Fréttablaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 36
[ ]mannlegi
þátturinn
m
an
nl
eg
i
þá
tt
ur
in
n
Stöðugar áhyggjur: Þú ert alltaf
með áhyggjur af fjölskyldunni eða
heilsunni og hrekkur við í hvert sinn
sem þú heyrir í sjúkrabíl. Maginn er
í hnút og þér líður eins og eitthvað
hræðilegt sé við það að gerast en þú
áttar þig ekki alveg á hvert vanda-
málið er.
Ótti og fælni: Þú ert kannski
hrædd(ur) við nálar, blóð, pöddur,
vatn, hunda - hvað um lofthræðslu,
flughræðslu, hræðslu við að lokast
inni í lyftu eða öðru þröngu rými?
Sviðsótti: Þú stirðnar upp í hvert sinn
sem þú þarft að taka próf, koma fram
fyrir fólk, eða keppa í íþróttum.
Ræðufælni: Þú verður óstyrk(ur) í
hvert sinn sem þú þarft að taka til
máls frammi fyrir hópi af fólki, vegna
þess að þú segir við þig: „Ég fer
ábyggilega að skjálfa og allir munu
sjá hvað ég er hrædd(ur).“
Feimni: Þú ert óörugg(ur) og
vandræðalegu(ur) innan um fólk af
því þú segir við þig: „Allir virðast svo
sjarmerandi og afslappaðir. En ég hef
ekkert áhugavert að segja. Fólk sér
örugglega hvað ég er feimin(n) og
vandræðaleg(ur).“
Kvíðaköst: Þú upplifir óvænt, skelfi-
leg kvíðaköst sem virðast koma eins
og þruma úr heiðskíru lofti. Meðan
á kastinu stendur færðu svima og
þungan hjartslátt og fingurnir dofna.
Þú segir kannski við sjálfa(n) þig: „Ég
hlýt að vera að fá hjartaáfall. Hvað ef
ég missi meðvitund og dey? Ég næ
ekki andanum! Hvað ef ég kafna?“
Víðáttufælni: Þú ert hrædd(ur) við
að fara ein(n)að heiman vegna þess
að þú heldur að eitthvað hræðilegt
muni gerast, þú fáir kannski kvíðakast
og enginn verði til að hjálpa þér.
Þráhyggja og árátta: Það sækja
sífellt á þig hugsanir sem þú getur
ekki losað þig við og áráttufull löngun
til ná tökum á hræðslu þinni með
hjátrúarlegum athöfnum. Til dæmis
ertu kannski ofsahrædd(ur) við sýkla
og gripin(n) óstjórnlegri löngun til að
þvo þér um hendurnar aftur og aftur
daginn á enda.
Áfallastreita: Minningar eða endur-
upplifanir skelfilegra atburða sækja
sífellt á þig, jafnvel mörgum mánuð-
um eða árum eftir að þeir gerðust.
Áhyggur af útlitinu: Þú ert algjör-
lega sannfærð(ur) um að eitthvað sé
ógeðslegt eða óeðlilegt við útlit þitt,
jafnvel þó að vinir þínir og ættingjar
fullyrði allir að þú lítir prýðilega út.
Þú heldur kannski að nefið á þér sé
vanskapað, þú sért að missa hárið
eða að þú sért ekki rétt vaxin(n).
Áhyggjur af heilsunni (hypochondri-
asis): Þú flakkar á milli lækna og
kvartar yfir verkjum, eymslum, þreytu,
svima eða öðrum sjúkdómseinkenn-
um. Þú ert handviss um að þú sért
með einhvern ægilegan sjúkdóm.
Kafli úr bókinni When Panic Attacks
eftir dr. David D. Burns (Random
House 2006).
Með góðri hjálp er hægt að komast
yfir kvíðann.
Vilbogi Einarsson fór margoft á bráða-
móttökuna en var ávallt vísað burt
með þau skilaboð að hann væri bara
stressaður og hysterískur. Hann var í
algjöru helvíti í margar vikur áður en
hann greindi sig sjálfur og leitaði sér
aðstoðar hjá sálfræðingi útí bæ.
Halla Helgadóttir kann betur en
flestir aðrir að forðast rauðu ljósin
í umferðinni, enda veit hún ekkert
óþægilegra en að vera föst í umferð-
inni. Halla hefur mjög góða reynsl-
unni af meðferðinni á Reykjalundi.
Auk Vilboga og Höllu heyrum
við í helstu sérfræðingum landsins í
meðferð á kvíða.
Mannlegi þátturinn er á dagskrá
NFS kl. 10 í dag, laugardag.
í dag
45 prósent þjóðarinnar eiga von á
að fá kvíðakast eða þjást af sjúk-
legum kvíða einhvern tímann á
ævinni. Margir vita ekki að þeir
eru með kvíðaröskun og enn fleiri
halda því leyndu. Fæstir vita að til
eru einfaldar og góðar aðferðir til
að losna undan kvíðanum og verða
betri en nokkru sinni fyrr. Fylgist
með athyglisverðri umræðu um
kvíða í Mannlega þættinum á NFS
í dag kl. 10.00.
Á vefsíðu þáttarins visir.is má
finna sjálfspróf, fróðleik um
kvíða, þau úrræði sem eru í boði,
krækjur og bækur.
Kvíði er algengur
Ert þú kvíðin(n)?
Mannlegi þátturinn
ÁSDÍS OLSEN
Það hefur oft verið kallað á
sjúkrabíl á mínu heimili – við
fíflumst með þetta viðkvæma
mál og þykjumst vita að á 112 sé
búið að koma upp sérstökum
útkallsflokki sem kallist
„Ásdísarútkall“. Ég fæ nefnilega
kvíðaköst eða – ég fékk kvíða-
köst. „Ykkur er óhætt að fara í
kaffi strákar – það er ekki von á
Ásdísarútkalli í bráð.“
En fyrsta útkallið mitt var
skelfilegt fyrir alla aðila og svo
hrikalega hallærislegt .... en ég
lít á það sem batamerki að ég get
hlegið að þessu atviki í dag og er
tilbúin til að deila því með ykkur.
Ég var gestur á bænum Skorra-
stað fyrir austan, rétt fyrir utan
Neskaupstað. Ég var rifbeins-
brotin og ennþá svoldið aum, en
hafði látið mig hafa það að keyra
austur til að vísitera og fara í úti-
legu með fjölskyldu og vinum.
Ég var að lesa unga dóttur mína í
svefn þegar hún þurfti skyndi-
lega að reisa sig upp og studdi
sig nett við bringuna á mér. Og
auðvitað fór brotna rifið af stað
– en í raun var það hugurinn sem
tók völdin og hitinn og stingur-
inn sem ég raunverulega fann
var traust undirstaða undir alls-
kyns hryllingsmyndir sem tóku
að rúlla í gegnum hausinn á mér
– af sundurrifnum innyflum,
blæðandi hjartasári og tættum
lungum. Og ég byrjaði að dofna
upp og skjálfa og ég gat ekki
andað og dauði minn var á næsta
leyti. Og þegar sjúkrabíllinn kom
var ég á fjórum fótum og varð
ekki haggað – sannfærð um að
rifið myndi breytast í óargadýr
sem rifi mig í sundur að innan.
Arrrrrrrg ... ekki koma við
mig!!!!! Leggjast á börurnar –
nei ekki sjens. Á fjórum fótum á
börum – ekki hægt.
Hvað var til ráða? Ég rifjaði
upp gamla takta og skreið. Ég fór
hægt yfir en komst út á hlað þar
sem fjölskylda og vinir stóðu hjá
skelfingu lostnir. Niðurlægingin
var algjör – en hvaða máli skiptir
það þegar maður er að drepast?
Og á fjórum fótum klöngraðist
ég upp í sjúkrabílinn ... og á fjór-
um fótum var ég í sjúkrabílunum
sem keyrði í hendingskasti með
sírenuvæli í gegnum sveitina og
inn á Fjórðungssjúkrahúsið í
Neskaupstað.
Í sjúkrabílnum byrjaði að
slakna á mér. Eitthvert öryggi í
því að vera komin undir verndar-
væng heilbrigðiskerfisins ... og í
raun lítið sem ég gat gert meira
til að bjarga lífi mínu. Á sjúkra-
húsinu mætti ég þvílíkum skiln-
ingi og gæsku og ég leyfði mér
að gefast upp í fangi sérfræðing-
anna. Áður en ég vissi af var ég
orðin nokkuð brött ... en jafn-
framt yfirbuguð af skömm og
niðurlægingu. Hverskonar
uppákoma var þetta hjá mér? Ég
fór í alvörunni að vona að eitt-
hvað almennilegt kæmi út úr
rannsókninni. Hvernig átti ég að
horfa framan í nokkurn mann
eftir þessi ósköp. Átti ég að ég
viðurkenna að ég væri ímyndun-
arveik eða hysterísk – er það
ekki það lægsta sem hægt er að
komast? En rannsóknirnar á
sjúkrahúsinu leiddu ekkert
alvarlegt í ljós og næstu nótt svaf
ég í tjaldi á Borgarfirði eystra.
Nokkrum dögum seinna liggj-
um við fjölskyldan uppi í sófa
heima að horfa á vídeó. Ég nýbú-
in að taka verkjalyf eins og mér
var uppálagt vegna rifbeinbrots-
ins. Og skyndilega finn ég doða
læðast niður hálsinn og bakið ...
og hugurinn fer á flug – hvaða
eitur tók ég eiginlega? Og ég
byrja að skjálfa og ég get ekki
andað og ég er að kafna og bráð-
um dey ég og ég vil sjúkrabíl. Ég
er borin út á börum og börnin
mín standa grátandi hjá og ég
sem er sannfærð um að ég sé að
deyja ... en segi þeim til huggun-
ar að þetta sé örugglega kvíða-
kast – þau þurfi engar áhyggjur
að hafa.
Í sjúkrabíl á fjórum fótum
Mannlegi þátturinn leggur áherslu á tilfinningar, huga,
orku og anda. Þar er fjallað um sjálfsmynd, samskipti, uppeldi,
geðið og almættið.
Kínverskir heilsudagar laugardag og sunnudag frá kl. 9-16
OPI
Ð H
ÚS
Hárstofan Space
Eva, Pála og Raggi bjóða Krisínu og Bryndísi
velkomnar til starfa.
Tökum vel á móti nýjum og gömlum viðskiptavinum.
Eva, Pála og Rag i bj ristínu og Bryndísi
velko nar til starfa
Reiki
Heilunar- og sjálfsstyrkingarnámskeið RVK
Kvöld- og helgarnámskeið í boði,
næstu námskeið eru:
I. stig helgarnámskeið
23. – 24. september
II. stig kvöldnámskeið
25. –28. september
Fyrir bætta líðan og betri stjórn á lífi þínu.
Pantanir í síma 553 3934,
milli kl. 10 og 13 virka daga.
Guðrún Óladóttir
reikimeistari
Framhald í sjálfsstyrking,
Auktu styrk þinn, 7. og 8. október,
helgarnámskeið.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI