Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 16.09.2006, Qupperneq 4
4 16. september 2006 LAUGARDAGUR VÍMUEFNI Vímuefni Þórarinn Tyrf- ingsson, yfirlæknir á vímuefna- sjúkrahúsi SÁÁ á Vogi, kallar eftir hugarfarsbreytingu hjá stjórn- völdum vegna vímuefnavanda, sem sífellt verði að stærra samfé- lagslegu vanda- máli. Fullorðið fólk sækir að sögn Þórarins í vaxandi mæli í meðferð vegna áfengisvanda en neysla hreins áfengis hefur aukist um meira en 35 prósent síðan árið 1993. Þá var fjöldi nýtil- fella hjá fólki með amfetamínfíkn í fyrra sá hæsti sem mælst hefur síðan 1994. „Eina svar stjórnvalda, og þá sérstaklega heilbrigðisráðuneyt- isins, við því gríðarlega vaxandi heilbrigðisvandamáli sem við blasir er að reyna eftir fremsta megni að lækka kostnað við með- ferðir,“ segir Þórarinn. Hann telur að heilbrigðisráðuneytið verði að marka sér skýrari stefnu sem miði að því að viðurkenna kjarna vand- ans, sem Þórar- inn segir að sé almennur og djúpstæður, frekar en að halda honum í skefjum með lág- marksáreynslu. „Allar upplýsing- ar sem við tökum saman og vinn- um úr benda til þess að neysla vímuefna sé að aukast mikið. Þetta er samfélagslegt vandamál sem verður að bregðast við og það er ekki rétta leiðin að leita sífellt leiða til þess að spara í þessum málaflokki.“ Davíð Á. Gunnarsson, ráðu- neytisstjóri í heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu, segir unnið markvisst að því innan ráðuneyt- isins að efla forvarnarstarf. „Sam- starf okkar við SÁÁ hefur verið gott. Það er, eðli málsins sam- kvæmt, eðlilegt að ráðuneytið reyni að finna sem ódýrastar og hagkvæmastar lausnir á sviði vímuefnamála. Aðalatriðið í þess- um málum er að reyna að koma í veg fyrir neyslu vímuefna og vinna verður af fullum krafti að forvarnarstarfinu. Það hefur verið erfitt að ná niðurstöðu um samn- inga við SÁÁ á þessu ári, en sam- starfið hefur verið gott og ég trúi því að svo verði áfram.“ Þórarinn vonast til þess að stjórnvöld bregðist við vandanum með ábyrgðarfullum hætti. „Þegar allur vandinn sem tengist áfengis- og vímuefnaneyslu er skoðaður heildstætt og metinn út frá þeim upplýsingum sem liggja fyrir er alveg ljóst að stjórnvöld verða að endurskoða fjárframlög og nálgun að vandanum í öllum grundvallar- atriðum.“ Ekki náðist í Siv Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra í gær. magnush@frettabladid.is GENGIÐ 15.9.2006 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 23,0054 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 70,15 70,49 132,02 132,66 88,97 89,47 11,923 11,993 10,742 10,806 9,633 9,689 0,5966 0,6000 103,67 104,29 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Ellefu börn úr Breiðholti voru flutt á lögreglustöð í fyrrakvöld þar sem þau voru úti eftir lögbundinn útivistartíma. Foreldrar og forráðamenn barnanna voru látnir sækja börnin sín. LÖGREGLUFRÉTTIR Börn flutt á lögreglustöð Segir stjórnvöld vanmáttug gegn vímuefnavandanum Þórarinn Tyrfingsson segir áfengis- og vímuefnavanda sífellt vera að aukast. Nauðsynlegt er að nálgun að vandanum verði endurskoðuð, segir Þórarinn. Fullorðið fólk kemur í auknum mæli í áfengismeðferð. SJÚKLINGAR Á VOGI Þórarinn Tyrfingsson segir stjórnvöld þurfa að taka vímuefna- vanda í samfélaginu miklu fastari tökum. Vogur er fullkomnasta alhliða vímuefna- meðferðarsjúkrahús landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Allar upplýsingar sem við tökum saman og vinnum úr benda til þess að neysla vímuefna sé að aukast mikið. ÞÓRARINN TYRFINGSSON YFIRLÆKNIR Á VOGI Í Fréttablaðinu í gær var sagt frá því að öll börn á leikskólanum Geisla- baug væru send heim kl. 14.00 vegna manneklu. Hið rétta er að deildirnar skiptast á um að loka kl. 14.00 og er beðist velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTTING 7 6 5 4 3 2 1 0 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 700 600 500 400 300 200 100 0 4,6 4,7 4,8 4,9 5,2 5,5 5,9 6,2 6,3 6,4 6,4 6,7 7,1 190 389 491 400 520 581 ÁFENGISNEYSLA Á HVERN ÍBÚA, 15 ÁRA OG ELDRI (LÍTRAR) FJÖLDI AMFETAMÍNFÍKLA Á VOGI lít ra r fjö ld i LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja- vík hefur fjársöfnun Félags fátækra barna á Íslandi til rann- sóknar, vegna gruns um hugsan- leg fjársvik vegna söfnunarinnar. Félagið hefur áður komið við sögu lögreglu vegna ólöglegrar söfn- unar en ekki er talið að um miklar fjárhæðir sé að ræða. Formleg kvörtun barst frá samtökunum SOS barnaþorpum til lögreglunnar fyrr í vikunni sem í kjölfarið tók málið til athug- unar. Að sögn varðstjóra í lög- reglunni í Reykjavík hefur félag- ið ekki tilskilin leyfi til fjársöfnunar. Samkvæmt lögum um fjársafnanir þurfa öll félög, sem ætla sér að safna fé, að til- kynna til lögreglustjóra um fjár- söfnunina áður en hún hefst. Að auki þarf félagið að halda bók- hald vegna kostnaðar og tekna sem hlýst af fjársöfnunum af þessu tagi. Greiðsluseðlar, sem Frétta- blaðið hefur undir höndum, hafa verið sendir út á fólk sem sam- þykkti að styrkja félagið með umsömdu fjárframlagi. Ekki náðist í forsvarsmenn félagsins í gær en enginn var til svars í síma sem gefinn var upp á greiðsluseðlum sem sendir hafa verið til fólks í tengslum við söfn- unina. - mh Lögreglan hefur fjársöfnun Félags fátækra barna á Íslandi til rannsóknar: Óeðlileg fjársöfnun skoðuð LÖGREGLAN Lögreglunni hafa borist kvartanir vegna fjársöfnunar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN DANMÖRK, AP Styttan af litlu hafmeyjunni í Kaupmannahöfn hefur eignast systur. Listamaður- inn Bjørn Nørgaard segir hana vera „erfðabreytt afbrigði“ af eldri styttunni. Hún situr á steini eins og upprunalega styttan, en útlimir hennar eru yfirdrifið langir og snúnir, svo og yfirbragð hennar allt. Prins Henrik stjórnaði afhjúpun styttunnar í gær, en hún er í um 400 metra fjarlægð frá styttu Edvards Eriksen sem komið var fyrir í höfninni árið 1913. Nørgaard er best þekktur fyrir sýningu sem hann hélt árið 1970, þegar hann lét slátra hesti, sauð hluta skrokksins niður í 112 krukkur og sýndi. - smk Kaupmannahöfn: Litla hafmeyjan eignast systur NÝ HAFMEYJA Líkist systur sinni – og þó? FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Tveir menn voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Norður- lands eystra fyrir brot á fíkni- efnalögum. Lögregla hafði fundið hjá þeim allnokkuð af hassi þegar hún stöðvaði bíl þeirra. Mennirnir sem báðir eiga sakaferil að baki játuðu brot sín fyrir dómi. Annar þeirra var dæmdur í 30 daga fangelsi. Hinn var dæmdur til að greiða 90 þúsund króna sekt til ríkissjóðs og komi átta daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna. Enginn sakarkostnaður varð af rekstri málsins. - jss Norðurland eystra: Tveir dæmdir fyrir fíkniefni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.