Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 36
18. september 2006 MÁNUDAGUR16
Tré ársins 1998 er slútbjörk við Sniðgötu á Akureyri og hangir limið í
löngum slæðum úr víðri krónu þess. Ekki hefur tekist að fá áreið-
anlegar upplýsingar um uppruna trésins, en fyrri eigendur hússins
töldu það komið frá ræktunarstöðinni á Hallormsstað með dönskum
garðyrkjumanni í kringum 1920. MYND BRYNJÓLFUR JÓNSSON
Tré ársins 1999 er álmur framan við Túngötu 6. Álmurinn er eitt af
djásnum Reykjavíkur, hann breiðir umfangsmikla krónu sína í allar
áttir og hefur á síðustu árum fengið að vaxa án þrengsla. Stofninn
greinist í um 1 m hæð í tvo meginstofna. Það var líklega gróðursett
um eða upp úr 1910. MYND JÓN GEIR PÉTURSSON
Tré ársins 2003 er fallegur, tæplega hálfrar aldar gamall garðahlynur, við Bröttuhlíð 4 í Hveragerði. Hlynurinn er frá Tumastöðum og líklega gróðursettur á tímabilinu 1953-1955. Þvermál krónunnar er um 14 m en hæð
trésins um 8 m. Stórfengleg krónan vekur fyrst athygli þegar tréð er skoðað. MYND BRYNJÓLFUR JÓNSSON.
Tré ársins 2004 er evrópulerki
við Hafnargötu á Seyðisfirði.
Tréð stendur við aldargamalt
timburhús sem byggt var fyrir
tilstilli Wathne-ættarinnar, sem
setti mikinn svip á athafnalíf
Seyðisfjarðar. Lögun þess er afar
óvenjuleg og það er með elstu
lerkitrjám á Íslandi.
MYND BRYNJÓLFUR JÓNSSON
Tré ársins 2005 er fallegt rússa-
lerki við Digranesveg í Kópa-
vogi. Talið er að það hafi verið
gróðursett fyrir 1939. Örlög þess
virtust ráðin árið 1992 er það var
hætt komið vegna framkvæmda
við lengingu Digranesvegar niður
í Kópavogsdalinn. Garðyrkjustjóri
bæjarins bjargaði trénu úr for og
eðju. MYND BRYNJÓLFUR JÓNSSON.
Tré ársins 2006 er gráösp í garði Austurgötu 12 í Hafnarfirði. Hún er 11,10 m há og talin gróðursett árið 1922 fyrir tilstuðlan eiganda lóðarinnar,
Geir Zoëga útgerðarmanns. Í miklu óveðri í september 1972 hallaðist tréð að steyptum vegg umhverfis garðinn og á honum líklega líf sitt að
launa. MYND BRYNJÓLFUR JÓNSSON.
Sá árstími er nú genginn í garð að laufblöð
trjáa taka að skipta litum og fyrr en varir
verða þau flest fokin út í veður og vind, brún,
rauð og gul.
Það er því um að gera að njóta þeirra á meðan þau
eru enn á sínum stað, en eins og meðfylgjandi
myndir sýna geta tré í fullum skrúða verið með
eindæmum falleg. Auk þess að vera sannkallað
augnakonfekt eiga þau öll sammerkt að hafa verið
útnefnd tré árins á einhverjum tímapunkti af Skóg-
ræktarfélagi Íslands, en upplýsingarnar hér að
neðan eru frá því komnar.
ÞYTUR Í LAUFI