Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 62
timamot@frettabladid.is
18. september 2006 MÁNUDAGUR22
Á þessum degi árið 1961 lést Dag
Hammarskjöld, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, í flugslysi, í
Norður-Ródesíu (Sambía í dag).
Svíinn Dag Hammarskjöld fæddist
árið 1905 og var sonur Hjalmars
Hammarskjöld, forsætisráðherra Svía
frá 1914 til 1917. Hann var annar
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna og gegndi embættinu í sjö ár.
Dag Hammarskjöld var hagfræðingur
að mennt. Hann hóf störf fyrir hið
opinbera árið 1930 og forframaðist á
skömmum tíma og gegndi embætti
aðstoðarutanríkisráðherra árið 1951.
Ári síðar var hann skipaður sendiherra
Svía hjá Sameinuðu þjóðunum. Árið
síðar var hann kosinn framkvæmda-
stjóri samtakanna.
Hammarskjöld ferðaðist víða
og var ötull friðarstillir og lék
meðal annars lykilhlutverk
í lausn Súez-deilunnar árið
1956. Hann var endurkjörinn
framvæmdastjóri árið síðar.
Árið 1960 braust út borgara-
styrjöld í Kongó eftir að
landið hlaut sjálfstæði og lagði
Hammarskjöld mikla áherslu
á að Sameinuðu þjóðirnar
gerðu sitt til að stilla til friðar.
Hann var á leið til fundar við
uppreisnarmenn í Katanga-hér-
aði í Kongó til að miðla málum
þegar flugvél hans fórst.
Hammarskjöld voru veitt frið-
arverðlaun Nóbels að honum
látnum árið 1961.
ÞETTA GERÐIST: 18. SEPTEMBER 1961
Hammarskjöld hrapar og deyr
DAG HAMMARSKJÖLD
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1709 Samuel Johnson
rithöfundur.
1750 Tomas Iriarte rithöfundur.
1838 Anton Mauve listmálari.
1905 Greta Garbo leikkona.
AFMÆLI
Ármann Snævarr
fyrrverandi háskóla-
rektor er 87 ára.
Sveinn Einarsson
leikstjóri er 72 árs.
Einar Már Guð-
mundsson rithöf-
undur er 52 ára.
JIMI HENDRIX (1942-1970) LÉST Á
ÞESSUM DEGI
Að spila blús er auðvelt, en
það er erfitt að finna fyrir
honum.
Jimi Hendrix, brautryðjandi í
rokkgítarleik, lést langt fyrir aldur
fram úr ofneyslu eiturlyfja.
MERKISATBURÐIR
1810 Chile lýsir yfir sjálfstæði
frá Spáni.
1812 Moskva brennur. Þúsund
kirkjur og 90 prósent
íbúðahúsa verða eldinum
að bráð.
1970 Jimi Hendrix lætur lífið
vegna ofneyslu eiturlyfja.
1977 Sprenging verður í
flugeldaverksmiðju á
Akranesi. Tveir menn
látast og skemmdir urðu
á tuttugu nálægum
húsum.
1977 Jón L. Árnason, 16 ára,
varð heimsmeistari
sveina í skák. Hann
tapaði aðeins fyrir Garrí
Kasparov.
1979 Léoníd og Valentína
Koslov, dansarar við
Bolshoj-ballettinn, flýja
Sovétríkin.
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér til hliðar má
senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Einar Sigurjónsson
hárskerameistari, Sólvangsvegi 3,
Hafnarfirði, (Einar rakari),
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
þriðjudaginn 19. september kl. 13.00.
Bryndís Elsa Sigurðardóttir
Steinþór Einarsson Sylvie Primel
Guðný Elísabet Einarsdóttir Einar Eyjólfsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
-5Fyrir fimm árum var ég í píanó-kennaranámi. Stífar axlir og
kvöldæfingar með góðu fólki, töfrar
tónmálsins, mikil kennsla og frábærir
nemendur sem gleymast ei. Ritstörfin
heilluðu og rytmi lítillar borgar hélt mér
hugfanginni langt fram á rauðar nætur.
Hugurinn stefndi út í nám en í útland-
inu sólaði móðir náttúra mig upp úr
skónum og sendi mig heim með þan-
inn kvið og kvíðboga fyrir einhleyptri
framtíð.
Nú Nú er ljóst að lífið sér um sína. Halur og sprund hola sér niður
í koti með stækkandi barnahópi og
samfélagslegur áhugi vex í réttum takti.
Pólitík jafnaðarmanna heillar enda
sameinar hún kvöldæfingar með góðu
fólki, mikið nám, töfra góðra hugmynda
og hugsjóna, ritstörf og frábæra félaga
sem gleymast ei. Stífar axlir minna á sig
endrum og eins eins og gamlar vinkon-
ur. En píanóið mætti ég opna oftar.
+5Eftir fimm ár verð ég vonandi búin að lækka matarverð, jafna
kjörin, útrýma kynbundnum launa-
mun og lengja fæðingarorlofið. Tölum
saman þá.
VAR, ER & VERÐUR ODDNÝ STURLUDÓTTIR VARABORGARFULLTRÚI
Stífar axlir og jöfn kjör
Tannpínurnar Karíus og Baktus eftir
Thorbjørn Egner ganga í endurnýjun
lífdaga hjá Leikfélagi Akureyrar í
vetur. Um er að ræða eitt vinsælasta
barnaleikrit Norðurlanda, sem sett
hefur verið upp nokkrum sinnum hér á
landi en þetta er í fyrsta sinn sem þeir
bræður stíga á fjalirnar norðan heiða.
Ástrós Gunnarsdóttir leikstýrir
sýningunni og þeir Guðjón Karl Dav-
íðsson og Ólafur Steinn Ingunnarson
fara með hlutverk sykurfíklanna sem
hafa hreiðrað um sig í tönnunum á
Jens litla. „Þetta leggst bara vel í
okkur,“ segja þeir. „Börn eru kröfu-
harður áhorfendahópur og sýna enga
miskunn ef þeim líkar ekki eitthvað
svo það er um að gera að standa sig.
Fullorðnir mættu taka þau sér til fyr-
irmyndar þegar þeir fara í leikhús.“
Guðjón Karl er leikhúsgestum fyrir
norðan að góðu kunnur eftir að hafa
verið í fastahóp Leikfélags Akureyrar
í fyrra og farið með burðarrullur í
verkum á borð við Fullkomið brúð-
kaup og Litlu hryllingsbúðina. Ólafur
Steinn útskrifaðist úr leiklistardeild
Listaháskóla Íslands í vor og þetta er
því frumraun hans í atvinnuleikhúsi.
Guðjón þekkir verkið í bak og fyrir
eftir að hafa séð það fyrst sem barn og
síðan með reglulegu millibili fram á
unglingsár. „Það er óhætt að segja að
Karíus og Baktus höfðu djúpstæð
áhrif á tannhirðu mína. Sérstaklega
núna á meðan æfingum stóð, ég held
ég hafi aldrei burstað jafn oft og
ákaft.“ Ólafur Steinn hefur hins vegar
ekki séð verkið áður og kemur því
ómengaður til verks, ef svo má að orði
komast. „Ég sá þá aldrei í leikhúsi en
ég stóð hins vegar í sömu sporum og
Jens einu sinni þegar ég var lítill. Sú
reynsla á ábyggilega eftir að nýtast
mér.“
Heimamennirnir í hljómsveitinni
200 þúsund naglbítum voru fengnir til
að útsetja tónlistina upp á nýtt og er
óhætt að segja að þeir Karíus og Bakt-
us eru rokkaðri nú en áður. „Tónlistin
hljómar ótrúlega vel og búningarnir
eru groddalegir og töff,“ segir Guð-
jón. „Ég held að það sé óhætt að lofa
góðri sýningu.“ Leikritið um Karíus
og Baktus verður frumsýnt 23. sept-
ember. bergsteinn@frettabladid.is
KARÍUS OG BAKTUS: GANGA Í ENDURNÝJUN LÍFDAGA
Rokkuð tannpína fyrir norðan
LÍNURNAR LAGÐAR Ástrós Gunnarsdóttir leikstjóri leggur þeim Guðjóni og Ólafi línurnar.
KARÍUS OG BAKTUS Við upptökur í Sundlaug
Akureyrar.
JARÐARFARIR
13.00 Anna Hafsteinsdóttir,
Brekkuskógum 1,
Álftanesi, verður
jarðsungin frá
Vídalínskirkju.
13.00 Egill Hjartarson
leigubifreiðastjóri, áður til
heimilis í Skaftahlíð 32,
verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
13.30 Helga Gunnlaugsdóttir,
áður til heimilis í
Laugargötu 3, Akureyri,
verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju.
14.00 Lena Berg, Hlíðargötu
62, Fáskrúðsfirði,
verður jarðsungin frá
Fáskrúðsfjarðarkirkju.