Fréttablaðið - 29.08.2006, Síða 25
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Gunnlaugur Auðunn Júlíusson,
sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs
hjá Sambandi sveitarfélaga, fór að
æfa hlaup fyrir sex árum og hefur náð
undraverðum árangri.
Í maí síðastliðnum hljóp Gunnlaugur hundr-
að kílómetra samfleytt í tíu klukkustundir í
Óðinsvéum. Spurður hvernig hægt sé að
halda það svona lengi út svarar hann því að
skipulag gegni veigamiklu hlutverki í því
samhengi.
„Það má ekki fara út fyrir ákveðin mörk,
með því að fara yfir mjólkursýruþröskuld-
inn, heldur verður maður að halda sig undir
honum,“ segir Gunnlaugur. „Það gerir
maður með því að fara ekki yfir ákveðinn
púls og hraða, en slíkt lærist einfaldlega,“
bætir hann við.
Reynslan kom Gunnlaugi að góðum
notum þegar hann hljóp hundrað mílur í 26
klukkustundir í Bandaríkjunum í fyrra.
„Hlaupið fór fram á fjalllendi í Norður-
Kaliforníu, þar sem þátttakendur gengu
upp brekkur en hlupu allt annað,“ útskýrir
hann. „Sé maður vel undirbúinn og varar
sig á því að fara ekki yfir fyrrnefnd mörk
eru manni nánast allir vegir færir.“
Þótt Reykjavíkurmaraþonið sé afstaðið
er fullt af spennandi hlaupum fram undan
að sögn Gunnlaugs, meðal annars sex tíma
hlaup í september. „Þar er ekki farið eftir
tiltekinni vegalengd eins og í maraþoni,
heldur vinnur sá sem hleypur lengst,“ segir
hann. „Hér er þetta nýtt en erlendis geta
menn líka hlaupið í 12, 24 og 48 klukku-
stundir. Ef til vill er þess ekki langt að bíða
að það gerist hér.“
roald@frettabladid.is
Sársaukinn varir stutt
en upplifunin er eilíf
Gunnlaugur æfir hlaup af kappi og heldur úti öflugri heimasíðu, www.gajul.blogspot.com þar sem hægt er að lesa um afrek hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELMGÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
29. ágúst, 241. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 6.00 13.29 20.55
Akureyri 5.38 13.13 20.46
Heimild: Almanak Háskólans
ÍSLENDINGAR ERU FARNIR AÐ BORÐA MEIRA AF ÁVÖXTUM EN
ÁÐUR. ÞEIR MÆTTU ÞÓ GERA BETUR OG BORÐA ENNÞÁ MEIRA
AF ÞEIM.
Samkvæmt rannsókn á mataræði Íslendinga sem unnin var af
Lýðheilsustöð hefur neysla á ávöxtum aukist verulega á síðustu
tveimur árum; sem nemur 13,2 kílóum á hvern íbúa landsins.
Neysla á grænmeti hefur einnig aukist á þessum árum en þó ekki
jafn mikið og á ávöxtum. Í rannsókninni kemur samt sem áður
fram að Íslendingar borða mun minna
af ávöxtum og grænmeti en
hinar Norðurlandaþjóðirnar
og þurfa að borða ennþá
meira af þessum fæðu-
tegundum til þess að
ná ráðlögðum dag-
skammti. - eö
Neysla ávaxta eykst
Ávextir eru hollir og góðir og
ættu að vera á matseðlinum á
hverjum degi.
ÓNÝT LYF Í
APÓTEKIÐ
Lyf geta haft áhrif á um-
hverfið, sé ekki farið eftir
reglum við förgun þeirra.
HEILSA 4
Niðurstöður víðtækrar kanad-
ískrar rannsóknar sem var gerð
nýverið sýna að konur með
silikonpúða í brjóstum eru ekki
líklegri en aðrar konur til að fá
krabbamein eða aðra kvilla þeim
tengda. Sjálfsmorðstíðni er hins
vegar hærri á meðal kvenna með
sílikonbrjóst. Sjá www.cnn.com.
Margt er á döfinni hjá Útivist.
Á morgun, 30. ágúst, verður
hringur farinn frá Djúpavatni um
Sogin, Grænavatn, Grænavatns-
eggjar og Spákonuvatn. Lagt er
af stað í ferðina frá Toppstöðinni
í Elliðaárdal kl. 18.30. Sjá nánar
á www.utivist.is.
Heyrnarskerðing eldri borgara
hefur verið rakin til galla eða
réttara sagt stökkbreytingar á
erfðavísi, sem kallast KCNQ4,
samkvæmt hollenskri rannsókn.
Niðurstöðurnar vekja vonir um
að hægt verði að vinna bug á
þessum vanda, en 37 prósent
Breta á aldrinum 61-70 ára þjást
af heyrnarskerðingu og 60 pró-
sent Breta frá 71-80 ára, að því
er fram kemur á fréttavef BBC.
ALLT HITT
[HEILSA]
REIÐHJÓLIÐ BÚIÐ
UNDIR VETURINN
Allra veðra von er á Íslandi
og því betra að byrja undir-
búninginn tímanlega.
HEILSA 2