Fréttablaðið - 29.08.2006, Side 66
42 29. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Danski sóknarmaðurinn Allan Dyring
lofaði stuðningsmönnum FH þegar hann
samdi við félagið í vor að hann
myndi verða duglegur að skora
og leggja upp mörk fyrir liðið
í sumar. Annað hefur komið
á daginn og var það fyrst
á sunnudag sem hann
skoraði sitt fyrsta mark
fyrir félagið. Það kom á
lokasekúndunum gegn
Breiðabliki og náði hann
með markinu að tryggja
sínum mönnum eitt stig
úr leiknum.
„Það var mjög ljúft að
ná loksins að skora,”
sagði Dyring við Frétta-
blaðið í gær. „Ég hef þar
að auki ekki spilað mikið að undanförnu
þannig að það hefur reynst sérstaklega
erfitt að ná að brjóta þennan ís. Það
getur verið mjög erfitt fyrir framherja að
skora ekki. Fyrst tekst það ekki í einum
leik, svo næsta og þannig koll af kolli.
Og alltaf fer sjálfstraustið. Sem framherji
verður maður að skora reglu-
lega og á þetta líka við
um mig.”
Hann segir þó að
sjálfstraustið hafi farið
vaxandi á síðustu tveim-
ur vikum eftir gott gengi á
æfingum. „Mér fannst að það
væri eitthvað á leiðinni hjá mér,”
sagði Dyring, sem bætti við að þó
svo að það hefði verið gott fyrir hann
persónulega að skora mark FH gegn
Breiðablik hafi markið verið afar mikil-
vægt fyrir liðið. „Öll mörk á þessu stigi
tímabilsins eru mikilvæg og eftir þetta
jafntefli þurfum við bara einn sigur til að
tryggja okkur titilinn. Vonandi gerist það
strax í næsta leik en það verður mjög erf-
itt að mæta liði ÍBV sem er vitanlega að
berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Þeir eru
í fallbaráttu eins og Breiðablik og gekk
okkur illa að skora á móti þeim.”
Hann neitar því ekki að lið FH hefur ekki
verið að sýna sitt besta að undanförnu.
„Í síðustu fjórum leikjum höfum við ekki
staðið okkur vel og ekki spilað sem eitt
lið. Kannski erum við einum of meðvit-
aðir um hversu lítið er eftir af mótinu.
Vonandi náum við að sigra næsta leik og
vonandi verð ég í byrjunarliðinu og næ
að skora fleiri mörk.”
FRAMHERJINN ALLAN DYRING: BRAUT LOKSINS ÍSINN Á LOKASEKÚNDUM LEIKS FH OG BREIÐABLIKS
Sjálfstraustið minnkaði með hverjum leik
FÓTBOLTI Röndóttu Reykjavíkurlið-
in Þróttur og KR leika í kvöld um
það hvort liðið kemst í úrslit í VISA-
bikarkeppni karla í knattspyrnu.
Þróttur er sem stendur í fjórða sæti
1. deildar og á ekki lengur mögu-
leika á að komast upp í úrvalsdeild-
ina en KR er í 2. sæti úrvalsdeildar.
Stuðningsmenn liðanna ætla að
gera sér glaðan dag og fara saman
á völlinn undir slagorðinu „Stönd-
um saman í aðra röndina“. Boðið
verður til veislu í Þróttaraheimil-
inu kl. 18:00 þar sem KR-ingum er
velkomið að koma og þaðan er stutt
að fara á völlinn. Leikurinn hefst
kl. 20:00 á Laugardalsvellinum.
Þróttarar hafa spilað þrjá leiki í
bikarnum til þessa og alla á heima-
velli. Í 32 liða úrslitum fengu þeir
Víking frá Ólafsvík í heimsókn og
unnu 3-1 og því næst mættu þeir
HK á Valbjarnarvelli og báru þar 2-
1 sigur úr býtum. Í 8 liða úrslitum
fengu Þróttarar úrvalsdeildarlið
Grindavíkur í heimsókn og aftur
urðu lokatölur 2-1.
KR-ingar hafa ekki verið neitt
allt of sannfærandi í bikarleikjum
sínum á þessu sumri. Í 16 liða úrslit-
um fóru þeir á Reykjanesið og
mættu Njarðvík. Niðurstaðan varð
1-0 sigur og í 8 liða úrslitum fengu
KR-ingar leikmenn ÍBV í heimsókn
í Vesturbæinn. Staðan eftir venju-
legan leiktíma var 1-1 en KR hafði
betur í vítaspyrnukeppni.
„Við erum í góðu formi og erum
búnir að vera að spila bara ansi
vel,“ sagði Teitur Þórðarson, þjálf-
ari KR. Hann sagði að vanmat
kæmi ekki til greina þó Þróttur
væri deild neðar. „Ég er búinn að
sjá marga leiki með þeim í sumar
og veit að þetta verður alls ekki
auðvelt,“ bætti Teitur við.
„Það er margt sem þessi tvö lið
eiga sameiginlegt og þessi leikur
leggst bara vel í mig,“ sagði
Eysteinn Pétur Lárusson, fyrirliði
Þróttar, um leikinn. Þróttarar
stefndu á sæti í úrvalsdeildinni í
sumar en það tókst ekki. „Við ætl-
uðum okkur meiri hluti í deildinni í
sumar en nú er það bara bikarinn
sem menn einblína á og það væri
frábært að komast alla leið í úrslit,“
sagði Eysteinn að lokum.
dagur@frettabladid.is
Slagur þeirra röndóttu
Seinni undanúrslitaleikurinn í VISA-bikar karla fer fram í kvöld þegar Reykja-
víkurliðin Þróttur og KR mætast. Leikurinn fer fram á Laugardalsvellinum.
ATLI EÐVALDSSON Maðurinn sem gerði KR að Íslandsmeisturum eftir tæplega fjögurra
áratuga bið á eflaust einhverja ása uppi í erminni gegn sínu gamla félagi í kvöld.
GOLF Atvinnukylfingurinn Birgir
Leifur Hafþórsson tók stórt stökk
upp á við á peningalista Áskor-
endamótaraðar Evrópu eftir þann
góða árangur sem hann náði í Dan-
mörku um helgina. Hann varð í
fimmta sæti á mótinu, sem fór
fram í Óðinsvéum, og fékk fyrir
vikið um hálfa milljón króna í
verðlauna fé. Hefur hann því
þénað samtals 1,3 milljónir króna
og er í 81. sæti listans en var í 118.
sæti fyrir helgina. Í fyrra endaði
hann í 85. sæti en fimm mót eru
eftir á tímabilinu og ætlar hann að
taka þátt í þeim öllum. - esá
Birgir Leifur Hafþórsson:
Þaut upp pen-
ingalistann
BIRGIR LEIFUR Spilaði frábært golf um
helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
> Stórsigur gegn Noregi
Íslenska landsliðið í körfuknattleik var
ekki í neinum vandræðum með frændur
vora Norðmenn í vináttuleik sem fram
fór í Dublin því leiknum lyktaði með 26
stiga sigri Íslands, 79-
53. Ísland kláraði leik-
inn í fyrsta leikhluta
en eftir hann var
staðan 30-5 og
eftirleikurinn því
auðveldur. Jón
Arnór Stefáns-
son var stiga-
hæstur með 28
stig og Brenton
Birmingham kom
næstur með 14.
Hlynur Bæringsson
skoraði 10 stig.
Að verða uppselt
Þeim áhugamönnum um knattspyrnu
sem vilja sjá leik Íslands og Danmerkur
í upphafi mánaðarins er bent á að drífa
sig inn á síðuna midi.is en aðeins örfáir
miðar eru eftir á leikinn og líklega verð-
ur orðið uppselt í lok dagsins.
KÖRFUBOLTI Steinar Kaldal, fyrir-
liði körfuboltaliðs KR síðustu þrjú
tímabil, hefur ákveðið að taka sér
frí frá spilamennsku í vetur vegna
anna. Hann hefur þó ekki sagt
skilið við boltann og stefnir á að
koma tvíefldur til baka síðar, auk
þess sem hann mun að einhverju
leyti sinna öðrum hliðum boltans í
vetur.
„Ég mun að öllum líkindum
þjálfa kvennalið Ármanns/Þróttar.
Í liðinu eru stelpur sem vilja fyrst
og fremst hafa gaman af þessu og
vantar einhvern til að halda utan
um þetta fyrir þær. Svo verð ég
vitanlega áfram skráður í KR og
verð í kringum liðið í vetur. Ég
mun sitja á bekknum í leikjum og
kíkja á nokkrar æfingar.“
Steinar segir ákvörðunina hafa
verið erfiða. „Ég sá fram á að
sinna engu öðru en vinnunni og
körfuboltanum alla daga og það
varð eitthvað að víkja. Ég hef allt-
af verið í boltanum af lífi og sál og
fann þegar við byrjuðum að æfa í
sumar að ég var ekki nógu vel
stemmdur. Þá ákvað ég að ég að
það væri best að hvíla sig og finna
aftur hungrið,“ sagði Steinar, sem
hefur verið í körfuboltadeild KR
undanfarin sautján ár. „Lengur en
nokkur leikmaður, stjórnarmaður
eða þjálfari,“ sagði hann í léttum
dúr.
Steinar segir þó spennandi
tímabil fram undan hjá KR-ingum
en nýr þjálfari er tekinn við liðinu,
Benedikt Guðmundsson, sem síð-
ast þjálfaði lið Fjölnis. „Það ríkja
miklar væntingar hjá strákunum
fyrir tímabilið og vona ég að menn
nái að lyfta dollunni í vor þó að
það verði einhver annar en ég. Ég
hef mikla trú á Benna og tel að
liðið muni gera góða hluti undir
hans stjórn.“ - esá
STEINAR KALDAL Spilar ekki með KR í
vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Steinar Kaldal, fyrirliði körfuboltaliðs KR síðustu þrjú ár:
Tekur sér frí frá boltanum í vetur
FÓTBOLTI Kevin Davies, leikmaður
Bolton, spilar ekki knattspyrnu
næstu sex vikurnar þar sem hann
er með kinnbeinsbrotinn eftir oln-
bogaskot frá Hermanni Hreiðars-
syni um síðustu helgi. Hermann
fékk rautt spjald fyrir brotið.
„Þetta eru skelfileg tíðindi fyrir
Kevin og liðið í heild sinni. Ég finn
til með stráknum og það er ljóst að
hann nýtur ekki nægrar verndar
hjá dómurum í deildinni,“ sagði
Sam Allardyce, stjóri Bolton, en
Davies fékk sjálfur að líta rauða
spjaldið síðar í leiknum. - hbg
Hermann Hreiðarsson:
Kinnbeins-
braut Davies
KEVIN DAVIES Brotinn eftir viðskipti við
Hermann Hreiðarsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Alls óvíst er hvað verður
um Garðar Jóhannsson sem er nú
staddur í Noregi eftir að hann
skrifaði undir þriggja og hálfs
árs samning við norska úrvals-
deildarliðið Fredrikstad. Norska
knattspyrnusambandið hefur
ekki samþykkt félagaskipti hans
þar sem Garðar hefur þegar leik-
ið með tveimur liðum frá 1. júlí
síðastliðnum og samkvæmt regl-
um FIFA þyrfti hann því að bíða
til 1. júlí 2007 til að verða lögleg-
ur í leik með Fredrikstad. Garðar
tók þátt í tveimur leikjum með
KR í júlí og lék samtals í þeim 83
mínútur. Hann gekk til liðs við
Val hinn 22. júlí.
Garðar sagði við Fréttablaðið í
gær að mál hans væru enn í lausu
lofti og að það hefði heldur ekk-
ert verið rætt hver örlög hans
yrðu ef félagaskiptin verða ekki
samþykkt. „Ég veit ekki hvort
samningurinn gangi til baka,“
sagði Garðar en þó er líklegt að
hann komi til Íslands um helgina
og klári tímabilið með Val ef FIFA
veitir máli hans ekki undanþágu.
Heimildir Fredrikstad Blad
herma að Garðar hafi kostað
norska félagið 22 milljónir
króna og samkvæmt reglum KSÍ
er hlutur KR af þeirri sölu um
fimmtán milljónir króna en hlut-
ur Vals sjö milljónir. - esá
Örlagaríkar 83 mínútur sem Garðar Jóhannsson spilaði með KR í júlí:
Verða Valur og KR af 22 milljónum króna?
LA
ND
SB
AN
KA
DE
IL
DI
N
FÓTBOLTI Hvorki Christian
Christiansen né Peter Gravesen
voru með Fylkismönnum gegn Val
á sunnudag en þeir eiga báðir við
meiðsli að stríða. „Það er óvíst
hvort Peter verði eitthvað meira
með í sumar og yrði það bara
bónus ef hann gæti eitthvað meira
spilað en Christian hefur nú rúma
viku til að ná sér og það er vonandi
að hann geri það,“ sagði Leifur
Garðarsson, þjálfari Fylkis.
Fylkismenn mæta Keflavík á
útivelli í næsta leik en liðið er
aðeins tveimur stigum frá fall-
sæti og þarf nauðsynlega á öllum
sínum mönnum að halda til að
afstýra frekari fallbaráttu. - esá
Danirnir í Fylki:
Báðir meiddir