Fréttablaðið - 18.09.2006, Qupperneq 2
2 18. september 2006 MÁNUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Pétur, er verið að organísera í
Skálholti?
„Það er nú frekar verið að af-organ-
ísera en organísera.“
Hilmari Erni Agnarssyni, organista í dóm-
kirkjunni í Skálholti, var nýlega sagt upp
störfum og hefur stjórn Skálholts boðað
skipulagsbreytingar. Pétur Pétursson er
prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands.
SÍMHLERANIR Eiríkur Tómasson,
prófessor í lögfræði og fyrrverandi
formaður úrskurðarnefndar um
upplýsingamál, telur ófært að Kjart-
ani Ólafssyni, fyrrverandi þing-
manni og formanni Sósíalistafélags
Íslands, hafi ekki verið veittur
aðgangur að gögnum um símhleran-
ir. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræð-
ingur fékk aðgang að gögnunum og
opinberaði síðar að símhleranir
hefðu verið stundaðar að minnsta
kosti sex sinnum á árunum 1949 til
1968. Skrifstofur félaga sem Kjart-
an var í forsvari fyrir á þessum tíma
voru meðal annars hleraðar.
Eiríkur segir þagnarskyldu hafa
verið aflétt af gögnunum. „Með því
að veita Guðna aðgang að gögnun-
um, þá er búið að aflétta þagnar-
skyldu, sem kann að hafa hvílt á
efni þessara skjala. Þá finnst mér,
með vísan til jafnréttissjónarmiða,
að Kjartan, sem er líklegur þolandi
í málinu, eigi að fá sama aðgang að
gögnunum og Guðni eða jafnvel
meiri,“ sagði Eiríkur og bætti við
að lögin um þessi mál væru tiltölu-
lega skýr. „Ég geri ráð fyrir, miðað
við það sem ég hef heyrt af ákvörð-
un Þjóðskjalasafnsins, að hér sé
um að ræða gögn sem varða rann-
sókn opinbers máls. Ef svo er þá ná
upplýsingalögin ekki yfir gögnin,
þar sem sérstaklega er tekið fram í
lögunum að slík gögn séu undan-
skilin gildissviði slíkra laga. Hins
vegar hefur mótast sú meginregla
að öll gögn, nema þau sem hafa að
geyma viðkvæm einkamálefni ein-
staklinga, eru aðgengileg öllum
eftir að þrjátíu ár eru liðin frá því
þau urðu til. Ég hefði talið eðlilegt
að beita sömu reglu um gögn sem
varða rannsókn í opinberu máli en
Alþingi hefur ekki sett lög sem ná
til þessara þátta. En aðalatriðið er,
að þegar búið er að aflétta þagnar-
skyldunni gagnvart einum sagn-
fræðingi, þá finnst mér ófært að
veita ekki manni sem virðist hafa
meira hagsmuni að gæta, aðgang
að gögnunum.“
Ólafur Ásgeirsson þjóðskjala-
vörður segir eðlilegt að úrskurðar-
nefnd um upplýsingamál fjalli um
kærumál sem tengjast þessu máli
áður en frekari aðgangur er veittur
að gögnunum. „Fyrst er fræðimanni
veittur aðgangur að gögnunum þar
sem hann þurfti að nota þau í nor-
rænni rannsókn. Síðan tók Alþingi
málið upp með því að ákveða að
skipa nefnd sem fjallar um aðgang
að gögnum eins og þessum. Niður-
stöður þeirrar vinnu liggja ekki
fyrir. Þessi gögn eru venjulega
lokuð en Guðni fékk takmarkaðan
aðgang að gögnunum með skilyrð-
um. Málið er nú hjá nefnd sem
úrskurðar um þessi mál og meðan
svo er þá teljum við okkur ekki geta
veitt aðgang að gögnunum.“
Páll Hreinsson, formaður
úrskurðarnefndar um upplýsinga-
mál, sagðist í gær ekki geta svarað
hvenær úrskurður vegna kæra sem
borist hafa vegna þessa máls lægi
fyrir.
Fréttablaðið hefur óskað eftir
því skriflega að fá að skoða gögnin
en ekki borist svar við beiðninni
ennþá. magnush@frettabladid.is
Segir jafnræðisreglu
klárlega vera brotna
Eiríkur Tómasson efast ekki um að Kjartan Ólafsson eigi að fá aðgang að gögn-
um um símhleranir, líkt og Guðni Th. Jóhannesson. Bíðum þess að úrskurðar-
nefnd um upplýsingamál komist að niðurstöðu, segir þjóðskjalavörður.
ÞJÓÐSKJALASAFN ÍSLANDS Kjartan Ólafsson hefur kært Þjóðskjalasafn Íslands fyrir
að veita sér ekki aðgang að gögnum um símhleranir á árunum 1949 til 1968.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EIRÍKUR TÓMAS-
SON Efast ekki
um að Kjartan
Ólafsson eigi
að fá aðgang
að gögnum líkt
og Guðni Th.
Jóhannesson.
ÓLAFUR
ÁSGEIRSSON
Þjóðskjalavörð-
ur neitar að
veita aðgang
að gögnum um
símhleranir.
TÍMI TIL AÐ SKIPTA
„Ef að útgönguspárnar ganga eftir er þetta niður-
staðan, en það er ekki rétt að gefa sér eitthvað
fyrirfram,“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar.
„Annars kemur þetta ekki
á óvart, ríkisstjórn Jafn-
aðarmanna hefur setið í
12 ár og það virðist ein-
faldlega vera sýn sænsku
þjóðarinnar að það sé
kominn tími til að skipta
og hleypa nýjum aðilum
að. Það er ekki óeðlilegt
eftir svona langa valda-
setu.“
DAGAR GÖRANS PERSSON TALDIR
„Það má gera ráð fyrir að dagar Görans Persson sem
formanns Jafnaðarmanna séu taldir,“ segir Baldur
Þórhallsson, stjórnmála-
fræðingur. „Að sama skapi
er þetta sigur fyrir borgara-
legu öflin. Það er athyglis-
vert að þeim skuli takast í
bandalagi að fella stjórnina
og að það sama hafi gerst í
Svíþjóð og Noregi að banda-
lag stjórnarandstöðuflokka
takist að fella sitjandi stjórn,
þó að það hafi verið vinstri
armurinn í Noregi. Íslenskir
stjórnarandstæðingar hafa
horft til norska bandalags-
ins.“
ATVINNUMÁLIN MIKILVÆG
„Borgaralegu flokkarnir höfðu verið bjartsýnir og
mér sýnist það vera að ganga eftir að þeir nái þessu,“
segir Arnbjörg Sveins-
dóttir, þingflokksformað-
ur Sjálfstæðisflokksins.
„Þeir hafa lagt áherslu á
atvinnumálin og ég held
að fólk horfi dálítið til
þess. Báðir armarnir hafa
stundað velferðarpólitík,
svo það gæti verið að
atvinnumálin hafi skipt
mestu.“
RÍKISSTJÓRNARSKIPTI Í SVÍÞJÓÐ
VESTURBAKKINN, AP Mahmoud
Abbas, forseti Palestínu, hefur
frestað viðræðum við Hamas um
myndun nýrrar ríkisstjórnar.
Töfin þykir benda til þess að
Abbas eigi í erfiðleikum með að
fá Hamas til að mýkjast í afstöðu
sinni gagnvart Ísrael, en Banda-
ríkin hafa sett það sem skilyrði ef
þau eigi að samþykkja nýju
stjórnina að hún viðurkenni
Ísraelsríki. Talsmaður Abbas
segir það ekki þjóna neinum
tilgangi að mynda stjórn sem ekki
viðurkenni Ísrael því það myndi
skilja nýju stjórnina eftir í sömu
sporum og þá fráfarandi. - þsj
Viðræðum í Palestínu frestað:
Illa gengur að
mynda stjórn
ÞÝSKALAND, AP Frank-Walter Stein-
meier, utanríkisráðherra Þýska-
lands, segist styðja hugmyndir
um að koma á fót alþjóðlegu
kjarnorkuveri til að auðga úran
fyrir þróunarlönd. Hann telur að
slíkt ver geti hjálpað til við að
verjast frekari útbreiðslu
kjarnavopna. Alþjóðakjarnorku-
málastofnunin er nú þegar að
skoða möguleikann á slíku
kjarnorkuveri. Það yrði þá undir
stjórn alþjóðlegrar stofnunar,
líklega Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunarinnar, og myndi vera
háð útflutningsreglum hennar. -þsj
Utanríkisráðherra Þýskalands:
Vill alþjóðlegt
kjarnorkuver
FRANK-WALTER STEINMEIER Er hlynntur
hugmyndum til að koma í veg fyrir
útbreiðslu kjarnavopna.
BANDARÍKIN, AP Elizabeth Shoaf, 14
ára stúlku frá Suður-Karólínu í
Bandaríkjunum, var bjargað
ómeiddri frá mannræningja í
fyrradag eftir að henni hafði tekist
að senda SMS-skilaboð úr farsíma
ræningjans til móður sinnar. Ekkert
hafði spurst til hennar síðan 6.
september.
Lögreglan handtók í gær Vinson
Filyaw, 37 ára gamlan mann, sem
grunaður er um að hafa haldið stúlkunni
fanginni í holu. Hann verður kærður fyrir
mannrán, vörslu ólöglegrar sprengju og að
dulbúast sem lögreglumaður.
Að sögn rannsóknarlögreglu þóttist
Filyaw vera lögreglumaður þegar hann hitti
Shoaf og gekk með hana út í skóg. Hann hélt
henni svo fanginni í tæplega fimm
metra djúpri holu sem hann huldi
með krossviði. Í holunni var hand-
grafið klósett, eldunaraðstaða og
útskornar hillur. Í prísundinni hótaði
Filyaw stúlkunni með heimatilbún-
um handsprengjum og byssu sem
skýtur neyðarblysum.
Lögreglan fékk ábendingu um
ferðir mannræningjans frá konu sem
sagði hann hafa reynt að ræna bíl
sínum fyrir utan pítsustað. Lögreglan hafði
áður reynt að handtaka manninn á heimili
hans, en hann flúði gegnum göng úr svefn-
herbergi sínu út í kofa þar sem hann faldist.
Hans hafði áður verið leitað vegna gruns um
að hafa áreitt 12 ára stelpu kynferðislega.
- sgj
Lögregla bjargaði stúlku úr prísund og handtók meintan ræningja hennar:
Sendi SMS-skilaboð til móður sinnar
ELIZABETH SHOAF
PRÍSUND STÚLKUNNAR Elizabeth Shoaf var haldið fang-
inni í skítugri holu í rúma viku af ræningja sínum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FJÖLMIÐLAR Róbert Marshall,
framkvæmdalegur forstöðumað-
ur NFS, skrifar Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni, forstjóra Baugs,
opið bréf í
Fréttablaðinu í
dag. Þar biður
hann Jón um að
loka ekki frétta-
stofunni, en
fréttir um
fyrirhugaða
lokun hennar
hafa heyrst
undanfarna
daga.
„Ekki loka sjoppunni áður en
búið er að opna hana til fulls. Í
fullri opinni dreifingu er þetta
viðskiptahugmynd sem gengur
upp,“ er meðal þess sem Róbert
skrifar í bréfi sínu sem hefst á
orðunum „Kæri Jón“. - sjá síðu 21/sþs
Róbert Marshall:
Opið bréf til
Jóns Ásgeirs
FLORIDA, AP Maður sem hefur um
árabil haldið því fram að hann
sé sjóliði sem kyssir hjúkrunar-
konu á heimsfrægri mynd Life
tímaritsins af fagnaðarlátum
New York búa við lok seinni
heimsstyrjaldar, kom nýverið í
veg fyrir rán á heimili sínu. Carl
Muscarello, sem er orðinn 80
ára gamall, segist hafa komið að
tveimur innbrotsþjófum þar
sem annar þeirra sveiflaði
golfkylfu að stjúpsyni hans.
Félagi hans komst undan en
Muscarello hafði hinn undir og
hélt honum föstum þar til
lögreglu bar að garði. - þsj
Brotist inn til áttræðs manns:
Kyssandi sjóliði
gómaði þjóf
DANMÖRK Helle Thorning-
Schmidt, formaður danska
Jafnaðarmannaflokksins, vill að
boðað verði til
kosninga í
landinu sem
fyrst. Segir hún
danska
velferðarkerfið
í hættu vegna
skattalækkana
ríkisstjórnar-
innar. Talsmað-
ur ríkisstjórn-
arflokksins
Venstre segir hugmyndina ekki
koma sér á óvart.
Samkvæmt nýjustu skoðana-
könnun á fylgi flokka í Danmörku
eykst fylgi við Jafnaðarmanna-
flokkinn um tæp fjögur prósentu-
stig. Minnkandi stuðningur við
ríkisstjórnina skrifast á óvin-
sældir íhaldsmanna. En þeir
fengju aðeins átta prósent
atkvæða ef kosið yrði nú. - ks
Danski jafnaðarmannaflokkurinn:
Boðað verði til
þingkosninga
HELLE THORNING-
SCHMIDT
RÓBERT MARSHALL
Jakob endurkjörinn
Jakob Hrafnsson var í gær endur-
kjörinn formaður ungra framsóknar-
manna. Jakob var kjörinn til tveggja
ára en þetta er annað starfstímabil
hans sem formaður SUF. Jakob var
einn í framboði.
STJÓRNMÁL