Fréttablaðið - 16.09.2006, Qupperneq 6
6 16. september 2006 LAUGARDAGUR
KJÖRKASSINN
Þekkir þú einhvern sem hefur
þurft að kljást við spilafíkn?
Já 48%
Nei 52%
Keyrir þú alltaf á löglegum
hraða?
Segðu skoðun þína á visir.is
HEILBRIGÐISMÁL Stjórnarnefnd
Landspítala - háskólasjúkrahúss
vísar stóryrðum aðalfundar
Læknafélags Íslands um stjórn-
endur LSH á bug, að því er fram
kemur í ályktun frá nefndinni.
Formaður læknafélagsins vísar
ályktun stjórnarnefndar til föður-
húsanna.
Stjórnarnefndin lýsir yfir undr-
un á ályktunum læknafélagsins
sem samþykktar voru á aðalfundi
þess nýlega um starfsemi sjúkra-
hússins og framtíðaruppbyggingu.
Stjórnarnefndin lýsir yfir fullum
stuðningi við stjórnendur spítal-
ans í vandasömum verkefnum.
„Einnig vekur furðu að Lækna-
félag Íslands gangi gegn ítrekuð-
um samþykktum læknaráðs,
hjúkrunarráðs og starfsmanna-
ráðs LSH um nauðsyn þess að
reisa nýtt háskólasjúkrahús,“
segir stjórnarnefndin. „Aðalfund-
ur læknaráðs LSH áréttaði í maí
síðastliðnum hversu þýðingarmik-
ið það er fyrir þjóðina að byggja
nýjan spítala sem fyrst svo unnt
verði að ljúka sameiningu sjúkra-
húsanna í Reykjavík á einum stað,
enda leiði það til betri þjónustu og
hagræðingar í rekstri. Undir þau
sjónarmið tekur stjórnarnefnd
heilshugar og hvetur alla starfs-
menn og stjórnendur LSH til þess
að standa áfram saman að upp-
byggingu háskólasjúkrahússins.“
„Það eru staðlausir stafir að
halda því fram að Læknafélag
Íslands hafi á einhvern hátt dregið
úr nauðsyn þess að reist verði nýtt
háskólasjúkrahús,“ segir Sigur-
björn Sveinsson, formaður LÍ.
„Áður en stjórnarnefndin ályktar
um málefni aðalfundar Læknafé-
lags Íslands aftur, ráðlegg ég
henni að kynna sér ályktanir þær
sem samþykktar voru á aðalfund-
inum, en það virðist hún alls ekki
hafa gert.“
Spurður um tilefni stjórnar-
nefndarinnar til að vísa stóryrð-
um LÍ um stjórnendur Landspítala
á bug segir Sigurbjörn að aðal-
fundurinn hefði aldrei ályktað
með neinum stóryrðum, þótt þau
hafi verið í greinargerð flutnings-
manna með tillögum.
„Í þessari ályktun stjórnar-
nefndarinnar tel ég að felist mjög
gróf ónákvæmni, þótt ekki sé dýpra
í árinni tekið,“ segir Sigurbjörn og
bætir við að stjórnarnefndin sé
valdalaus stofnun samkvæmt
lögum. Völd hennar verði ennþá
minni með því að „gefa út þessa
staðlausu stafi“. jss@frettabladid.is
Það eru staðlausir staf-
ir að halda því fram að
Læknafélag Íslands hafi á ein-
hvern hátt dregið úr
nauðsyn þess að reist
verði nýtt háskóla-
sjúkrahús.
SIGURBJÖRN SVEINSSON
FORMAÐUR LÍ
LANDSPÍTALI Stjórnarnefnd LSH og formann Læknafélags Íslands greinir á um hvað
hafi verið sagt og skrifað um nauðsyn nýs háskólasjúkrahúss.
Sakar stjórnarnefnd
um staðlausa stafi
Harðar skeytasendingar ganga milli stjórnarnefndar Landspítala - háskólasjúkra-
húss og formanns Læknafélags Íslands. Nefndin vísar stóryrðum aðalfundar fé-
lagsins um stjórnendur á bug. Formaðurinn sendir þá ályktun til föðurhúsanna.
Tonn af kókaíni
Tollverðir á alþjóðaflugvellinum í
Karakas fundu eitt tonn af kókaíni á
miðvikudaginn, en því átti að smygla
til Evrópu. Líklegt þykir að kókið sé
kólumbískt.
VENESÚELA
AKUREYRI Pétur Tryggvason, trún-
aðarmaður starfsmanna slökkvi-
liðs Akureyrar, sagði það ekki
vera neitt launungarmál að ákveð-
ið ósætti hefði verið meðal starfs-
manna með störf Erlings Þórs
Júlínussonar, fyrrverandi slökkvi-
liðsstjóra, en hann tilkynnti upp-
sögn sína á fimmtudaginn. Hann
vildi þó ekki tjá sig um eðli ágrein-
ingsins að öðru leyti en að sumar
áherslur sem Erling hefði innleitt
hefðu einfaldlega ekki virkað.
Hann tók þó fram að þessi ágrein-
ingur væri faglegur og hefði ekk-
ert með persónu slökkviliðsstjór-
ans fyrrverandi að gera.
Erling segir uppsögnina ekki
tengjast neinu ósætti heldur sé hún
tilkomin vegna breytinga á hans
persónulegu högum. „Ég fann ekki
fyrir ósætti umfram það sem eðli-
legt getur talist. Það er nú samt
þannig á stórum vinnustað að skoð-
anir og álit á því hvernig eigi að
gera hlutina eru skiptar. En það
hafði ekki nein áhrif á ákvörðun
mína.“ Þó að uppsögnin hafi verið
tilkynnt starfsmönnum á fimmtu-
daginn þá segir Erling hana hafa
átt sér lengri aðdraganda. Í sam-
þykkt framkvæmdaráðs Akureyr-
ar frá því í gærmorgun voru honum
þökkuð störf í þágu bæjarins. Ingi-
mar Eydal, aðstoðarslökkviliðs-
stjóri, tekur við starfinu á meðan
þar til nýr slökkviliðsstjóri verður
ráðinn. - þsj
Slökkviliðsstjóri Akureyrar segir starfi sínu lausu:
Engin óeðlilegur ágreiningur
ERLING ÞÓR JÚLÍNUSSON Fráfarandi slökkviliðsstjóri Akureyrar segist láta af störfum
vegna persónulegra ástæðna.
BRUNI Ómar Tómasson, eigandi
Bílakjallarans við Stapahraun í
Hafnarfirði, segir eldsvoða sem
varð hjá fyrirtækinu mikið áfall, en
mikill eldur braust út á lóð Bíla-
kjallarans á fimmtudagskvöld.
„Þarna eru náttúrulega 13 bílar
sem brenna. Þetta voru bílar að
árgerð 1999 til 2005 sem ekkert var
búið að hirða úr.“ Auk bílanna sem
brunnu komst eldur í tvo gáma á
svæðinu. Ómar segir að í gámunum
hafi verið geymdir ýmsir varahlut-
ir, timbur og glænýtt byggingar-
efni. Því sé ljóst að um töluvert tjón
sé að ræða. Ómar telur líklegast að
íkveikja hafi orsakað eldsupptökin.
„Ég get ekki séð annað. Þessir bílar
voru hvorki með rafmagn né annað
slíkt sem hefur einhvern kveiki-
búnað í sér.“ Að hans sögn setur
eldsvoði sem þessi önnur hús í
nágrenninu í stórhættu.
Allt tiltækt lið Slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins var kallað út og
að þess sögn gekk nokkuð greið-
lega að einangra og slökkva eldinn.
Lögreglan í Hafnarfirði segir ekk-
ert staðfest liggja fyrir um eld-
supptök en svæðið sé ógirt og hver
sem er gæti í rauninni gengið þar
inn og athafnað sig að vild. Þar sem
eldurinn tók sig upp í ónýtum bíl-
hræjum sé því ekki hægt að útiloka
að um íkveikju hafi verið um að
ræða. Málið er í rannsókn. - þsj
Eldsvoði í Hafnarfirði:
Grunur um íkveikju
BILHRÆ Í LOGUM Eldur kviknaði á svæði bílakjallarans við stapahraun í Hafnarfirði á
fimmtudag. Auk þrettán bíla sem brunnu barst eldur í tvo gáma.
BRUSSEL, AP Evrópusambandið
lýsti í gær yfir stuðningi við áform
um nýja stjórn Palestínumanna.
Utanríkisráðherra Finnlands,
Erkki Tuomioja, sagði að Abbas,
forseti palestínsku heimastjórnar-
innar, hefði fullvissað embættis-
menn ESB um að ný stjórn myndi
vinna að friði í Palestínu.
Evrópusambandið krafðist þess
ekki að gengið yrði að þremur
meginkröfum Ísraelsmanna; að
stjórnin viðurkenni Ísraelsríki,
fordæmi ofbeldi og samþykki eldri
friðarsamninga. - kóþ
Væntanleg stjórn Palestínu:
ESB lýsir yfir
stuðningi
EFNAHAGSMÁL Árni Mathiesen
fjármálaráðherra segir að
ákvarðanir um stýrivexti séu
erfiðar. „Ég efast ekkert um að
Seðlabankinn reyni að taka
þessar ákvarðanir eftir bestu
samvisku,“ segir hann og telur
hæpið að túlka stýrivaxtahækk-
unina nú sem vantrú á samkomu-
lagið á vinnumarkaði í sumar.
„Þessi ákvörðun er í samræmi við
það sem Seðlabankinn hefur verið
að segja. Hann hefur sagst geta
farið ansi hátt með vextina og það
skiptir máli að hann haldi sínum
trúverðugleika. Það er því út af
fyrir sig hæpið að draga þessa
ályktun.“ - ghs
Ráðherra um Seðlabankann:
Haldi trúverð-
ugleika sínum
FJÁRMÁLARÁÐHERRA „Þessi ákvörðun
er í samræmi við það sem Seðlabank-
inn hefur verið að segja,“ segir Árni
Mathiesen fjármálaráðherra um stýri-
vaxtahækkunina.
Konur til lýðræðis
Leikkonan Jane Fonda átti óvænta
aðkomu að sænsku kosningunum í
gær þegar hún hvatti kjósendur til að
velja Femínistaflokkinn. Fonda telur
að þannig megi þoka heiminum nær
lýðræði og fjær feðraveldi.
SVÍÞJÓÐ