Fréttablaðið - 29.08.2006, Page 28
29. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR4
Lyf geta haft áhrif á náttúruna
og því er nauðsynlegt að fara
rétt að við förgun þeirra.
Í leiðbeiningum sem fylgja öllum
lyfjum stendur skýrt og skorinort
að þegar dagsetningin renni út,
eða þegar hætt er að nota lyfið,
eigi að skila því í næsta apótek til
förgunar. Ekki skuli henda lyfjum
í rusl eða skólp.
Hjá Lyfjum og heilsu fengust
þær upplýsingar að Íslendingar
væru almennt duglegir við að
skila gömlum lyfjum enda bærist
mikið magn gamalla lyfja í versl-
anir þeirra í hverri viku. Fólk
kemur þá með heilu pokana af
lyfjaglösum sem líklega hafa safn-
ast upp í lyfjaskápnum.
Gömul lyf eru síðan brennd en
öll ávanabindandi lyf eru send til
Lyfjastofnunar, sem sér um förg-
un þeirra.
Rannveig Gunnarsdóttir, lyfja-
fræðingur og forstjóri Lyfjastofn-
unar, segir að þó að reglan sé sú að
skila eigi öllum lyfjum í apótek
fari mikilvægi þess eftir því um
hvers konar lyf sé að ræða. „Sum
lyf eru alls ekki æskileg í
umhverfinu,“ segir
Rannveig og tekur dæmi.
„Konur í Skandinavíu notuðu
töluvert tíðarhvarfshormónaplást-
ur sem var farinn að hafa áhrif á
frjósemi fiska í vötnum. Ástæðan
var sú að konurnar syntu í vötnun-
um, sem er jú algengara í Skand-
inavíu en
hér. Plástrarnir losnuðu og horm-
ónarnir höfðu áhrif á fiskana,“
segir Rannveig og bendir á að
þessi dæmisaga sýni að það skipti
máli hvernig lyfjum sé fargað.
Annað dæmi sem Rannveig
nefnir eru sýklalyf. Sé þeim til
dæmis hent í skólpið aukist mögu-
leiki á því að bakteríur þrói ónæmi,
sem aftur á móti er mjög slæmt
fyrir heilsu manna.
Samkvæmt nýrri löggjöf í Evr-
ópusambandinu er gert ráð fyrir
að fram fari umhverfismat þegar
lyf eru skráð, að sögn Rannveigar
sem bendir jafnframt á að slíkt
mat hafi í raun ekki farið fram hér
á landi enn. „Ég veit til þess að á
Norðurlöndunum er verið að
mæla hreinleika vatns og meðal
annars lyfjaleifar, en þetta er ekki
gert hér,“ segir Rannveig en
útskýrir að þar sem Ísland sé svo
fámennt land fari mjög lítið magn
af skólpi út í sjó sem þynnist hratt
og hafi því ekki mjög mikil áhrif.
Þrátt fyrir ýmiss vafaatriði er
ein regla sem gildir ávallt. „Maður
skal ávallt gæta varúðar í umsýslu
lyfja, sérstaklega gagnvart börn-
um,“ varar Rannveig.
solveig@frettabladid.is
Ónýtum og gömlum lyfj-
um skal skila í apótekið
Rannveig Gunnarsdóttir, lyfjafræðingur og
forstjóri Lyfjastofnunar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Persona.is
EGGERT BIRGISSON
SÁLFRÆÐINGUR SKRIFAR
Síþreyta og vefjagigt eru tiltölulega algengar raskanir. Þær
eru langvarandi, valda verulegum óþægindum og draga
úr lífsgæðum ekki síður en alvarlegir sjúkdómar. Einkenni
síþreytu og vefjagigtar eru mjög svipuð enda telja margir
að um sé að ræða sama fyrirbærið. Helstu sameiginlegu
einkenni eru langvarandi þreyta og slappleiki, vöðva- og
liðaverkir, truflun á svefni, höfuðverkur, meltingartruflanir,
svimi, skortur á einbeitingu og pirringur.
Það er ekki vitað nákvæmlega hverjar orsakir síþreytu
og vefjagigtar eru en þó er nokkuð víst að um samspil
erfða, persónuleikaþátta, streituvaldandi lífsstíls, margs-
konar áfalla, bælingar tilfinninga, þunglyndis og kvíða sé
að ræða. Þá er sumt fólk, vegna áhrifa skapgerðar og líf-
eðlisfræðilegra eiginleika, næmara fyrir líkamlegum ein-
kennum en aðrir. Sums staðar er heldur ekki vel liðið að
fólk beri tilfinningar sínar á torg en að tjá tilfinningar sínar
sem líkamlega vanlíðan er ekki litið sama hornauga. Þá er
margt sem bendir til þess að þessar raskanir orsakist, að
minnsta kosti að hluta til, af miðlægri næmingu í tauga-
kerfinu. Slík næming í taugakerfinu getur orðið til þess
að tilfinning í líkamanum sem áður var óþægileg verði
næstum óbærileg. Miðlæg næming getur orsakast af einu
alvarlegu áfalli sem viðkomandi verður fyrir eða langvar-
andi streitu. Alvarlegt áfall er til dæmis slys en langvarandi
streita getur til dæmis myndast hjá þeim sem þarf að sjá
fyrir veikum ættingja í langan tíma eða býr við ótryggar
aðstæður.
Þó ekki sé vitað nákvæmlega hverjar orsakir síþreytu
og vefjagigtar eru þýðir það ekki að vanlíðanin sem þeim
fylgir sé ímyndun ein. Verkirnir og þreytan eru raunveru-
leg, þó þau séu ekki sýnileg öðrum, og taka verður fólk
alvarlega þegar það segist finna til þessara einkenna.
Fyrir utan einkennin eiga þeir sem þjást af síþreytu og
vefjagigt margt sameiginlegt. Konur eru í meirihluta og oft
er fólk þunglynt eða kvíðið. Þá er það einnig algengt að
fólk sé ekki ánægt í vinnu, hafi orðið fyrir einhvers konar
áfalli, verið undir miklu álagi í langan tíma og sé óánægt
með viðmót í heilbrigðiskerfinu.
Það að konur eru í meirihluta þeirra sem þjást af
síþreytu og vefjagigt orsakast hugsanlega af þáttum sem
eru mismunandi hjá kynjunum og gera konur móttæki-
legri fyrir þessum einkennum. Þessir þættir eru til dæmis
streitu- og kynhormón, kynjahlutverk og líkamleg bygging.
Kynhormón hafa áhrif á sársaukaskynjun og tíðahringur-
inn hefur áhrif á sársaukanæmi. Konur, hugsanlega af
þróunarfræðilegum orsökum, eru næmari fyrir sársauka í
kviðarholi en karlar. Það getur hugsanlega skýrt af hverju
fleiri konur en karlar greinast með heilkenni ristilertingar
(irritable bowel syndrome) en það er röskun sem er um
margt lík síþreytu og vefjagigt. Þá verða konur oftar fórn-
arlömb kynferðislegar misnotkunar og ofbeldis og áföll af
þessum völdum gera konur hugsanlega næmari fyrir sárs-
auka. Barnsburður, sem getur verið mjög streituvaldandi,
kann einnig að hafa svipuð áhrif. Það er einnig mögulegt
að mismunurinn milli kynja skýrist af einhverju leyti af
því að karlar leiti sér síður aðstoðar vegna vanda af þessu
tagi.
Þeir sem trúa því að síþreyta og vefjagigt séu sjúkdóm-
ar sem orsakist af t.d. vefjaskaða eða veirusýkingu eygja
ekki jafn góðar batahorfur og þeir sem eru reiðubúnir að
íhuga aðrar orsakir. Það er engin lækning til við síþreytu
og vefjagigt en aftur á móti getur fólk tekið stjórnina að
hluta til í sínar hendur og dregið mikið úr áhrifum þessara
raskana á daglegt líf. Með því að tjá sig um áföll og vanlíð-
an, læra að bregðast betur við streitu, hreyfa sig hæfilega
og hvíla sig rétt er hægt að hafa mikil áhrif á og draga
úr einkennum. Einnig er mögulegt að nota lyf samhliða
þessháttar lífsstílsbreytingu og hefur það oft gefist vel.
Eggert Birgisson, cand. psych., sálfræðingur
Síþreyta og vefjagigt
Kynningarkvöld
þriðjudag og miðvikudag
kl. 20.00
Kynning á hinum heimsþekktu
náttúrulegu Dr.Hauschka snyrtivörum.
D H hk tif ði iti
VIÐ HJÁ
YGGDRASIL ERUM
Í SUMARSKAPI
OG GEFUM
10% AFSLÁTT
AF ÖLLUM VÖRUM,
MIÐVIKUDAGINN
30.ÁGÚST.
DR.HAUSCHKA
SNYRTIFRÆÐINGUR
VEITIR RÁÐGJÖF
KL. 13-18.
��������������
���������
��������������������������������
A
R
G
U
S
0
6
-0
3
5
0
�������������������� ������������������������� ��������
���
������������ �����
�����������������
Bailine vaxtarmótunarmeðferð
NÝTT á Íslandi
Eru línurnar vandamál ?
Við bjóðum þér upp á ÓKEYPIS PRUFUTÍMA í tölvustýrðu þjálfunartæki á
meðan þú liggur og slakar á í notalegu umhverfi.
Viltu grenna þig og minnka ummálið, nú hefur þú tækifærið.
Hringdu núna í síma 568 0510 og kynntu þér málið.
Þú hefur engu að tapa nema sentimetrum.
Vegmúli 2 108 Reykjavík sími 568 0510 www.bailine.is
Fyrir konur 18 ára og eldri.
www.svefn.is