Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 66
18. september 2006 MÁNUDAGUR26
Kl. 20.00
Gunnar Guðbjörnsson tenór og Jónas
Ingimundarson píanóleikari halda
tónleika í Vinaminni á Akranesi. Á
efnisskránni er þýsk ljóðatónlist auk
íslenskra og ítalskra sönglaga.
> Dagar taldir
Leikritið Mein Kampf verður frumsýnt
í Borgarleikhúsinu eftir fimm daga
en í verkinu greinir frá gloppóttum
listferli ungs Austurríkismanns að nafni
Adolf. Málarinn kappsfulli er mættur
til Vínarborgar til að sækja um skólavist
og vingast þar við bóksala af gyðinga-
ættum sem kveikir hjá honum áhuga á
stjórnmál-
um. Leikrit
George
Tabori er
hárbeitt og
meinfyndið
og varpar
alveg nýju
ljósi á
persónu
Hitlers.
Nýlega var tilkynnt um þær sex
bækur sem keppa munu um
bresku bókmenntaverðlaunin
sem kennd eru við Man Booker
en samkvæmt venju hafði áður
verið tilkynnt um tilnefningar
nítján skáldsagna. Á listanum
að þessu sinni eru skáldsögurn-
ar The Inheritance of Loss eftir
Kiran Desai, The Secret River
eftir Kate Grenville, Carry Me
Down eftir M.J. Hyland, In the
Country of Men eftir Hisham
Matar, Edward Mother‘s Milk
eftir St. Aubyn og The Night
Watch eftir Sahrah Waters.
Í ummælum formanns dóm-
nefndarinnar, Hermione Lee, er
þess getið að allar þessar bækur
beri þá kosti sem dómnefndin
leitaði eftir; þær hafi skýra og
frumlega rödd, ríkulegt ímynd-
unarafl sem flytur lesendur um
ókannaðar hugarlendur, sterkan
frásagnarhátt og séu jafnframt
sannferðugar mannkynssög-
unni. „Hver þessara sagna skap-
ar heim sem lesandinn þekkist
vandræðalaust og vantreystir
ekki á meðan á lestri stend-
ur og innheldur stemningu og
andrúmsloft sem endist lengi
að lestri loknum.“
Verðlaunahafinn, sem tilkynnt-
ur verður 10. október næstkom-
andi, hlýtur að launum 50.000
pund og nokkuð skothelda
ávísun á aukinn lestur. Hver
höfundanna fær einnig 2.500
pund fyrir tilnefninguna, auk
veglegrar innbundinnar útgáfu
af eigin bók.
Úrslitabækur Booker-verðlauna
SKÁLDSAGA KATE GRENVILLE
Tilnefnd til Man Booker-bókmennta-
verðlaunanna 2006.
Listamennirnir Dodda
Maggý Kristjánsdóttir og
Ragnar Jónasson hlutu
styrki úr minningarsjóði
Guðmundu Andrésdóttur
listmálara við hátíðlega
athöfn um helgina.
Guðmunda lést árið 2002 en hún til-
heyrir þeirri kynslóð listamanna
sem á sjötta áratug síðustu aldar
ruddi abstraktlistinni braut í
íslenskri listasögu. Innan þess tján-
ingarforms þróaði hún persónuleg-
an stíl sem gerir framlag hennar til
íslenskrar samtímalistar bæði
sterkt og áhrifamikið. Hún arfleiddi
Listasafn Íslands, Listasafn Háskóla
Íslands og Listasafn Reykjavíkur
að listaverkum sínum.
Ráðstöfunarfé sjóðsins er
raunvextir af höfuðstól og ákvað
stjórn sjóðsins, sem er skipuð
safnráði Listasafns Íslands, að
ráðstafa að þessu sinni þremur
milljónum króna sem deilast jafnt
milli styrkhafanna tveggja.
Markmið sjóðsins er að hvetja
og styrkja unga og efnilega mynd-
listarmenn til náms en hann styrk-
ir að þessu sinni myndlistarnema
til framhaldsmenntunar. Dodda
Maggý mun hefja nám við Kon-
unglegu Listaakademíuna í Kaup-
mannahöfn en Ragnar stundar sitt
nám við Glasgow School of Arts.
„Það er fyrst og fremst mikill
heiður að hafa hlotið þennan
styrk,“ segir Dodda Maggý, sem
er að vonum ánægð með útnefn-
inguna. Hún bætir því við að fjár-
hæðin komi sér líka vel því hún
hefur verið starfandi myndlistar-
maður frá því hún lauk námi í
Listaháskóla Íslands árið 2004 en
hefur lítið getað safnað sér í náms-
sjóð á þeim tíma.
Verk hennar má nú sjá á sam-
sýningunni Prójekt Patterson
sem stendur yfir í Galleríi Suð-
suðvestur í Reykjanesbæ en
Dodda Maggý vinnur einkum með
vídeó og tónlist. „Ég blanda líka
þessum miðlum saman, vinn með
ólíkar stemningar og framvindu
og bý til litlar sögur,“ segir hún.
Dodda Maggý hefur haldið fáar
sýningar hér á landi en sýnt þeim
mun meira erlendis, til dæmis í
París, New York og víðar í Banda-
ríkjunum en hún er nú á leið til
Berlínar þar sem hún mun taka
þátt í listahátíðinni Berliner
Liste. - khh
Ungt listafólk fær styrk
STYRKIR TIL FRAMHALDSNÁMS Í LISTUM Styrkhafarnir í ár voru Dodda Maggý Kristjánsdóttir og Ragnar Jónasson en faðir hans,
Jónas Ragnarsson, tók við styrknum fyrir hans hönd. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
menning@frettabladid.is
!
LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður
kvöldverður og leikhúsmiði
frá kr. 4300 - 4800
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
frá kl. 10 til 16 mánudaga
- fimmtudaga í síma 437 1600
Staðfesta þarf miða með greiðslu
viku fyrir sýningardag
Sýningar
í Landnámssetri
í september og október
Laugardagur 23. september kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 24. september kl. 16 Uppselt
Miðvikudagur 27. september kl. 20 Laus sæti
Fimmtudagur 28. september kl. 20 Laus sæti
Fimmtudagur 5. október kl. 20 Laus sæti
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������� �� �������������������� �� �� �����
�������������������������������
�������������� �� ���������������������������������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
��������������������������������������������������������������������
������������ ����������������������������������������
����������������������������������� �������������������������������