði því á
bug í gær að heimsókn hans í Yas-
ukuni-hofið, þar sem minning fall-
inna hermanna er heiðruð, kynti
undir þjóðernishyggju meðal Jap-
ana. Hann sakaði aftur á móti fjöl-
miðla um að ýfa upp deilur með
ósanngjörnum fréttaflutningi.
Koizumi fordæmdi enn fremur
íkveikjuárás sem gerð var á heim-
ili þingmanns sem hefur farið
fyrir innanlandsgagnrýni á Yasu-
kuni-heimsóknir forsætisráðherr-
ans. Harðasta gagnrýnin kemur þó
frá Suður-Kóreu og Kína, þar sem
litið er á hofið sem tákn fyrir hern-
aðarhyggju fyrri tíma í Japan. - aa
Koizumi verst gagnrýni:
Ýtir ekki undir
þjóðrembu
MANNARÁÐNING Þorgeir Pálsson
flugmálastjóri hefur verið ráðinn
forstjóri Flugstoða. Flugstoðir er
hlutafélag í eigu
ríkisins sem ætlað
er að sinna margs
konar þjónustu
sem Flugmála-
stjórn hefur haft
með höndum, svo
sem rekstri flug-
leiðsöguþjónustu
og flugvalla. Flug-
málastjórn mun
áfram sinna þeim þáttum sem
snúa að stjórnsýslu flugmála.
Starfsmenn Flugstoða verða
um 220 og hjá dótturfélögunum
Flugfjarskiptum og Flugkerfum
starfa um 80 manns.
Þorgeir Pálsson hefur verið
flugmálastjóri frá 1992 og gegnir
því starfi til áramóta þegar hann
tekur við stjórn Flugstoða. - bþs
Flugþjónusta hins opinbera:
Þorgeir stýrir
Flugstoðum
ÞORGEIR
PÁLSSON
DANMÖRK Rússneskur ríkisborgari
var í gær dæmdur í tveggja og
hálfs árs fangelsi í Danmörku
fyrir að hafa flutt börn sín úr landi
fyrir ellefu árum og falið þau í
palestínskum flóttamannabúðum í
Líbanon. Hann hefur síðan ekki
leyft þeim að heimsækja móður
sína, sem býr í Árósum í Dan-
mörku, kemur fram á fréttavef
Jótlandspóstsins.
Maðurinn fór úr landi með
börnin eftir að móðir þeirra fór
frá honum vegna síendurtekins
heimilisofbeldis.
Börnin, sem öll eru danskir
ríkisborgarar, eru enn í Beirút hjá
ömmu sinni. Þau eru nú á aldrin-
um 13 til 19 ára.
Maðurinn verður gerður brott-
rækur úr Danmörku þegar hann
hefur afplánað dóminn. - smk
Danskt dómsmál:
Faðir faldi börnin í Beirút