Fréttablaðið - 16.09.2006, Qupperneq 71
LAUGARDAGUR 16. september 2006 35
Fáir vita sennilega hverjar Suzie McNeill eða Jessica Robinson eru. Þær tóku þátt í síðustu seríu Rock Star þar sem leitað var að söngvara fyrir áströlsku skalla-
poppsveitina INXS. Fréttablaðið lagðist yfir netið og reyndi
að grafa upp hversu langt forverar þeirra Magna, Dilönu,
Lukasar og Toby hafa komist.
Sigurvegarinn: JD Fortune
Val INXS á JD var mjög umdeilt en hann þótti sístur af þeim
þremur sem eftir stóðu. Fortune bjó í bílnum sínum áður en
hann reyndi fyrir sér í nýjum raunveruleikaþætti hjá CBS-
sjónvarpsþáttaröðinni, Rock Star: INXS. JD hefur haft í nógu
að snúast og hafa viðtökur við honum sem arftaka Michael
Hutchence verið vonum framar því lengi vel snerust aðdá-
endur sveitarinnar gegn þættinum og töldu þetta vera and-
stætt vilja söngvarans sáluga. Sjálfur lýsti Fortune því yfir í
útvarpsþætti að hann hefði alltaf dreymt um að syngja lög
INXS. Hins vegar er spurning hvað verður um hann þegar
aldurinn fer að hafa síaukin áhrif á frammistöðu hljómsveit-
armeðliminna en þeir þurftu meðal annars að fresta tónleik-
um í Danmörku vegna álagsmeiðsla.
Marty Casey
Casey þótti lengst af sigurstranglegur fyrir lokakvöldið en
þegar úrslitin voru kunngjörð spurði Tim Farriss, gítarleik-
ari INXS, hvort hann væri tilbúinn til að hita upp fyrir heims-
ferðalag hljómsveitarinnar. Casey hefur verið söngvari
hljómsveitarinnar Lovehammers og fór hún á ferðalag með
áströlsku poppurunum. Fyrsta breiðskífa sveitarinnar, sem
hún gaf sjálf út, seldist í 25 þúsund eintökum en sveitin nýtur
mikilla vinsælda í Chicago.
Mig Mayesa
Hann gekk venjulega undir nafn-
inu MiG og var einn þeirra þriggja
sem komu til grein sem næsti söngv-
ari INXS. MiG var mjög vinsæll meðal áhorf-
enda, þótti hafa kraftmikla framkomu og var jafnan
líkt við óslípaðan demant. MiG hefur sungið með
hljómsveitinni Queen en í byrjun næsta árs er vænt-
anlegur svokallaður karaoke-diskur frá Decca-plötu-
fyrirtækinu þar sem hann reynir sig við eftirlætis
rokkslagarana sína.
Suzie McNeill
Varð í fjórða sæti, rétt eins og Magni. Hún hefur
að mestu leyti lifað á fornri frægð og treður oft
upp með öðrum keppendum sem féllu úr leik
snemma. Henni bauðst óvænt tækifæri þegar
sjálfur Clay Aiken bauð henni að syngja dúett
með sér og þá sáu INXS-liðar aumur á henni og
buðu McNeill að flytja fyrsta versið í nýju
lagi.
Jordis Unga
Hin unga Jordis hefur reynt fyrir sér sem sólólista-
maður með misjöfnum árangri og hefur að mestu
leyti sungið á krám í Bandaríkjunum.
Eini geisladiskurinn hennar er Night
at the Mayan Theatre, sem inniheld-
ur besta flutninginn úr INXS-þátt-
unum.
Lífið eftir Rock Star
JD FORTUNE Hefur tekist að varðveita sína skjótfengnu
frægð og syngur á fjölsóttum tónleikum með INXS. Hvort
frægðin endist eftir að sveitin leggur upp laupana er hins
vegar vafamál.
MARTY CASEY Hafnaði í öðru sæti en
er á fullu við að spila með hljómsveit
sinni Lovehammers sem nýtur mikilla
vinsælda í Chicago.
MIG MAYESA Hefur verið að
ströggla en sólóskífa með
honum er væntanleg í byrjun
næsta árs.
SUZIE MCNEILL Lifir á fornri frægð og
syngur með öðrum úr þáttunum en
hefur þó sungið dúett með Clay Aiken.
JORDIS UNGA Lítið hefur til
hennar spurst og hún hefur
að mestu leyti spilað á krám í
Bandaríkjunum. .
Magnadúkkan
Á móti sól og Magni eru stærri en
Birgitta Haukdal og Írafár þannig að
það liggur beint við að
Magni verði gerður að
dúkku eins og Birgitta
á sínum tíma. Nask-
ir kaupsýslumenn
hljóta að kveikja á
þessu og því er
þess ekki langt
að bíða að
Magnadúkkan
líti dagsins
ljós en hún
ætti að selj-
ast vel bæði
hér heima og
erlendis.
Magnamín
Lýsi hf. er heldur betur komið í feitt en
fyrirtækið á vörumerkið Magnamín og
magnavítamín vörulínu. Nú er heldur
betur lag að stórauka framleiðsluna
á Magnamíni og fara í stórkostlegt
markaðsátak. Það segir sig sjálft að
börn munu kokgleypa Magna-
mínið þegar
það verður aug-
lýst með þessum
orðum: „Magni
er svo duglegur af
því hann borðaði
Magnamín þegar
hann var lítill.“
Barnabókin
Magni í LA
Það má teljast
til stórtíðinda ef
ú t s j ó n a r s a m i r
útgefendur í Vest-
urbænum eru ekki
þegar byrjaðir að
leggja drög að mynd-
skreyttri barnabók
um ævintýri Magna.
Silja Aðalsteinsdóttir
myndi leika sér að því að gera ævintýr-
um Magna hressileg og léttleikandi skil.
Uppeldisgildi bókarinnar er ótvírætt og
hægur vandi að koma góðum siðaboð-
skap til barnanna þegar sveitastrákur-
inn hjartahreini kynnist vafasömum,
húðflúruðum dópistum en kemst samt
heill heim. Magnabækurnar geta ekki
annað en slegið í gegn og munu enda
í myndarlegum bókaflokki.
Magnaspilið
Æsispennandi borðspil í ætt við
Lúdó og Matador. Sex manns
geta spilað saman og skipst á
að stjórna Lucas, Toby, Ryan,
Dilönu, Magna og Storm.
Sá leikmaður sem stjórnar
Magna fær ákveðna forgjöf
og fær alltaf að kasta teningnum
tvisvar. Á borðinu eru stórhættulegir
Tommy Lee reitir en þeir sem lenda
þar þurfa að syngja lag áður en þeir eru
sendir á byrjunarreit. Þá geta spjöld
með áfengisdauða og fleiru annað-
hvort tafið fyrir keppendum eða fleytt
þeim áfram. Sá sem stjórnar Lucas fær
aldrei Honda jeppa þótt hann fari yfir
byrjunarreit.
Safnkassi með Á móti sól
Hljómsveit Magna fer ekki varhluta af
velgengni söngvarans og því er sjálfsagt
að bregða á það ráð að endurútgefa
alla geisladiska hljómsveitarinnar í sér-
stökum Rockstar safn-
kassa. Rúsínan í pylsu-
endanum gæti svo verið
nýr diskur þar sem Magni
syngur öll lögin sem hann
tók í Rockstar við undirleik
gömlu félaganna.
(30 ÁRUM SÍÐAR)
Sjálfsævisagan „Rockstar
eyðilagði líf mitt“.
Magni gerir upp við fortíðina, frægðina,
slúðrið og kynni sín af stórstjörnulífinu
hokinn af reynslu og veðraður eftir
barninginn á frægðarinnar ólgusjó.
Dramatískustu kaflarnir fjalla um glímu
söngvarans við óprúttna umboðs-
menn og endurskoðendur í Ameríku
sem hugsuðu sér gott til glóðarinnar
þegar þeir læstu klónum í sveitapiltinn
frá Íslandi.
Í kjölfar Magnamaníunnar ...
Magnaæðinu á Íslandi er síður en svo lokið þó að kappinn sé kominn heim og muni ekki syngja með Tommy Lee og fé-
lögum. Þjóðin elskar Magna og vel heppnuð markaðssetningin á honum kallar á alls kyns Magnavarning. Tækifærin eru
óþrjótandi og þeir eru margir sem geta stokkið til og hagnast á Magna.
Ævintýri Magna í raunveruleikaþáttaröðinni Rock Star: Supernova er lokið en hvað
bíður söngvarans geðþekka frá Borgarfirði eystri?