Fréttablaðið - 18.09.2006, Qupperneq 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 6.58 13.22 19.44
Akureyri 6.41 13.07 19.30
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Nýr Staðarskáli
Á TEIKNIBORÐINU ER NÝR STAÐARSKÁLI SEM MUN RÍSA Í KJÖL-
FAR BREYTINGA Á HRINGVEGINUM.
Fyrirhugað er að stytta hringveginn fyrir botni Hrútafjarðar. Áætl-
að er að framkvæmdunum ljúki árið 2008 en við breytinguna
mun Staðarskáli lenda nokkru innan við vegtenginguna. Eigend-
ur Staðarskála láta þó ekki ýta sér út í horn og nú þegar er hafin
sérhönnun á skála sem rísa mun á nýjum stað við þjóðveginn og
taka við af gamla skálanum.
Eldri skálinn var reistur árið 1960 af bræðrunum á Stað,
Magnúsi og Eiríki Gíslasonum ásamt Báru Guðmundsdóttur, eig-
inkonu Magnúsar. Sama ár hætti Páll Sigurðsson veitingarekstri
sínum í Fornahvammi og Norðurleiðarrúturnar fluttu viðskipti sín
í Staðarskála.
Eftir ár geta ferðalangar svo spókað glaðir sig í splunkunýjum
Staðarskála enda segir sagan að hamborgararnir í Hrútafirði
smakkist alltaf jafn vel óháð legu hringvegarins.
Greint frá á www.huni.is. - jóa
Fasteignasalan Stórborg hefur til sölu
fallegt 333,8 fermetra hús á besta stað í
miðbænum.
Húsið við Tjarnargötu 46 er byggt árið 1947
og er einbýli, tvær hæðir og ris en auka íbúð
er í kjallara.
Komið er inn á neðri hæð í flísalagða for-
stofu með gestasnyrtingu. Á neðri hæð er
einnig parkettlagt hol, parkettlagt eldhús
með ljósri innréttingu og borðkrók og þrjár
parkettlagðar samliggjandi stofur. Renni-
hurð skilur á milli stofu og borðstofu og úr
borðstofu er gengið út í sólskála og þaðan út
á verönd og í garð.
Á efri hæð er parkettlagt hol, þrjú park-
ettlögð svefnherbergi með skápum og rúm-
gott flísalagt baðherbergi með innréttingu,
baðkeri og sturtuklefa.
Úr holi á efri hæð liggur stigi upp í ris
þar sem eru tvö svefnherbergi og geymsla.
Í kjallara er stórt þvottahús með sturtu-
klefa, geymsla, stórt parkettlagt svefnher-
bergi og stúdíóíbúð með eldhúsi og snyrt-
ingu.
37,2 fermetra bílskúr er við húsið.
Húsið er í góðu ástandi, staðsett í miðbæ
Reykjavíkur og stutt í alla þjónustu og
skóla.
Tilboð óskast í eignina sem er laus nú
þegar.
Glæsilegt hús með
sólskála og bílskúr
Tjarnargata 46 er virðulegt hús í góðu ástandi í miðbæ Reykjavíkur.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SIGRAST Á SVÖRTUM
VETRARMÁNUÐUM
Útiluktir geta lýst upp ver-
öldina.
HÚS 2
FASTEIGNASÖLUR
Ás 8 -10
Árborgir 26
Draumahús 12-15, 32
Eignastýring 27
Eignaumboðið 24
Fasteignamarkaðurinn 19
FMG 17
Fasteignastýring 26
Fyrirtækjasala Íslands 24
Hof 7
Íslenskir aðalverkt. 11, 25
Kjarni byggingarfélag 31
Lundur 20 - 21
Lyngvík 22
Neteign 6
Remax 28 - 29, 33
Stórborg 18
Viðskiptahúsið 23
GÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn
18. september, 261. dagur
ársins 2006.