Fréttablaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 48
29. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR12
VISSIR ÞÚ
... að lengsta stökk sem kvenkyns
skíðastökkvari hefur stokkið er 127,5
m? Það met setti hin norska Anette
Sagen í Ósló, 14. mars 2004.
... að Spánverjinn Francisco Peinado
Toledo hefur haldið á flestum tennis-
boltum? Hann hélt á 18 tennisbolt-
um í vinstri hendinni í tíu sekúndur
í Valencia á Spáni 18. september
2003.
... að AL Jabal er elsti sigurhestur í
veðhlaupi? Þessi hreinræktaði arab-
íski gæðingur var nítján vetra þegar
hann sigraði í Three Horseshoes-
veðhlaupinu (1.200 m langt) 9. júní
2002, en það var haldið var við Bar-
bury-kastala í Wiltshire á Englandi.
... að Meng „Rocketboy“ Yang frá
Kína hefur unnið hæstu peninga-
verðlaun sem nokkur hefur unnið
í tölvuleik? Hann fékk 8 milljónir
í sinn hlut þegar hann sigraði
Jonathan „Fatal1ty“ Wendell í
Fatal1ty-einvígi ACON- fyrirtækisins,
sem haldið var á Kínamúrnum 19.
október 2004.
... að Gloria Estefan á sölumet
latínó-söngkonu? Samkvæmt
upplýsingum frá útgáfufyrirtæki
söngkonunnar hefur henni tekist að
selja yfir sjötíu milljónir eintaka af
plötum sínum. Átta plötur hennar
hafa náð gullsölu í Bandaríkjunum,
þar af hafa fjórar farið í yfir þriggja
milljóna markið.
SJÓNARHORN
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra tilheyrir hinu virta Hrútakofafélagi í Kópavogslaug. Pottfélagar ráðherrans og nú formanns Framsóknarflokksins afhentu Jóni á dögunum
lopasokka og gúmmítúttur fyrir smalamennsku vetrarins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Grótta er í raun eyja sem tengd er
við land af mjóum granda sem fer á
kaf á flóði.
Strönd eyjarinnar hefur að mestu
verið hlaðin upp vegna landsigs og
er hún því eins og grunn skál. Vegna
fuglaverndunar er óheimilt að fara
um svæðið frá 1. maí til 1. júlí en
eyjan var friðlýst árið 1974.
Eyjan er vel gróin og gróskuleg
þrátt fyrir fábreytt gróðurlendi og
tiltölulega fáar tegundir. Auðugt
og fjölbreytilegt fuglalíf er í Gróttu.
Samkvæmt rannsóknum sem gerðar
voru 1986 eru um 450 kríupör í
Gróttu.
Viti fyrst reistur 1897 og þar bjó
lengi vitavörðurinn Albert Þorvarðar-
son (1910-1973), en Slysavarnar-
félagið á Nesinu heitir eftir honum.
EYJAN: GRÓTTA
MJÓDDINNI S: 557 1291
GLÆSIBÆ S: 553 7060
BORGARNESI S: 437 1240
Stærðir 40-46
verð kr: 3.995.-
Stærðir 36-41
verð kr: 9.695.-
Stærðir 37-40.1/2
verð kr: 9.995.-
Stærðir 36-41
verð kr: 4.545.-
Stærðir 40-46
verð kr: 3.995.-
SKÓR
Allar nýjustu upplýsingar
og fréttir á ensku á
vefnum reykjavik.com og
í blaðinu Reykjavikmag.
Allt um allt sem skiptir máli í Reykjavík