Fréttablaðið - 18.09.2006, Síða 4

Fréttablaðið - 18.09.2006, Síða 4
4 18. september 2006 MÁNUDAGUR ���������������������������������������������������������������������� ������������ ������������� ������������ ���� � ����������������������������������������������������������������� ���� ����� ����� �� HÁTÍÐ „Ég á eiginlega bara ekki til orð yfir þessu öllu saman. Ég varð klökkur þegar ég sá allan mannfjöldann sem var komin til að fagna mér,“ segir Magni Ásgeirsson nýlentur eftir þriggja mánaða dvöl í Los Angeles þar sem hann tók þátt í raunveruleikaþættinum Rock- star Supernova og lenti í fjórða sæti eins og kunnugt er. Miklu var tjaldað til í Vetrargarðinum þar sem Skjár einn og NFS voru með beinar útsend- ingar frá viðburðinum sem hófst klukkan 16 með söngatriðum frá landsþekktum tónlistar- mönnum. Um hálf fimm renndi Magni í hlað beint frá Leifsstöð með miklu fylgdarliði en bifhjólasamtökin Sniglarnir tóku að sér að fylgja Magna alla leið frá Keflavík að Smára- lind eins og sannri rokkstjörnu sæmir. Þegar Magni steig inn í Smáralindina ætlaði þakið að rifna af húsinu með lófaklappi og öskr- um frá aðdáendum rokkstjörnunnar. Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins, Val- gerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og full- trúi frá Flugleiðum buðu Magna velkominn heim. Valgerður Sverrisdóttir færði Magna bók um myndlistarmanninn Kjarval frá íslensku ríkisstjórninni sem þakklætisvott fyrir að hafa verið landi og þjóð til sóma með glæsilegri frammistöðu og framkomu í þáttun- um. Flugleiðir gáfu einnig Eyrúnu, eiginkonu Magna, ferð fyrir tvo til Evrópu sem mun eflaust nýtast fjölskyldunni vel. Magni steig svo á stokk ásamt hljómsveit sinni Á móti sól og hafði hann orð á því hversu langt væri síðan hann hefði talað íslensku á sviði og bað fólk afsökunar á því hversu þreytt- ur hann væri eftir langt flug. Þrátt fyrir að vera ósofinn tókst Magna að ná rífandi stemn- ingu í Vetrargarðinum í Smáralind enda orðinn þaulvanur eftir dvöl sína meðal stjarnanna í Los Angeles. Áhorfendur horfðu hugfangnir á rokkstjörnu Íslands taka lagið og svo virtist sem öll Smáralindin tæki undir þegar Magni tók lagið „Hvar sem ég fer“ með hljómsveit- inni. „Ég er eiginlega ekki búinn að ákveða hvað tekur við núna en það eina sem veit er að ég er að fara heim til mín og leika við son minn, Mar- ínó og slökkva á símanum í að minnsta kosti viku,“ segir Magni Ásgeirsson að lokum. alfrun@frettabladid.is SUNGIÐ MEÐ MAGNA Mikil stemning var á tónleikunum og áhorfendur tóku vel undir með Magna. Magna fagnað í Smáralind Aðsóknarmet var slegið í Smáralind í gær þegar átta þúsund manns komu þar saman til að bjóða Magna Ásgeirsson velkominn heim frá Los Angeles þar sem hann var landi og þjóð til sóma í raunveruleikaþættin- um Rockstar Supernova. Magni klökknaði þegar hann sá mannfjöldann sem saman var kominn. ROKKSTJARNA ÍSLANDS Þakið ætlaði að rifna af Smáralindinni þegar Magni steig á stokk og tók nokkur vel valin lög ásamt hljómsveit sinni Á móti sól. Hann bað þó áhorfendur afsökunar á rödd sinni sem hann sagði að væri ekki upp á sitt besta eftir langa flugferð. FÖNDRAÐ FYRIR MAGNA Sumir voru búnir að útbúa skemmtilegt spjöld fyrir Magna þar sem hann var boðinn velkomin heim. VIÐSKIPTI Magnús Kristinsson, sem átt hefur í deilum við Björgólf Thor Björnsson í stjórn Straums- Burðaráss, gerir upp við Björgólf í blaðagrein í Morgunblaðinu í gær. Þar segir hann meðal annars að grunnurinn að illdeilum þeirra hafi verið þegar Björgólfur vildi nota Straum-Burðarás til að leggja tugi milljarða í eigin fjárfesting- arverkefni. Hann þvertekur fyrir fullyrð- ingar Björgólfs um að Magnús, Kristinn Björnsson og Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi for- stjóri, hafi tekið skammtímahags- muni fram yfir langtímahag bank- ans. Í greininni, sem ber yfirskrift- ina „Um grjótflug úr glerhúsi“, lýsir Magnús einnig hvernig Björg- ólfur hafi grætt milljarð á einum sólarhring þegar eignarhaldsfélag hans, Samson, hafi selt hlut í KEA til Burðaráss daginn eftir að félag- ið hafði keypt sama hlut af Kald- baki. Þegar Fréttablaðið hafði sam- band við Magnús sagðist hann ekki ætla að tjá sig meira um þetta mál á opinberum vettvangi. Svip- að var uppi á teningnum hjá Björ- gólfi, en samkvæmt talsmanni hans sér hann ekki ástæðu til að svara því sem fram kemur í grein Magnúsar. - sþs Magnús Kristinsson gerir upp við Björgólf Thor Björnsson vegna Straums-Burðaráss: Lagði milljarða í eigin fjárfestingar Á GÓÐRI STUND Björgólfur Thor, Þórður Már Jóhannesson og Magnús Kristinsson á fundi Straums-Burðaráss. Magnús fer hörðum orðum um Björgólf og viðskiptahætti hans í grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið á sunnudag. VENESÚELA, AP Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, heim- sótti Venesúela í fyrsta skipti í gær til að styrkja samband sitt við Hugo Chávez, forseta landsins. Leiðtogarnir hafa sameinast í andstöðu við banda- rísk stjórnvöld. Chávez sagði að stjórnvöld hjálpuðu til við innlenda skot- færa-, bíla- og plastframleiðslu og kallaði ríkin tvö „djarfar þjóðir sem hjálpast að“. Ahmadinejad kallaði Chávez bróður sinn í hnattrænni baráttu, en Chávez hyggst styðja kjarn- orkuframleiðslu Íransstjórnar, komist Venesúela í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. - sgj Ahmadinejad og Chavez: Bræður í hnatt- rænni baráttu FORSETARNIR TVEIR Ahmadinejad og Chávez eru umdeildir, en segjast hjálp- ast að í baráttunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GENGIÐ 15.9.2006 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 23,0054 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 70,15 70,49 132,02 132,66 88,97 89,47 11,923 11,993 10,742 10,806 9,633 9,689 0,5966 0,6000 103,67 104,29 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N B R IN K FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N B R IN K FR ÉTTA B LA Ð IÐ /D A N IEL Skuldir felldar niður Rússnesk stjórnvöld munu á næst- unni fella niður stórfelldar skuldir Íraks, að sögn fjármálaráðherra Rússlands. Vladimirs Pútín, forsætis- ráðherra landsins, reynir með þessu að auka áhrif Rússlands á heimsvísu. RÚSSLAND

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.