Fréttablaðið - 16.09.2006, Side 67

Fréttablaðið - 16.09.2006, Side 67
LAUGARDAGUR 16. september 2006 ������������� ��������������� Sá sem pælir í tilverunni leggur stund á heimspeki. Þetta á við hvort sem menn velta fyrir sér tilgangi lífsins, hvort alheimur- inn geti verið endalaus eða hvort sé nú betra að eyða laugardag- speningunum í vikulegan nammi- skammt eða safna þeim saman og kaupa eitthvað bitastæðara þegar upphæðin er orðin álitleg. Sumar pælingar skilja kannski lítið eftir sig. Aðrar leita á hug- ann aftur og aftur og móta sýn manns á tilveruna. Fátt er gefið í heimspeki Í heimspeki er fátt gefið. Að því leyti er heimspeki ólík flestum öðrum fræðigreinum þar sem gengið er út frá ýmsum viðtekn- um sannindum og alla jafna ekki efast um réttmæti þeirra. Eðlis- fræðingur sem fer til dæmis að efast um að til sé veruleiki sem sé óháður mannlegri hugsun hefur í raun sagt skilið við eðlis- fræðina sem fræðigrein, en fæst þess í stað við heimspeki. Svip- aða sögu er að segja um sálfræð- ing sem veltir fyrir sér hvort til séu aðrir einstaklingar en hann sjálfur, eða hvort einhver grund- vallarmunur sé á fólki og dauð- um hlutum eins og steinum. Í heimspeki má spyrja um allt Þannig er flestum fræðigreinum farið; spurningar eins og þessar, sem kalla mætti barnalegar, eru oft ekki taldar „fræðilegar“. En í heimspeki má spyrja um allt, pæla í öllu. Vegna þess hve heim- spekin er opið fag verða heim- spekingar oft fyrir því að horft er á þá í forundran, eða jafnvel með vanþóknun. Þannig kann heimspekingur að spyrja í fullri alvöru hvers vegna það sé rangt að stela, ljúga og eigna sér afrek annarra. Öðru fólki gæti hins vegar fundist óviðeigandi að spyrja slíkra spurninga. Hvers vegna? Heimspekingurinn spyr ekki vegna þess að hann efist um að slíkt háttalag sé hið versta rang- læti, heldur vegna þess að hann vill vita hvers vegna það er dæmi um ranglæti. Ef til vill langar hann svo líka að vita hvað rang- læti sé yfirleitt. Sókrates og Platon Heimspekingurinn Sókrates er frægur – eiginlega alræmdur – fyrir barnalegar spurningar sínar. Út frá slíkum sakleysisleg- um spurningum spunnust langar samræður þar sem Sókrates og samferðamenn hans pældu í ólík- um hlutum, til dæmis hvað sé réttlæti. Sú samræða er rakin í bók Platons, Ríkinu. Báðir eru þeir Sókrates og Platon taldir meðal merkustu heimspekinga allra tíma, en segja mætti að Platon hafi einmitt lært af Sókrat- esi listina að spyrja barnalegra spurninga. Ekki eru allar spurningar heim- spekilegar Að ofangreindu er vonandi ljóst að barnalegar spurningar geta vel verið heimspekilegar, en ekki er þó þar með sagt að allar spurn- ingar séu heimspekilegar. Auð- velt er að spyrja spurninga, hvort heldur „barnalegra“ eða „fullorð- inslegra“, án þess að til komi nokkur snefill af heimspeki. Í kappræðu, til dæmis meðal stjórnmálamanna skömmu fyrir kosningar, ganga spurningar á víxl. Slíkar spurningar eru hins vegar ekki heimspekilegar vegna þess að þeirra er ekki spurt með heimspekilegu hugarfari – þeim er ekki ætlað að verða kveikja að pælingu. Þátttakendur í kapp- ræðu velta ekki fyrir sér hlutun- um frá mörgum hliðum og reyna að komast að niðurstöðu; þeir eru að verja einn málstað og reyna að koma höggi á annan. Þess vegna er líka fátt jafn fjarlægt heimspekilegri rökræðu og kapp- ræða. Barnsleg einlægni Sá sem spyr heimspekilega spyr í barnslegri einlægni og vegna þess að hann vill pæla í hlutun- um. Slíkt er stundum litið horn- auga og haft til marks um veik- leika þess sem þannig spyr, en einlægni og forvitni eru ekki veikleikar heldur til marks um innri styrk og hugrekki. Það sýnir að einstaklingurinn er opinn fyrir heiminum og tilbúinn að takast á við hann hvernig sem hann er. Andstæða þess er for- herðingin og af henni grær for- heimskunin. Ólafur Páll Jónsson, lektor í heimspeki við Kennaraháskóla Íslands Hvað er supernova? Orðið supernova kemur upphaf- lega úr latínu og er samsett úr tveimur liðum. Sá fyrri, super-, merkir ‚yfir-‘ eða ‚ofur-‘, en sá seinni, -nova, þýðir ‚ný‘ og er stytting á nova stella, ‚ný stjarna‘. Á íslensku er supernova kölluð sprengistjarna og lýsir það heiti ágætlega þessu fyrirbæri. Sprengistjörnur eru meðal mestu hamfara sem þekkjast í alheiminum. Orkan sem losnar úr læðingi þegar stjarna spring- ur er hrikaleg og sést það best á því að við sprenginguna verður stjarnan jafn björt eða bjartari en heil vetrarbraut. Keplersstjarnan Fyrir um 400 árum birtist ný ofurbjört stjarna á himinhvolf- inu. Þar var komin sprengistjarn- an SN 1604, sem einnig er nefnd Keplersstjarnan eftir stjörnu- fræðingnum Jóhannesi Kepler (1571-1630), en hann rannsakaði hana í þaula. Sprengistjörnur höfðu mikil áhrif á umræður í stjörnufræði á þeim tíma þar sem þær voru eitt gleggsta merk- ið um að himnarnir væru ekki óbreytilegir eins og menn höfðu talið fram að því. Á Vísindavefnum er að finna ítarlegri umfjöllun um sprengi- stjörnur í svari Sævars Helga Bragasonar við spurningunni Er nokkur fastastjarna nálægt okkur sem hefur möguleika á að verða sprengistjarna? Heiða María Sigurðardóttir, B.A. í sálfræði og starfsmaður Vísindavefsins. Eru barnalegar pælingar heimspeki? SPRENGISTJARNA Leifar af Keplers- stjörnunni. Föstudaginn 22. september stendur Rannís fyrir Vísindavöku – stefnumóti við vísindamenn í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu. Markmiðið með Vísindavökunni er vekja áhuga almennings á vísindum og auka vitund um starf vísindamanna og mikilvægi þeirra. Vísindavefurinn mun taka þátt í Vís- indavökunni og kynna vefinn, bjóða gestum að reyna kunnáttu sína með því að spreyta sig á spurningum og gæða sér á fróðleiksmolum. Vísindavakan stendur frá kl. 17.00 – 21.00. Merrild 103 Me›alrista› gæ›akaffi Fæst nú í heilbaunum! Hefur flú prófa›? E N N E M M / S ÍA / N M 2 3 4 6 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.