Fréttablaðið - 16.09.2006, Síða 83

Fréttablaðið - 16.09.2006, Síða 83
LAUGARDAGUR 16. september 2006 47 LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður kvöldverður og leikhúsmiði frá kr. 4300 - 4800 TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM frá kl. 10 til 16 mánudaga - fimmtudaga í síma 437 1600 Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningardag Sýningar í Landnámssetri í september og október Laugardagur 16. september kl. 20 Uppselt Sunnudagur 17. september kl. 20 Uppselt Laugardagur 23. september kl. 20 Uppselt Sunnudagur 24. september kl. 16 Uppselt Miðvikudagur 27. september kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 28. september kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 5. október kl. 20 Laus sæti ��������������������������������� ��������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� �������������������������� ����������� �� �������������������� �� �� ����� ������������������������������� �������������� �� ��������������������������������������������������������������������������� ����������������������������������������������������������� ������������ �������������� �� ����������� �������������������������������������������������������������������� ������������ ���������������������������������������� ����������������������������������� ������������������������������� Frumsýning 15. september uppselt 2. sýning 16. september örfá sæti laus 3. sýning 22. september 4. sýning 23. september Líf tungunnar Mikið er rætt um líf íslenskrar tungu og framtíð hennar. Óttast margir að hún sé jafnvel í lífshættu. Það fer auðvitað eftir þjóðinni sjálfri og afstöðu hennar. Ég hef ekki þungar áhyggjur af tökuorðum eða tískuslangri. En ég þykist greina tvær hættur: aukið kæruleysi og fátæklegri orðaforða. Einhæfni í orðavali gerir sjálfa hugsunina ófullkomna. Í móðurmálskennslu held ég að huga þurfi betur að því að laða nemendur að fjölbreytileika tungumálsins og rækta með þeim væntumþykju. Ég óttast að þetta hafi mistekist. Ef okkur þykir vænt um tungumál okkar hljótum við að reyna að vanda málfar okkar. Ég vil taka fram, að þótt ég hafi tekið að mér að skrifa pistla um íslenskt mál, þá dettur mér ekki í hug að ég sé óskeikull á málfar fremur en aðrir. Bara, bara, bara Hafa menn tekið eftir því að BARA er orðið eitthvert ofnotaðasta orð tungunn- ar? Það merkir 1) einungis, aðeins; 2) þó nokkuð, frekar, hvað sem öðru líður. En nú er það mest notað sem hikorð eða til uppfyllingar. Hikorð, orð til að fylla upp í hik í mæltu máli, virðast koma og fara og lúta einhvers konar tísku. Þó eru hikorðin hérna og sko býsna lífseig. Einu sinni sögðu margir altso en nú heyrist það varla. Sem sagt styttist í framburði í semst og þúst varð til úr þú veist (ég spurði einu sinni nemanda minn í HÍ hvort hann kallaði mig þúst?) og skiluru úr skilur þú. En nú virðist vinsælasta hikorðið vera bara sem tönnlast er á í tíma og ótíma, og verður að hafa sig allan við að varast smit. Ég heyrði nýlega unga konu segja 14 sinnum bara á innan við tveimur mínútum í sjónvarpsviðtali. Ekki hljómar það vel. Ég mæli með barabindindi. Fer fram Frétt í Morgunblaðinu 13. júní: Fyrirsögn: Doktorsvörn við læknadeild HÍ og á sömu bls. Doktorsvörn í eðlisfræði við HÍ Texti: Doktorsvörn í örveirufræði ... fer fram... föstudaginn 16. júní. Þá ver Sigrún Guðmundsdóttir doktorsritgerð sína... Skringilegt er í raun að tala um að vörn fari fram. Að auki er þetta óþarft. Undir fyrirsögn er nóg að segja: SG.... ver doktorsritgerð sína. Óþörf orð eru ekki til prýði. Úr greinargerð með tilllögu til þingsályktunar: Flutningsmenn eru þeirrar skoðunar að huga þurfi betur að kostum þess að íslenska ríkið leggi meira af mörkum á sviði fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu og þá einnig með hvaða hætti slík samvinna ætti að fara fram. ...hvernig aðgerðirnar fóru fram... Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins 27. júní. Menn ættu að sneiða hjá þessu ankannalega orðalagi. Laglega sagt Guðmundur Steingrímsson kemst laglega að orði í Fréttablaðinu 2. sept.: „Almættið forði okkur frá því að sprungurnar undir stíflunni séu jafn djúpar og gleiðar og sprungurnar á málsmeðferðinni. Öll ákvarðanataka þessa máls er byggð á sprungusvæði.“ Hér er skemmtilega leikið að beinni mynd sem breytist í myndhverfingu (sprungurnar á málsmeðferðinni). Hins vegar spillir orðið ákvarðanataka þess- um leik. Miklu betur hefði farið á því að segja í staðinn: allar ákvarðanir. Orðið ákvörðunartaka (rétt svo, enda eintala) er hálfgert skrípi og er skýrt í orðabók: það að taka ákvörðun, ákveða – og á því merkingarlega ekki við hér. Braghenda Valdimar Lárusson sendi mér þessa braghendu: Braghendan er býsna góður bragarháttur við hann er og verð ég sáttur vona að honum fylgi máttur. Vilji menn senda mér braghendu eða góðfúslegar ábendingar: npn@vortex.is HLJÓÐFÆRI HUGANS Njörður P. Njarðvík skrifar um íslenskt mál HVAÐ? HVENÆR? HVAR? SEPTEMBER 13 14 15 16 17 18 19 Laugardagur ■ ■ TÓNLEIKAR  12.00 Björn Steinar Sólbergsson, nýráðinn organisti við Hallgríms- kirkju, kynnir heillandi hljóðheim Klais-orgels kirkjunnar á tónleikum.  15.00 Píanóleikarinn Peter Máté heldur tónleika í Þorgeirskirkju og flytur verk eftir Schubert og Liszt.  16.00 Útgáfutónleikar í Dómkirkjunni í Reykjavík. Gerður Bolladóttir sópransöngkona, Hlín Erlendsdóttir fiðluleikari og Sophie Schoonjans hörpuleikari kynna þjóð- lagadiskinn Fagurt er í Fjörðum. Sr. Bolli Pétur Bollason flytur inngangs- orð að lögum tónleikanna sem bæði eru af veraldlegum og trúarlegum toga.  22.00 Hljómsveitirnar Night & The City, Gavin Portland og Mammút leika á tónleikum á Bar 11. ■ ■ OPNANIR  15.00 Sýning á verkum Hallsteins Sigurðssonar verður opuð í Lista- safni Sigurjóns í Laugarnesi.  15.00 Sýningar á verkum Ragn- heiðar Jónsdóttur og Hörpu Árnadóttur verða opnaðar í Listasafni ASÍ við Freyjugötu.  16.00 Sýning á verkum Ingrid Larssen verður opnuð í sýningarsal Handverks og hönnunar í Aðalstræti 12. ■ ■ ÚTIVIST  14.00 Ljóðaganga verður farin í Garðsárreit í Eyjafirði í samvinnu Skógræktarfélags Eyfirðinga, Amtsbókasafnsins á Akureyri og Populus tremula. Lagt verður upp með rútu frá Amtsbókasafninu og komið til baka á fimmta tímanum. Til upplyftingar andanum munu eftirtaldir lesa eða syngja kvæði fyrir göngufólk: Aðalsteinn Svanur Sigfússon, Arna Valsdóttir, Hannes Örn Blandon, Helgi Þórsson, Jón Kristófer Arnarson og Steinunn Sigurðardóttir. Einnig verður skóg- urinn kynntur, hellt upp á ketilkaffi og bragðbætt með kúmeni að vanda. ■ ■ UPPÁKOMUR  16.00 Ingibjörg Magnadóttir og Kristín Eiríksdóttir myndlistarmenn skipuleggja undirvitundargjörning í tengslum við sýninguna Pakkhús postulanna í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi  13.30 Aðstandendur kvikmynd- anna Börn og Foreldrar ræða um gerð myndanna í bókabúð Máls og menningar á Laugavegi. Þátttakendur verða Ragnar Bragason leikstjóri myndarinnar og leikarnir Ólafur Darri Ólafsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Víkingur Kristjánsson. ■ ■ SÝNINGAR  14.00 Í galleríinu Kling & bang á Laugavegi stendur yfir samsýningin Guðs útvalda þjóð. Sýningarstjóri er Snorri Ásmundsson. Sýningin er opin milli 14-18. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. Stefán Jónsson, leikari og leik- stjóri, hefur verið fenginn til að leika hnappasmiðinn í hinni vin- sælu uppfærslu Baltasars Kor- máks á Pétri Gauti í Þjóðleikhús- inu og fylla þar með skarð Ingvars E. Sigurðssonar, sem er farinn til London að leika í uppfærslu Gísla Arnar Garðarssonar á Hamskipt- um Kafka. Stefán brást skjótt við þrátt fyrir stuttan fyrirvara og steig á svið í Þjóðleikhúsinu í gær eftir langa fjarveru en þar lék hann síð- ast í Veislunni fyrir nokkrum árum. „Það er alltaf gott að vökva í sér leikarann,“ segir Stefán, sem hefur einbeitt sér að leikstjórn á síðustu árum og vinnur nú í Þjóð- leikhúsinu að uppsetningu vís- indasöngleiks eftir Hugleik Dags- son. „Ingvar er vinur minn, Baltasar er vinur minn og Þjóð- leikhúsið er vinur minn og ég vildi ekki bregðast trausti þeirra þegar sú staða kom upp að Ingvar varð frá að hverfa og stökk því til. Þetta bar brátt að en ég setti mig í þess- ar stellingar og vona að ég muni ekki trufla þessa fínu sýningu,“ segir Stefán, sem telur það ekki mikið mál að bæta þessu óvænta verkefni á sig. - þþ Bregst ekki vinum sínum STEFÁN JÓNSSON Var óvænt beðinn að leysa Ingvar E. Sigurðsson af í Pétri Gauti og brást skjótt við. Vefurinn Reykjavik.com og blaðið Reykjavikmag eru nýjar upplýsingaveitur á ensku. Þær bjóða upp á ferska umfjöllun og nýjustu upplýsingar um allt sem heimsborgin Reykjavík státar af á hverjum tíma; menningarviðburði, skemmtistaði, veitingastaði, söfn, gallerí, tísku, verslanir og næturlíf. Í Reykjavík er alltaf eitthvað sem er nýjasta nýtt Be prepared,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.