Fréttablaðið - 16.09.2006, Síða 22

Fréttablaðið - 16.09.2006, Síða 22
22 16. september 2006 LAUGARDAGUR ■ FÖSTUDAGUR, 8. SEPTEMBER Einsetumaður Í dag fækkaði á heimilinu. Fyrst stakk Sólveig af og lagði af stað til London að mæta í brúðkaups- veislu hjá vinum okkar Phoebe og Kjartani. Ég var heima að gæta bús en engra barna því að börnin fóru í helgarfrí til Dagnýjar í Hafnar- firði. Loks fór Krummi út að skemmta sér og ég sat eftir aleinn með kött- unum sem eru skemmtanasjúkir. Þeir mjálmuðu sáran og vildu líka fara út á lífið, en ég beitti hús- bóndavaldi og sagði að þeir færu ekki fet. Þá lágu ekki önnur verkefni fyrir en að skemmta sér. Ég velti því fyrir mér hvort ég ætti að taka fram litina mína og fara að mála eða setjast niður og horfa á sjón- varpið. Ég málaði fram á rauða nótt. ■ LAUGARDAGUR, 9. SEPTEMBER Argentínskur uppvaskari Í kvöld fórum við feðgar, Krummi og ég, út að borða á Argentínu. Það var ákaflega skemmtilegt og mat- urinn hreinasta afbragð. Krumma fannst samt hápunkt- ur kvöldsins vera þegar þjónninn kom með reikninginn og ég tók að leita að veskinu mínu í öllum vösum með vaxandi angist. Drengurinn skellihló þegar faðir hans stundi upp hinni alkunnu setningu: „Ég hef því miður gleymt veskinu mínu.“ Í stað þess að bregð- ast reiður við sagði yfir- þjónninn við mig glaður í bragði: „Mig hefur alltaf dreymt um þetta augnablik. Þú ert fyrsti mað- urinn sem segir þessa frægu setn- ingu við mig.“ Það þóttu mér notaleg viðbrögð svo að ég hætti við að bjóða fram son minn í uppvaskið og skaust heim eftir veskinu. ■ SUNNUDAGUR, 10. SEPTEMBER Veðurónæmi? Það er sjaldan sem náttúrunni tekst að gera sig verulega ljóta á svipinn. Þó tókst það í dag með suddarigningu, roki og úfnum skýjum. Sótti krakkana í Hafnarfjörð. Þau voru kát og glöð. Kannski börn séu ónæm fyrir veðri? ■ MÁNUDAGUR, 11. SEPTEMBER Með barn yfir læk Í dag eru fimm ár liðin frá hinum vitfirrtu morðárásum á Tvíbura- turnana. Ofsóknaræði hefur gripið um sig. Meira að segja hér á landi. Dómsmála- ráðherrann okkar tekur sorglegt ástand fársjúks vímu- efnaneytanda sem kærkomna sönnun þess að það vanti hér leyniþjónustu, en þessi aumingja sjúklingur fékk þá flugu í höf- uðið að gaman gæti verið að prófa að stinga mann með hnífi. Hvernig í ósköpunum á leyniþjónusta að fylgjast með því sem gerist í höfðinu á eitur- lyfjaneyt- endum? Og úr því að ég er farinn að minnast á ranghugmyndir og dómsmálaráðherrann er tilvalið að rifja upp það sem nú er að ger- ast í Noregi. Þar starfar nú opin- ber nefnd að því að fara ofan í saumana á Moen-málinu sem er frægasta dómsmorð seinni tíma í Noregi. Fritz Yngvar Moen var ástands- barn, sonur þýsks hermanns og norskrar konu, fæddur 1941. Hann var alvarlega fatlaður, næstum heyrnarlaus og hægri handleggur hans var lamaður. Hann var sak- laus dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að hafa myrt tvær konur, 1977 og 1978. Moen sat í fangelsi í rúm 18 ár. Hann lést í maí í fyrra. Í desember, hálfu ári eftir að Moen andaðist, játaði maður nokkur á banabeði að hann væri morðinginn. Fyrir atbeina blaðamanns og lögfræðings var Moen loks- ins sýknaður af öðru morðinu réttum 27 árum eftir að lögreglan handtók hann. Núna í júní var ákveðið að rétta aftur í seinna morðmálinu vegna þess að í ljós hefur komið að játning Moens á sínum tíma var fölsk játning, knúin fram af lögreglu og nú er upplýst hver var hinn raunverulegi morðingi. Því miður dó Moen áður en norskt réttarkerfi veitti honum uppreisn æru, en það ágæta kerfi allt saman undirgengst nú heilsu- samlega rannsókn. Íslenska réttarkerfið gæti lært ákveðna lexíu af þessari dapur- legu reynslu frænda okkar í Nor- egi, en í stað þess að horfast í augu við fortíðina og reyna að bæta fyrir alvarleg glappaskot er mest- ur áhugi á því hér á landi að sópa mistökum undir teppið, leyna upp- lýsingum og koma upp njósna- stofnunum og öryggisfangelsum. Dómsmorð eins og Geirfinns- málið fæst ekki endurupptekið, hversu svakaleg sem öll rannsókn og málatilbúnaður í því máli var. Í dómsmálaráðuneytinu er hugsan- lega litið á það mál sem„barn síns tíma“. Fyrir Fritz Moen kom yfirbót norskra yfirvalda of seint, en hér á landi eru fórnarlömb réttvísinn- ar í Geirfinnsmálinu enn á lífi. Í Noregi er uppi hreyfing sem vill reisa styttu af Fritz Moen fyrir utan norska dómsmálaráðuneytið til að áminna starfsmenn þess um skeikulleika kerfisins og mann- legan dómgreindarbrest. Það væri kannski ekki úr vegi að fjármála- ráðuneytið veitti fé til að mála fal- lega mynd af hinum sakfelldu í Geirfinnsmálinu til að hengja upp á vegg hjá dómsmálaráðherra – og mun ódýrara en skaffa honum peninga til að koma á fót njósna- starfsemi. Meðan dómsmálayfirvöld á Íslandi eru ófáanleg til að viður- kenna mistök er lítil von til að þeim sé trúað fyrir að reka leyni- þjónustu. Slíkum yfirvöldum er ekki treystandi fyrir barni yfir læk. ■ ÞRIÐJUDAGUR, 12. SEPTEMBER Blíður morgunn Fallegur morg- unn, tær birta. En morgunblíðan var of góð til að end- ast og suddinn náði yfirhendinni þegar leið á daginn. 12. sept- ember er merkisdagur í tónlistarsög- unni. Freymóð- ur Jóhannes- son var frægur stúkumaður sem einnig samdi vinsæl dægur- lög undir nafninu 12. september. Skyldi miðaldra stórtemplar geta orðið popp- stjarna í dag? Við Andri vorum að mála saman í kvöld, las sömu bókina fyrir litlu Sól þriðja kvöldið í röð. Það vill til að allar bækurnar um Lúlla eru meistaraverk og batna aðeins við endurtekningar, ekki síst „Lúlli og Gunna í Ævintýralandi“. ■ MIÐVIKUDAGUR, 13. SEPT. Leyniþjónustuskandall í Svíþjóð Nýr skandall skekur Svíþjóð. Leyni- eða öryggislögreglan þar, Säpo, er uppvís að því að hafa njósnað um – já njósnað um LÖG- REGLUNA, eða um samband sænskra lögreglumanna nánar til tekið. Fyrir utan að þessar njósnir eru svo heimskulegar að engum nema öryggislögreglunni hefði dottið í hug að stunda þær eru Svíar lítið hrifnir af því að Säpo sé með nefið ofan í starfsemi verka- lýðsfélaga – því að í Svíþjóð er félagafrelsi bundið í stjórnarskrá eins og reyndar víðar. Litla Sól var þung í skapi þegar hún kom heim úr leikskólanum og réði ekkert við sig fyrir frekju og stjórnsemi. Með fortölum gekk þetta kast sem betur fer yfir og kvöldsólin mín fór aftur að skína, en um tíma munaði mjóu að ég neyddist til að beita kylfum og táragasi á blessað barnið. ■ FIMMTUDAGUR, 14. SEPT. Rósin mín Sólveig kom náttúrlega færandi hendi frá útlandinu. Börnin fengu pakka og ég líka. Ég fékk geisla- disk sem ég hef lengi vonast eftir: Johnny Cash, American V, A Hundred Highways. Hvílíkur meistari! Svo spila ég vitanlega „Rose of My Heart“ fyrir konuna mína í kvöld. Dómsmorð Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá grasekkjumanni, skemmtanasjúkum köttum, arg- entínsku uppvaski og veðurónæmi. Einnig er rætt um kylfur og táragas sem uppeldistæki, dómsmorð í Noregi – og víðar – og loks spurt hvort yfirvöldum sé treystandi fyrir barni yfir læk. Kæra Dagbók Þráinn Bertelsson skrifar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.