Fréttablaðið - 16.09.2006, Síða 72
16. september 2006 LAUGARDAGUR36
Elsa Haraldsdóttir, eigandi hárgreiðslustofunnar Salon Veh, opnar hárgreiðslustofu
í Kaupmannahöfn í lok mánaðar-
ins ásamt Hreiðari Árna Magnús-
syni. Hreiðar kemur til með að
búa í Danmörku og halda utan um
rekstur stofunnar en hún verður
til húsa í Pilestræde 12, sem er
hliðargata frá Strikinu. Hreiðar
verður eini Íslendingurinn á stof-
unni en hefur ráðið Dani til sín í
vinnu. „Þetta er algjörlega danskt
fyrirtæki og alveg nýtt, þannig að
það tengist ekki á nokkurn hátt
Salon Veh,“ segir Hreiðar sem
telur markaðinn í Kaupmanna-
höfn mjög hliðhollan tískufyrir-
tækjum í dag. „Borgin er að kom-
ast í hóp tíu stærstu tískuborga í
heiminum og það sést meðal ann-
ars á því hvað tískuvikan þar er að
verða mikilvæg.“
Klipping og kampavín
Hárgreiðslustofan ber nafnið Loft-
salon og verður með alveg nýju
sniði. „Ég held að það sé ekki til
nokkur stofa rekin með þessu sniði
á Norðurlöndunum, en við ætlum
að vera með hárgreiðslustofu með
svona hótel-, bar- og verslunar-
sniði. Þetta verður mjög huggulegt
umhverfi með bar og setustofu
þannig að þetta verður ekki bara
hárgreiðslustofa heldur líka góður
staður til að hittast á,“ segir Hreið-
ar og heldur áfram: „Hugmyndin
er sú að vinkonur geti komið saman
á stofuna og fengið sér kampavíns-
glas á barnum á meðan ein er í
klippingu. Á þennan hátt ætlum
við að færa þjónustuna á annað
stig. Þetta hefur gengið vel í
Bandaríkjunum en þetta er hug-
mynd sem Redken hefur verið að
hanna og við höfum ákveðið að til-
einka okkur og útfæra. Þannig að
þetta verður svona dekurstaður
þar sem hægt er að hafa það ákaf-
lega huggulegt. Við ætlum að
hækka þjónustuna um mörg stig
en einbeita okkur þó að hárgreiðsl-
unni,“ segir Hreiðar sem hlakkar
mikið til að takast á við þetta nýja
og spennandi verkefni.
Íslensk Toni & Guy stofa í Köben
Sigrún Davíðsdóttir og Edda Sif
Guðbrandsdóttir eru eigendur Toni
& Guy á Íslandi og eru nú að undir-
búa opnun stofu í Kaupmannahöfn.
„Við erum enn að leita okkur að
húsnæði og erum nokkuð vandlátar
með staðsetningu en stefnum að
því að opna innan tíu mánaða,“
segir Sigrún og bætir því við að
Edda Sif ætli að búa úti fyrsta árið
til að koma þessu af stað. Toni &
Guy er keðja af hárgreiðslustofum
með höfuðstöðvar í London og verð-
ur stofan þeirra Sigrúnar og Eddu
sú fyrsta í Danmörku. „Við höfum
núna einkaleyfi á því að opna stof-
ur Toni & Guy á Íslandi og í Dan-
mörku en það eru þegar komnar
stofur í Svíþjóð og Noregi,“ segir
Sigrún.
Í toppklassa
Markaðurinn í Danmörku er að
vissu leyti frábrugðinn því sem
gerist hér á landi, að sögn Sigrún-
ar. „Í Danmörku er mikill verð-
munur á milli stofanna og má
segja að þær skiptist í háklassa-
stofur og síðan rakarann á horn-
inu. Við komum til með að vera í
sama klassa og þær bestu þarna
úti. Við ætlum að veita góða þjón-
ustu og vera með bestu klipping-
arnar og alltaf með nýjungarnar á
hreinu alveg eins og hér, en við
vinnum alltaf eftir nýjustu straum-
um og stefnum frá London þannig
að það verður eins í Kaupmanna-
höfn. Við ætlum okkur bara stóra
hluti.“ Stofurnar í Svíþjóð eru með
hárgreiðsluskóla og stefnir Sigrún
að því að senda starfsfólk sitt
þangað.
„Það er mjög gott því þá þurf-
um við ekki að senda alla til Lond-
on, en við sendum starfsfólkið út á
námskeið reglulega til að vera
alltaf með það nýjasta.“ Sigrún
segir þær stöllur rosalega spennt-
ar yfir að færa út kvíarnar en nú
sé aðalmálið að vera þolinmóðar
meðan þær bíða eftir rétta hús-
næðinu.
Íslenskt hárgreiðslufólk í útrás
SPENNTAR Edda Sif og Sigrún eru eigendur Toni & Guy á Íslandi og stefna nú að því
að opna slíka stofu í Kaupmannahöfn innan tíu mánaða.
ALLIR TIL KÖBEN Útrás Íslendinga til Kaupmannahafnar virðist engan endi ætla að taka og nú hafa íslenskir hársnyrtar bæst í hópinn.
Á ÚTLEIÐ Hreiðar Árni Magnússon ætlar
að flytja til Danmerkur og reka stofuna
Loftsalon sem hann á með Elsu Har-
aldsdóttur, hárgreiðslumeistara.
HVERNIG ER AÐ ...
VERA HATTAKARL?
Reynir Traustason ¿ hattakarl
„Það er vont í roki. Öll athyglin fer í
að halda á sér höfuðfatinu. En það
getur verið gott að hafa hatt þegar
sólin skín sem sterkast. Veitir ákveðið
skjól. Svo er þetta reyndar eins og
hver önnur fíkn. Maður verður háður
því að vera nákvæmlega svona.
Finnst sem hattlaus sé maður nánast
nakinn að spóka sig fyrir augum
almennings.“
Stefán Jón Hafstein ¿ hattakarl
„Ég á marga veiðihatta. En einn
stendur skör hærra en allir hinir og
það er hattur sem Wathne-systur
frænkur mínar gáfu mér. Mikill önd-
vegis hattur, ekta Indiana Jones hattur
og hann hef ég farið með til Afríku og
Indlands og hvarvetna hlotið athygli
og aðdáun út á hattinn.“
Tómas R. Einarsson ¿ hattakarl
„Hattamennska mín tengist þessari
tónlist sem ég hef verið að spila á
síðustu árum ¿ latíntónlistinni. Gott er
að ganga með hatt í heitum löndum
en ég hef verið latur við að labba
með þetta hér í Reykjavík. Enda þyrfti
maður þá að vera með báðar hendur
á höfuðfatinu. Það er nú vandinn
stóri ¿ það er svo erfitt að vera eleg-
ant í Reykjavík.“
Sigmundur Ernir Rúnarsson
¿ hattakarl
„Það er afskaplega þægilegt að nota
hatt á Íslandi sem passar vel á höf-
uðið. Hann heldur frá manni vætu og
kulda. Og þar fyrir utan virðist maður
hærri til himinskautanna. Og ber af í
mannhafinu. Þetta kemur fólki ekki
jafn mikið á óvart nú og þegar ég
byrjaði fyrir einum tuttugu árum að
bera slíkan.“
Halldór Bragason ¿ hattakarl
„Praktískt séð er gott að vera með
hatt þegar maður er að spila. Blindast
ekki af sviðsljósinu. Það er líka gott að
setja á sig þennan hatt, blúshattinn,
við ákveðin tækifæri og taka hann
af sér aftur og breytast í venjulega
manneskju.“
Íslensk fyrirtæki hafa að undanförnu haslað sér völl á dönskum markaði. Nú hefur íslenskt hár-
greiðslufólk ákveðið að taka þátt í þessari útrás en á næstu mánuðum verða opnaðar tvær hárgreiðslu-
stofur í eigu Íslendinga í Kaupmannahöfn. Hárgreiðslufólkið telur markaðinn í borginni mjög hliðholl-
an tískunni og því rétti tíminn núna til þess að færa út kvíarnar á þennan hátt.