Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 18. september 2006 15 KÖNNUN Rúmlega 70 prósent við- skiptavina eru mjög eða frekar ánægð með þjónustu fasteigna- sala. Hins vegar þurfa fasteigna- salar að huga betur að þjónustu sinni vegna ágreiningsmála sem upp koma í kjölfar viðskipta. Þetta kemur fram í nýrri við- horfskönnun sem Félag fast- eignasala lét vinna fyrir sig. Könnunin náði til viðskiptavina fasteignasala frá 1. apríl 2005 til 1. apríl 2006. Tæplega helmingur aðspurðra segist bera mjög mikið eða frekar mikið traust til fasteignasala. Rúmur helmingur vantreystir því fasteignasölum. Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fast- eignasala, segir ljóst að huga verði að því hvernig unnið verði að bættri ímynd fasteignasala almennt. „Eitt af því sem þarf að skoða er að fasteignasalastéttin, ólíkt nánast öllum sérfræðistétt- um, er spyrt saman við gríðarleg- an fjölda fólks sem starfar við fasteignasölu án þess að vera fasteignasalar og sinnir oft ráð- gjöf án þeirrar kunnáttu sem til þarf.“ Að sögn Grétars sýna niður- stöður könnunarinnar að reynsla viðskiptavina á fasteignasölum, þar sem fáir fasteignasalar starfa er verri en þar sem margir fast- eignasalar eru við störf. Einungis 2,5 prósent segja verð þjónustunnar hafa ráðið vali seljenda á fasteignasölu. Tæplega 70 prósent nefndu persónuleg tengsl, góða reynslu af fasteigna- sölunni og meðmæli annarra. - sdg GRÉTAR JÓNAS- SON Segir kannan- ir nauðsynlegar til að skoða málefni fasteignasalastétt- arinnar gagnrýnið og bæta úr þar sem úrbóta er þörf. Rúmur helmingur viðskiptavina vantreystir fasteignasölum: Vill bæta ímynd fasteignasala UTANRÍKISMÁL Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra er stödd í opinberri heimsókn í Kína dagana 14. til 19. september í boði Sun Jiaqheng, menningarmálaráðherra Kína. Á fundum Þorgerðar með kínverskum ráðherrum hefur komið í ljós mikill áhugi á að efla samstarf ríkjanna á sviði mennta- og vísindamála. Samkomulag var undirritað um menningarsam- skipti Íslands og Kína árin 2007 til 2010. Samskipti Íslands og Kína í menntamálum hafa aukist mikið undanfarin ár í kjölfar stórauk- inna viðskipta ríkjanna. - sdg Menntamálaráðherra á ferð: Aukið samstarf Íslands og Kína VIÐSKIPTI Dótturfélag Avion Group, XL Leisure Group, hefur fest kaup á öllu hlutafé frönsku ferðaskrifstofunnar Vacances Heliades. Kaupverðið er tæplega 700 milljónir. Heliades flýgur frá Frakklandi til átta mismunandi áfangastaða í Grikklandi og víðar. Mikil samlegðaráhrif felast í kaupunum fyrir Avion Group því að breska ferðaskrifstofan Kosmar, sem er einnig í eigu Avion Group, flytur farþega til sömu áfangastaða að hluta til. Þá verður flugrekstraraðili félagsins í Frakklandi Star Airlines, en Avion Group festi kaup á því flugfélagi í febrúar. - þsj Avion Group færir út kvíarnar: Kaupa franska ferðaskrifstofu INTERNET Skráning léna með endinguna .is er í höndum einkaaðila á Íslandi, ólíkt flestum öðrum löndum. Internet á Íslandi hf., sem er í eigu Dagsbrúnar, hefur einkaleyfi á því að skrá lén sem hafa .is endinguna. Kostnaður við að skrá lén er mun hærri hér en í löndunum í kringum okkur. Árið 1987 var SURIS, Samtökum um upplýsinganet rannsóknaraðila á Íslandi, úthlutað einkaleyfi á skráningu léna með endinguna .is af alþjóðlegu internetsamtök- unum IANA. Átta árum síðar tók Internet á Íslandi hf. við úthlutun lénanna. Fyrirtækið var síðar selt Íslandssíma og er nú í eigu Dagsbrúnar. Það hefur einkarétt á skráningu léna með þessa endingu. Leyfið, sem er gefið út af IANA, hefur engin sérstök tímamörk. „Í langflestum tilfellum er skráning þjóðarléna í höndum stofnana sem eru annað hvort í eigu ríkis viðkomandi lands eða allra hagsmunaaðila sem koma að málinu,“ segir Maríus Ólafsson, netstjóri hjá Internet á Íslandi. „Hér er reksturinn hins vegar í eigu aðeins eins af hagsmunaaðilun- um. Það er ekkert leyndarmál.“ Hrafnkell Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir heppilegt fyrir alla aðila ef skoðað væri hvort stjórnvöld ættu að setja almennar reglur um úthlutun á lénum. „Það má ræða með hvaða hætti heimildin til úthlutunarinnar væri gefin út. Vissulega hefur verið rætt um hvort fleiri en einn aðili ætti að fá að skrá lén með .is-endingunni.“ „Okkar afstaða er mjög einföld, við teljum einokun alltaf af hinu verra fyrir neytendur,“ segir Jóhannes Gunnarsson, for- maður Neytendasamtakanna. „Ef nauðsyn- legt er að vera með einokun á einhverju sviði þá er sjónarmið Neytendasamtakanna að það eigi að vera í höndum hins opinbera.“ Stofngjald léns með endinguna .is hjá Internet á Íslandi er 12.450 krónur. Árgjald sama léns er síðan 7.918 krónur. Til saman- burðar kostar tæpar fimm þúsund krónur að stofna lén með endinguna .fo í Færeyjum, en samanburður við Færeyjar liggur beinast við vegna staðsetningar og markaðsstærðar. Þar er árgjaldið 5.500 krónur. Skráning á léni með endinguna .com kostar að meðaltali um þúsund krónur á ári og er án sérstaks stofngjalds. - sþs Internet á Íslandi, sem er í eigu Dagsbrúnar, hefur einkaleyfi á skráningu léna sem enda á .is: Einokun á lénsskráningunni .is VEFSÍÐA FYRIRTÆKISINS Forstjóri Póst- og fjarskipta- stofnunar segir að vissulega hafi verið rætt um hvort fleiri en einn aðili ætti að fá að skrá lén með endingunni .is VINNUMARKAÐUR Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness hafa aldrei verið jafn margir og nú. Í árslok 2004 voru félagar um 1.800 talsins og hafði fjölgað um tæp tvö hundruð á einu ári. Í árslok í fyrra voru þeir tæplega nítján hundruð og hafði þeim fjölgað um rúmlega sjötíu á árinu. Á vef verkalýðsfé- lagsins kemur fram að það sem af er þessu ári hefur félögum fjölgað um þrjú hundruð og eru þeir því nú tæplega 2.200. Mest hefur fjölgunin verið hjá Norðuráli, Íslenska járnblendifélaginu, HB-Granda og Smellinum. - ghs Verkalýðsfélag Akraness: Félagsmönnum fjölgar ört AKRANES Verkalýðsfélögum fjölgar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.