Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 18. september 2006 5 Haustið er hentugur tími til að tryggja að gluggarnir séu þéttir. Enn eru nokkrir hlýir dagar eftir áður en veturinn skellur á. Þá má til dæmis nýta í að fara yfir glugg- ana á húsinu eða íbúðinni. Það borgar sig til dæmis að endurnýja kíttið við gluggana reglulega. Að endurnýja kíttið tryggir að kalt loft kemst ekki inn á milli rúðu og ramma og það eykur einangrunargildi glugga til muna. Áður en hafist er handa er hægt að nota hníf eða rakvélablað til að skera gamalt kítti í burtu ef þess þarf. Svo er dregin sæmilega þykk rönd í kverkina á milli glugga- rammans og rúðunnar. Eftir það er notaður mjúkur spaði sem dreginn er yfir kíttið til að þrýsta því niður í kverkina, þétta hana vel og mynda 45 gráðu horn á rúðuna. Annað bragð er að vera í þunnum latexhönskum, dýfa einum fingri í vatn og strjúka honum yfir kíttið, og þrýsta því í leiðinni niður í kverkina. Kíttum glugga Gluggar einangra betur ef kíttið á milli rúðu og ramma er endurnýjað reglulega. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Auðvelt er að nota sporjárn sem hefil þegar unnið er með smærri fleti. Til að spæna við með sporjárni er járnið lagt að viðarfletinum aðeins á ská og flati hluti járnsins lagður flatt á flötinn. Járninu er svo rennt yfir með skurðarhreyf- ingu. Með þessari aðgerð næst tvennt. Annars vegar lágt skurðarhorn og hins vegar eru trefjarnar skornar á ská. Stórgóð hugmynd sem vert er að láta á reyna. hollráð } Sporjárn sem hefil Það getur verið krefjandi að gera upp glugga og hurðir. Hurðir og gluggakarmar eru áberandi en sé fallega frá þeim gengið geta þau breytt yfirbragði herbergisins. Undir- búningsvinnan skiptir hér höfuðmáli. Ef flöturinn sem mála á er glansandi og hugsanlega erfiður, borgar sig að nota grunnmálningu í fyrstu umferð. Að öllu jöfnu ber að nota olíugrunn þar sem væntanlega verður notuð olíumálning í framhaldinu. Hægt er að taka hurðina af hjörunum og leggja hana á búkka svo þægilegra sé að vinna verkið. Gallinn er þó sá að ryk sest frekar á láréttan flöt. Fallegasta áferðin næst með olíu- málningu og það er auðveldara að vinna með hana en plastmálningu. Hér á eftir eru nokkrar ábendingar sem hafa má í huga þegar hurð er máluð: - Skrúfaðu húninn af, lykillaufin og rósetturnar, ef slíkt er áfast, sem og annað sem fest er með skrúfum í hurð- ina. - Þvoðu alla þá fleti sem á að mála. Notaðu salmíakshreinsi. Skolaðu svo vel með hreinu vatni og láttu flötinn þorna. - Gljáandi fletir hafa ekki eins mikla viðloðun og því þarf að pússa niður gam- alt lakk og gera það matt. Pússa þarf alla ómálaðan við með meðalgrófum sand- pappír til að losna við trefjar sem kunna að hafa ýfst upp eftir þvottinn. - Grunnaðu ómálaðan við með olíu- grunni eða þynntri olíumálningu. - Sparslaðu í sár og flekki eftir að búið er að grunna. - Einnig skal sparsla í sár í fulningum en líklegt er að nota þurfi puttana í stað spaða. - Pússaðu sparslið niður þegar það er orðið þurrt. Sparslaðu aftur og pússaðu eina ferðina enn. - Grunnaðu sparslaða fleti með þeirri málningu sem á að nota og pússaðu létt yfir þegar hún hefur þornað. - Málaðu a.m.k. tvær umferðir og pússaðu létt yfir með sandpappír á milli umferða. - Notaðu breiðan, flatan pensil til að dreifa málningunni og jafna hana út. - Reynið að mála allar umferðirnar þunnt. Þrjár þunnar umferðir gefa ætíð betri áferð en tvær þykkar. Til að fræðast meira um málningu glugga og hurða er bent á bókina Verk að vinna, handbók um viðgerðir, viðhald og smíðar sem Húsasmiðjan gefur út. Innihurðin máluð á réttan hátt Það er vandaverk að mála hurð svo vel sé. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.