Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 70
Sigurganga myndarinnar Zidane: Andlit 21. aldar- innar heldur áfram en hún gerði góða ferð á Toronto- kvikmyndahátíðina nýverið. Sigurjón Sighvatsson framleiðir kvikmyndina og þegar Fréttablað- ið náði tali af honum var hann staddur í Kaupmannahöfn á leið- inni heim til Los Angeles. „Zidane var sýnd í Feneyjum fyrir skömmu þar sem hún keppti um Gucci-verð- launin en tapaði naumlega fyrir Nick Cave og mynd hans The Propo- sition,“ segir Sigurjón. „Síðan var hún sýnd í Toronto nýlega þar sem myndin sló gjörsamlega í gegn,“ bætir Sigurjón við en eitt stærsta blað Kanada, Globe and Mail, birti lofsamlega dóma um kvikmyndina og sagði þetta vera bestu íþrótta- mynd allra tíma. „Þessi dómur hafði gríðarlegt vægi og umfjöllun um myndina var á forsíðunni á íþróttadálki blaðsins,“ segir framleiðandinn. Kvik- myndahátíðin í Toronto er ein stærsta söluhátíð kvikmyndaiðnaðarins og ganga myndirnar kaupum og sölum á hverju götuhorni. Fjöldi kvikmyndastjarna leggur leið sína til borgarinnar en þeirra stærst var vafa- lítið leikarinn Brad Pitt sem kom þangað til að kynna sína nýjustu mynd, Babel. „Globe and Mail sagði reynd- ar að Pitt væri ekki stærsta stjarnan á hátíðinni heldur Zidane á hvíta tjald- inu,“ segir Sigurjón og hlær. Myndin fékk mikla athygli dreifingaraðila þótt framleið- andinn viðurkenni að hún hafi selst nokkuð hægt til að byrja með. „Okkur tókst loksins að selja myndina til Þýskalands og Ítalíu,“ segir Sigurjón og bætir jafnframt við að hann hafi búist við meiri áhuga frá Suður- Ameríku þar sem knatt- spyrnan er nánast trú- arbrögð. „Eftir velgengnina í Toronto fór hins vegar að bera á eftirspurn eftir myndinni þar,“ bætir Sigurjón við og lætur þess jafnframt getið að bandarískir aðilar hafi einnig verið áhugasamir um að kaupa myndina sem eru mikil gleðitíðindi fyrir Sigurjón enda fótboltinn ekki hátt skrifaður þar vestra. Leikstjórar Zidane- myndarinnar hafa hug á því að gera aðra mynd um knattspyrnu og þá frá sjónarhóli áhorfandans og ætlar Sigurjón einnig að fram- leiða þá mynd. „Þá er ég að vinna í kvikmynd með Kathryn Bigelow sem heitir Devil in the White City og er um einn fyrsta raðmorðingja Bandaríkjanna,“ útskýrir hann en samningar hafa náðst við Óskars- verðlaunahafann Adrien Brody um að taka aðalhlutverkið að sér. „Einnig er verið að leggja drög að endurgerð norsku myndarinnar Elling sem Jay Roach ætlar að leikstýra,“ segir Sigurjón. freyrgigja@frettabladid.is Zidane skyggði á Pitt BRAD PITT Mætti til Toronto til að kynna kvikmynd sína Babel en féll í skuggann af sjálfum Zidane. SIGURJÓN SIGHVATS- SON Er ánægður með viðbrögðin við kvikmyndinni þótt salan á henni hafi farið hægt af stað. ZIDANE Hefur lítið viljað láta ná í sig eftir atvikið á úrslitaleik HM í knattspyrnu. Það var tekið vel og hlýlega á móti okkur á veitingastaðnum Vox. Samt var ég orðinn soldið leiður á útsýninu yfir bílastæðið þegar forréttirnir voru á borð bornir eftir 40 mínútna bið. Þjónarnir reyndu þó að gera okkur biðina bærilega með því að færa okkur í tvígang smábita, amuse bouche, til að leika við bragðlaukana. Við tókum forréttunum fegins hendi. Ég hafði valið steikta humar- hala með grænmetissalsa, súrmjólkurskýi og humargeli (kr. 2.150) en Sólveig pantaði sandhverfu með sultuðu grænmeti, brenndu smjör- kremi og ferskum kryddjurtum (kr. 2.100). Hvorttveggja ágætt. Humar- inn var volgur, en sandhverfan borin fram köld. Þegar við komum voru fáir gestir í stórum veitingasalnum en þeim fjölgaði smátt og smátt og um átta-leytið voru flest borð setin. Innrétt- ingin þarna er afskaplega alþjóðleg. Maður gæti verið staddur í veit- ingasal á nýlegu hóteli hvar sem er í heiminum. Ég ákvað því að treysta íslensku sauðkindinni á matseðlinum til að halda uppi þjóðlegri reisn og bað um lamb eldað á fjóra vegu; fram- hryggjarvöðva, lundir, rifjur og skanka í lambasoði með rótargrænmeti (kr. 3.700). Það er ekki hægt að segja að lambið hafi brugðist vonum, en erfitt fannst mér að greina þessar mismunandi eldunaraðferðir nema hvað skankarnir voru moðsoðnir. Ágætur matur í sjálfu sér en ekki mjög spennandi. Þarna hefði þurft eitthvað til að draga fram og undirstrika bragðgæði kjötréttanna. Sólveig var einnig þjóðernissinnuð og ákvað að bragða skelfiskpylsu, steiktan humar, tortellini og stökksteiktan karfa í vermút smjörsósu (kr. 3.600). Landhelgisafurðirnar voru mun fjölbreyttari en lambið og sam- setningin skemmtilegri. Biðin styttist við hvern rétt. Lengst var hún eftir forréttinum og styst eftir ábætinum. Samt fóru þjónarnir á taugum og færðu okkur kaffið á undan eftirréttunum. Ég var nú ekki meira en svo saddur eftir lambið svo að ég bað um súkkulaði-eftirréttinn: Súkkulaði-mús m. heitri súkkulaðisósu, hindberj- um og ís ilmuðum úr kakóbaunastilk (kr. 1.550). Verulega seðjandi, en aðeins meira af hindberjum eða ís hefði gert súkkulaðið í þessari súkku- laði-orgíu aðeins minna yfirþyrmandi. Borðdaman valdi epli í ábæti: Eplasúpu, créme brulée, eplakrapís og eplasíróp. Ágætt, en henni fannst gott að fá að bragða á súkkulaðibirgð- unum mínum til að brjóta upp eplabragðið. Þessi máltíð var soldið eins og hið alþjóðlega hótelumhverfi, ekki sér- lega eftirminnileg nema fyrir verðið. Vox Restaurant Nordica Hotel Suðurlandsbraut 2 108 Reykjavík Íslenskt hráefni – alþjóðlegt umhverfi Nýjasta plata Becks Hansen, Information, er væntanleg 3. okt- óber. Beck hefur tekið upp mynd- band við hvert einasta lag á plöt- unni sem hægt verður að sjá á heimasíðum á borð við YouTube. com. Einnig verður hægt að hlaða lögunum niður af netinu. „Við erum að ganga inn í tíma- bil þar sem hvert lag og mynd- bandið við það eru orðin ein heild,“ sagði Beck. „Þetta er ekki lengur bara tónlistin, heldur eitthvað allt annað.“ Með hverju eintaki plötunnar fylgir nánast autt umslag með lím- miðum svo að hlustendur geti dundað sér við að búa til sitt eigið umslag á meðan þeir hlusta á grip- inn. „Við erum að láta fólk fá verk- efni svo það komi sér ekki í vand- ræði á meðan það hlustar á plötuna,“ sagði Beck. Myndband við hvert lag BECK Tónlistarmaðurinn Beck sendir frá sér nýja plötu 3. október. ����������������� ������������������ ������� �� ������������������������������������������������ � � � ��� �� �� �� ��� �� �� �� �� ��������� �� ����� ������ MEÐ HNÍF OG GAFFLI Þráinn Bertelsson skrifar Máltíð fyrir tvö (og tvö glös af hvítvíni hússins) kostaði 17.430 kr. Plúsarnir eru afar vingjarnleg þjónusta og greinilegar tilraunir til tilþrifa í eldamennsku jafnvel þótt þær heppnist ekki allar fullkomlega. Mínusarnir eru óspennandi umhverfi, smáir skammtar. !óíbí.rk004 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 CLERKS 2 kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA MY SUPER EX-GIRLFRIEND kl. 10 ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8 YOU, ME & DUPREE kl. 6 GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 6 TAKK FYRIR AÐ REYKJA THANK YOU FOR SMOKING CLERKS 2 kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 5.45, 8 og 10.15 SÝND Í LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15 MY SUPER-EX GIRLFRIEND kl. 5.50, 8 og 10.10 LITTLE MAN kl. 3.50, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 8 B.I. 7 ÁRA GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 3.50 og 6 GRETTIR 2 ENSKT TAL kl. 4 ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 4 ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8 og 10.15 TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA KVIKMYNDAHÁTÍÐ VOLVER kl. 5.50 og 8 THREE BURIALS OF MELEQUIADES ESTRADA kl. 5.50 ENRON: THE SMARTEST GUYS IN THE ROOM kl. 6 og 10.10 LEONARD COHEN: Í M YOUR MAN kl. 10 FACTOTUM kl. 6 og 8 EMPIRE Heiðarleg, fróðleg og bráðskemmtileg mynd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.