Fréttablaðið - 18.09.2006, Side 14

Fréttablaðið - 18.09.2006, Side 14
14 18. september 2006 MÁNUDAGUR SKÓLAMÁL „Við teljum son okkar hafa verið beittan svo miklum órétti í þessu máli að við sjáum okkur ekki annað fært en að bregðast við,“ segir Viðar Garð- arsson, sem nú er að undirbúa stjórnsýslukæru á hendur Más Vilhjálmssonar, rektors Mennta- skólans við Sund. Ástæðu kærunnar segir Viðar vera þá að hann telji rektorinn hafa farið langt út fyrir valdsvið sitt þegar hann úrskurðaði nokkra pilta í skemmtanabann við skól- ann, þar sem hann taldi þá hafa átt aðild að átökum lögreglu og ungmenna í Skeifunni snemma í mánuðinum. Viðar segir son sinn ekki tengjast þessu máli á annan hátt en að hann er meðlimur á bloggsíðu þar sem skrifað var um atburðina. Þau skrif segir hann þó hafa verið undirrituð með fullu nafni höfundar og því telji hann undarlegt að þau séu látin bitna á öllum þeim sem tengjast síðunni. „Það að banna ungmennum að taka þátt í félagslífi menntaskóla síns vegna atburða sem þau tengd- ust ekki neitt og hafa ekkert með skólann að gera þykir mér ein- kennilegt. Ég hef farið yfir málið ásamt lögfræðingi og við fáum ekki sé að ákvörðun rektors stand- ist reglur nemendafélags, mennta- skólans eða menntamálaráðuneyt- isins,“ segir Viðar. Hann kveðst hafa spurt rektorinn margoft í hverju hann teldi brot sonar síns vera fólgið og á hvaða reglum hann hefði byggt ákvörðun sína um skemmtanabann. Það eina sem hann hafi uppskorið var að væri hann ósáttur gæti hann kært málið eftir formlegum leiðum. Því segist Viðar ekki eiga annars úrkosta en að senda stjórnsýslu- kæru. Fleiri foreldrar sem haft var samband við vegna málsins töldu rektor ekki hafa gætt sanngirni og töldu afskipti hans af því sem nemendur hafa haft fyrir stafni í frítíma sínum óþörf. Már Vilhjálmsson, rektor Menntaskólans við Sund, segir ekki rétt að kalla aðgerðirnar bann. Hann telur eðlilegt að álita- mál geti komið upp innan opin- berra stofnana eins og mennta- skóla og ekkert sé athugavert við að þau séu afgreidd eftir opinber- um leiðum. „Það voru sjö einstakl- ingar við skólann sem ég treysti mér ekki til að hafa með á dans- leik í skólanum,“ segir Már sem telur aðgerðirnar réttlætanlegar af sinni hálfu til að tryggja að öryggi annarra. - kdk Kæra rektor vegna skemmtanabanns Foreldrar nemanda við Menntaskólann við Sund eru ósátt við viðbrögð rektors. Þau segja hann hafa meinað saklausum piltinum aðgang að dansleik í skólan- um. Rektor segist hafa viljað tryggja öryggi á dansleik skólans. MENNTASKÓLINN VIÐ SUND Rektor segist ekki hafa treyst sér til að hafa sjö unga menn á dansleik sem haldinn var við skólann. VIÐAR GARÐ- ARSSON Telur son sinn hafa verið beittan órétti að hálfu rektors Mennta- skólans við Sund og undir- býr stjórnsýslu kæru. SPÁNN, AP Neanderdalsmenn lifðu þúsund árum lengur en áður var talið, að því er fram kemur í nýrri rannsókn sem gerð var í Gíbralt- ar á Suður-Spáni. Fjallað er um niðurstöðurnar í nýjasta töluhefti vísindatímaritsins Nature. Litlir hópar Neanderdals- manna flökkuðu um Gíbraltar og gistu reglulega í stórum helli þar fyrir 28.000 árum, og gætu yngstu ummerkin um þá verið 24.000 ára gömul, að sögn Clive Finlayson frá Gíbraltarsafninu. „Kannski voru þetta hinir síð- ustu,“ sagði Finleyson. Neanderdalsmenn voru litlir, vöðvamiklir veiðimenn sem fyrst komu fram í Evrópu og Vestur- Asíu fyrir um 200.000 árum. Þeir dóu út eftir að nútímamaðurinn flutti sig til Evrópu fyrir um 35.000 til 40.000 árum. Vísindamenn hafa mikið velt fyrir sér örlögum Neanderdals- manna og enn er deilt um ástæðu þess að þeir urðu útdauðir. Helstu kenningarnar eru að þeir hafi ekki staðist samkeppnina við nútíma- menn, nútímamaðurinn hafi smita þá af sjúkdómi sem dró þá alla til dauða eða að loftlagsbreytingar hafi orðið þeim aldurtila. Aðrir vísindamenn, sem ekki tóku þátt í rannsókninni, segjast efast um áreiðanleika dagsetn- inga Finlaysons og félaga, en telja þó ummerkin um Neander- dalsmennina afar merk. - smk Ummerki um Neanderdalsmenn finnast á Spáni: Talin vera 24.000 ára gömul NEANDERDALSMAÐUR Talið er að Neanderdalsmenn hafi litið svona út. SÝNING Ljósmyndasýningin Reykja- víkurmyndir, sem prýtt hefur mið- bæinn í sumar, var tekin niður í gær. Ljósmyndirnar, rúmlega 60 talsins, voru seldar á uppboði á menningarnótt og hafa eigendurnir nú fengið þær í hendur. Ljósmyndasafn Reykjavíkur stóð fyrir sýningunni í tilefni af 25 ára afmæli safnsins og fékk hún mjög góð viðbrögð að sögn Maríu Karenar Sigurðardóttur safnstjóra. „Við ákváðum að halda útisýningu á þremur stöðum í miðbænum og var myndunum valinn staður í Fóg- etagarðinum, á Lækjartorgi og á Austurvelli. Hugmyndin var að fólk gæti séð þær breytingar sem orðið hafa á Reykjavík með því að bera saman myndirnar og umhverfið sem þær voru í.“ Ákveðið var að selja myndirnar á uppboði að sögn Maríu til að gefa almenningi kost á að prýða veggi heima hjá sér fyrir lítinn pening. „Lægsta boð var fimm þúsund krónur og dýrustu myndirnar fóru á 22 þúsund krónur. Næstum allar myndirnar seldust og þessi mikli áhugi kom okkur skemmtilega á óvart.“ - sdg Ljósmyndirnar sem prýtt hafa miðbæinn í sumar teknar niður í gær: Horfnar á vit eigenda sinna REYKJAVÍKURMYND Magnús Steffensen og Hildur Rut Hannesdóttir, starfsmenn Ljósmyndasafns Reykjavíkur, taka niður eina af hinum 60 myndum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SJÁVARÚTVEGUR Danir eru óánægð- ir með þá ákvörðun fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins að skerða þorskkvótann í Eystrasalti öllu um 15 prósent á næsta ári vegna veiða umfram kvóta á svæðinu undanfarin ár. Bent hefur verið á að ofveiðin sé aðeins í austurhluta Eystrasalt og ástand stofnsins sé ágætt í vesturhlutanum. Hans Chr. Schmidt, sjávarút- vegsráðherra Dana segir í samtali við Fiskeri Tidende að það sé hlutverk ESB að taka á málum þar sem svindlað sé á kvótum en þær aðgerðir eigi ekki að bitna á þeim sem ekkert hafi af sér brotið. - hs Danir ósáttir við ESB: Þorskkvóti skertur um 15% VEIÐAR Þorskkvótinn í Eystrasalti hefur verið skertur um 15 prósent. AFGÖNSK TELPA Þó að ástandið sé hörmulegt víða í Afganistan nú um stundir heldur daglegt líf þó áfram og vatn þarf að sækja daglega. Þessi telpa var á ferð í höfuðborginni Kabúl með vatnsskammt fjölskyldu sinnar þegar ljósmyndari rakst á hana í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SUDURLAND Heilbrigðisstofun Suðurlands fékk fyrir skömmu torfæruhjólastól. Stóllinn hentar vel á svæðum sem hefðbundnir hjólastólar komast illa yfir. Hægt er að setja skíði undir framhjólin sem gerir hreyfihömluðum kleift að komast leiðar sinna í snjó. Á fréttavefnum sudurland.is segir að gripurinn sé ætlaður hreyfi- hömluðum á öllu Suðurlandi, en Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Suðurlandi hefur umsjón með útlánum á stólnum. - kdk Greiðfært á Suðurlandi: Torfæruhjóla- stóll í notkun HJÚKRUN Félagsmálaráð Akureyr- ar hefur ákveðið að styrkja hjúkrunarfræðinema við Háskólann á Akureyri sem áhuga hafa á að sérhæfa sig í hjúkrun aldraðra. Styrkupphæðin er 70 þúsund krónur á mánuði frá 1. september til 31. maí eða samtals 540 þúsund krónur fyrir veturinn. Styrkþegar verða skuldbundn- ir til að starfa við öldrunarheimili Akureyrar að loknu námi, í þrjú ár miðað við tveggja ára styrk en eitt og hálft ár miðað við eins árs styrk. - hs Nemar í hjúkrun aldraðra: Geta fengið yfir milljón í styrk TÓBAKSVARNIR Dregið hefur verulega úr reykingum í návist barna og foreldrar virða rétt barna sinna á reyklausu umhverfi. Þetta er niðurstaða rannsóknar Jakobínu Árnadóttur, verkefnisstjóra tóbaksvarna á Lýðheilsustöð. Jakobína rannsak- aði reykingar smábarnaforeldra á árunum 1995-2006 og kynnti niðurstöðuna á nýafstaðinni tóbaksvarnarráðstefnu, LOFT, sem haldin var í Reykjanesbæ. Jakobína segir að fyrir ellefu árum hafi 45 prósent þriggja ára barna orðið fyrir óbeinum reykingum einu sinni í viku eða oftar en nú sé þetta hlutfall komið niður í tíu prósent. „Á þessu tímabili hefur dregið úr reyking- um en aukin tillitssemi á líka sinn þátt í að færri börn verða nú fyrir áhrifum óbeinna reykinga.“ - hs Foreldrar taka tillit: Færri reykja í návist barna JAKOBÍNA ÁRNADÓTTIR Fleiri foreldr- ar virða rétt barna sinna á reyklausu umhverfi. BORGARRÁÐ Fulltrúar Samfylking- arinnar í borgarráði hafa sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að engar raunhæfar áætlanir séu fyrirliggjandi til að bregðast við manneklu á leikskólum og frístundaheimilum í Reykjavík. Þá gagnrýnir Samfylkingin meirihlutann fyrir að nota kraft sinn í að kljúfa menntaráð og menntasvið í stað þess að takast á við mannekluna. Vegna manneklu eru nú 453 börn á biðlista eftir frístunda- heimilum og 73 börn hafa ekki fengið inngöngu í leikskóla. - hs Engar raunhæfar áætlanir: Bregðast þarf við manneklu MANNEKLA Yfir 500 börn bíða vistunar á frístundaheimilum og leikskólum. Eldur í biðskýli Eldur kom upp í biðskýli í Eddufelli í Reykjavík aðfaranótt sunnudags. Slökkvilið var kallað út en skemmdir ekki teljanlegar. Lögregla telur að um íkveikju hafi verið að ræða. LÖGREGLUFRÉTT Bílvelta við Stykkishólm Bíll valt við Hofstaði sunnan við Stykkishólm um eitt leytið í gær. Þrír voru í bílnum og sluppu tiltölulega ómeiddir. Samkvæmt lögreglu missti ökumaður stjórn á bílnum þegar lausamöl tók við af bundnu slitlagi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.