Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 8
8 18. september 2006 MÁNUDAGUR
VEISTU SVARIÐ?
1 Hvaða þingmaður Samfylk-
ingarinnar í Norðvesturkjör-
dæmi hyggst hætta þing-
mennsku í vor?
2 Hvaða verslun hélt upp á 50
ára afmæli sitt á laugardaginn?
3 Hverjir eru nýkrýndir Íslands-
meistarar karla í knattspyrnu?
SVÖR Á BLS. 38
UMFERÐARSLYS Banaslys varð á Suð-
urlandsvegi austan við Selfoss um
níu leytið á laugardagskvöld. Ekið
var mann á sextugsaldri sem var á
hestbaki. Talið er að hann hafi lát-
ist samstundis.
Ökumaður bifreiðarinnar var
einn í bílnum og þurfti að nota
klippur Brunavarna Árnessýslu til
að ná honum út. Hann var fluttur á
Landspítala – háskólasjúkrahús í
Reykjavík en er að sögn lögregl-
unnar á Selfossi ekki alvarlega
slasaður.
Samkvæmt lögreglunni bendir
ekkert til þess að um hraðakstur
eða ölvunarakstur hafi verið að
ræða. Veginum var lokað í þrjá
tíma eftir slysið og myndaðist við
það nokkur umferðarteppa. Til-
drög slyssins eru í rannsókn hjá
Rannsóknarnefnd umferðarslysa.
Banaslysið á laugardaginn er
það tuttugasta í umferðinni það
sem af er þessu ári. Á sama tíma í
fyrra höfðu sautján látið lífið í
umferðarslysum og sextán um
þetta leyti árið 2004.
Umferðarstofa og samgöngu-
ráðuneytið standa nú fyrir átaki
gegn umferðarslysum sem ber
nafnið „Nú segjum við STOPP“. Á
heimasíðu átaksins getur fólk
skrifað undir yfirlýsingu um betri
hegðun í umferðinni með það að
markmiði að fækka slysum.
Um hádegi á laugardag höfðu
um átján þúsund manns skrifað
nafn sitt við yfirlýsinguna. Í henni
segir meðal annars að undirritað-
ur hyggist fara að lögum í umferð-
inni, hann muni gera allt sem hann
getur til að skaða hvorki sjálfan
sig né aðra í umferðinni og að hann
ætli að auðvelda öðrum vegfar-
endum að komast leiðar sinnar á
sem öruggastan hátt.
„Þátttakan í átakinu er mjög
góð og svo sem ekkert öðruvísi en
við bjuggumst við. Það vilja allir
vera með í að leggja lóð á vogar-
skálarnar. Það er óhætt að kalla
þetta þjóðarinnræti,“ segir Karl
Ragnars, forstjóri Umferðarstofu,
um viðtökur Íslendinga við
umferðarátakinu.
„Því miður eru kannski ekki
allir tilbúnir að haga sér eftir því
og alltaf einhverjir sem alls ekki
vilja það. Þarna er verið að reyna
að hafa áhrif á þá sem ástunda
þessa hegðun.“ salvar@frettabladid.is
Tuttugu hafa látið lífið í
umferðarslysum á árinu
Maður lést þegar ekið var á hann á laugardagskvöld. Banaslysið er það tuttugasta í umferðinni það sem af
er árinu. Átján þúsund manns hafa undirritað yfirlýsingu vegna umferðarátaksins „Nú segjum við STOPP“.
SUÐURLANDSVEGUR Forstjóri Umferðarstofu segist ánægður með viðtökur Íslend-
inga við umferðarátakinu „Nú segjum við STOPP“. Hann segir óhætt að kalla það
þjóðarinnræti Íslendinga að vilja leggja lóð á vogarskálarnar.
AFGANISTAN, AP David Richards,
hershöfðingi sem leiðir 20.000
manna herlið NATO í Afganistan,
sagði um helgina að aðgerðir sem
miðuðu að því að hrekja herskáa
talíbana úr fylgsnum sínum í
Suður-Afganistan hefðu heppnast
vel og væri lokið. Samkvæmt
upplýsingum frá NATO létust um
500 vígamenn talíbana í aðgerð-
unum sem stóðu yfir í tvær vikur.
Þrátt fyrir það voru gerðar tvær
sjálfsmorðsárásir á bílalestir á
vegum hersetuliðsins í gær. Tveir
óbreyttir borgarar létust í
árásunum auk þess sem sex
hermenn særðust. - þsj
NATO segir aðgerðum lokið:
Hafa hrakið
vígamenn burt
BANDARÍKIN, AP Hjúkrunarkona í
Portland í Bandaríkjunum lét
leigumorðingja ekki yfirbuga sig
þegar hún kom að honum á heimili
sínu heldur drap hann með berum
höndum. Hann réðst að konunni
með hamri þegar hún kom heim til
sín en átökunum lauk með því að
konan kyrkti árásarmann sinn,
enda nokkuð stærri en hann.
Lögregla hélt upphaflega að
maðurinn væri innbrotsþjófur en
telur nú að hann hafi verið
leigumorðingi, ráðinn af eigin-
manni konunnar. - sþs
Bandarísk hjúkrunarkona:
Kyrkti sinn eigin
leigumorðingja
MOLDAVÍA, AP Íbúar Trans-Dniester-héraðs í
fyrrverandi sovétlýðveldinu Moldavíu kusu
í gær um hvort héraðið ætti að halda áfram
baráttu sinni um að sameinast Rússlandi.
Búist er við að sameiningarstefnan verði
samþykkt með yfirburðum, enda styðja allir
stjórnmálaflokkar héraðsins sameiningu og
móðurmál langflestra af 390 þúsund íbúum
þess er rússneska. Opinbert mál Moldavíu
er rúmenska.
Ríkisstjórn Moldavíu segist munu virða
útkomu kosninganna að vettugi, en hún háði
stríð við rússneskumælandi aðskilnaðars-
inna árið 1992 með þeim afleiðingum að um
1.500 manns létust. Bandaríkin og Evrópu-
sambandið hafa einnig gagnrýnt atkvæða-
greiðsluna, og segja hana geta orðið for-
dæmi fyrir rússneska aðskilnaðarsinna í
öðrum fyrrverandi sovétlýðveldum.
Leiðtogi Trans-Dniester-héraðs, Igor
Smirnov, styður þjóðaratkvæðagreiðsluna,
en rússnesk stjórnvöld hafa ekkert gefið
upp um hvort þau séu tilbúin að innlima
þetta bágstadda hérað.
„Mörg önnur fyrrverandi sovétlýðveldi
hafa ákveðið framtíð sína án þess að spyrja
þjóð sína, til dæmis Úkraína og Moldavía,
sem vilja ganga í Nató og ESB án þess að
spyrja kjósendur,“ sagði Smirnov, þegar
hann greiddi atkvæði með aðskilnaði. - sgj
Íbúar í Trans-Dniester í Moldavíu vilja að héraðið sameinist Rússlandi:
Renna hýru auga til Moskvu
KJÖRSTAÐUR Í TIRASPOL Íbúar höfuðborgar Trans-Dniest-
er kjósa um framtíð sína undir rauða og græna héraðs-
fánanum frá tíma Sovétríkjanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRAMKVÆMDIR Lokið hefur verið
við yfirbyggingu á brúnni yfir
Vestulandsveg. Brúarsmíðin hefur
staðið yfir frá því í maí á þessu
ári.
Yfirbyggingin á brúnni var
steypt á þriðja tímanum aðfara-
nótt laugardags, en um þrjátíu
manns voru kallaðir út til verksins
og lauk því upp úr hádegi á laugar-
degi. Ekki mátti loka Vesturlands-
vegi vegna framkvæmdanna
þannig að gæta þurfti fyllstu var-
úðarráðstafana á meðan þeim
stóð.
Reiknað er með að framkvæmd-
um ljúki að þremur vikum liðnum,
en þá er búist við að einhver hluti
jarðvinnunnar verði eftir. Verklok
eru 1. nóvember 2007. - rve
Brúarsmíði við Vesturlandsveg:
Yfirbyggingin tilbúin
VIÐ VESTURLANDSVEG Brúarsmíði stendur nú yfir við Vesturlandsveg og áætlað er að
henni ljúki í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA