Fréttablaðið - 18.09.2006, Side 23
MÁNUDAGUR 18. september 2006 3
Fugl í egglaga húsi
POSTULÍNSFUGLAHÚSIN VEKJA ATHYGLI OG FÓRU Á LISTA YFIR TUTTUGU OG
FIMM FLOTTUSTU HÖNNUNARGRIPI ÁRSINS 2004.
Á Netinu er að finna frábæra vefverslun sem sérhæfir sig í sölu sérstakra fugla-
húsa. Fuglahús þessi eru egglaga, gerð úr postulíni og áli og koma í allskonar
litum og litbrigðum.
Árið 2004 valdi bandaríska tímaritið Fortune Magazine fuglahúsin á lista yfir
tuttugu og fimm bestu hönnunargripina það árið, enda engin furða þar sem
þetta eru sérstaklega skemmtilegir og fallegir gripir með göfugt notagildi.
Nú þurfa hipp og kúl dýravinir ekki að örvænta lengur yfir því að þurfa að
hengja upp lummó tréhús í garðinn eða dreifa fuglafóðri á svalirnar. Málið er
leyst með einum músarsmelli á vefsíðunni www.eggbirdfeeders.com. Húsin
kosta rúma hundrað dollara en ofan á það bætist einhver sendingarkostnaður.
Guðmundur Óli Scheving
SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn
á netfangið gudmunduroli@simnet.is.
Hvernig á að bregðast við
veggjatítlum
Fyrst og fremst þarf að lækka loft-
rakastig og hitastig í herbergjum
og ná rakastigi í viðarklæðningum
og húsgögnum niður fyrir 11 pró-
sent því þá stöðvast vöxtur lirfanna.
Í húsnæði sem kynt er eðlilega
allan ársins hring er rakastig viðar
6-10 prósent og engin skilyrði fyrir
veggjatítluna. Það þarf að athuga
staði sem húshitun nær ekki eða
illa til eins og háaloft, kjallara,
útveggi og forstofuherbergi. Þetta
eru áhættustaðir þar sem veggjatítl-
an gæti lifað góðu lífi. Það er grund-
vallaratriði að þurrka upp viðinn og
í sumum tilfellum þarf að endur-
nýja viði til að losna við vandamál-
ið. Hægt er að nota eitursvælingu
og trúlega dugar hún ef eitrið kemst
inn í viðinn og að lirfunum.
Ástralir og Englendingar gera
mikið að því að þurrka upp við í
híbýlum manna og nota til þess raf-
magnsofna og ljósahitara sem eru
líka flugnabanar. Þeir ná dýrunum
sem klekjast út á vori í flugnaban-
ana. Það þarf að ná 50-60 stiga
hita í rými sem verið er að þurrka.
Hægt er að bera viðarolíur á við-
inn og blanda kreósóta saman við.
Þá má nota parafínolíur og aðrar
olíur sem hafa mikið vaxinnihald
því ef slík olía kemst í snertingu
við veggjatítluna smýgur olían inn
í dýrið, vaxið festir vængi
og egg svo varp getur
misheppnast. Þetta
ætti að gera seinni-
part í maí, aftur um
miðjan júní og enn aftur
í byrjun júlí. Gott er að
vera líka með flugnabana
til að taka við þeim bjöllum
sem hugsanlega sleppa eða
koma annars staðar frá. Þá
er til örþrifaráð sem ekkert
dýr þolir en það er að
nota blásýrubrælun.
Hún brýst betur inn
í viðinn en efna-
vökvar.
Veggjatítlur hafa
fengið mikla athygli á
undanförnum misserum þar sem
heilu húsin hafa verið dæmd ónýt
af hennar völdum og innviðir í
húsum á höfuðborgarsvæðinu hafa
fengið slæman dóm hjá þeim sér-
fræðingum sem kallaðir hafa verið
til. Ef þú hefur minnsta grun um að
bjalla sem þú finnur heima hjá þér
sé veggjatítla láttu greina bjölluna
hjá Náttúrufræðistofnun eða Rann-
sóknastofnun Háskólans til að vera
alveg viss.
Leita skal að vatnsleka á baðher-
bergjum, vöskum, salernum, með-
fram skorsteini og í gluggakörmum.
Það er alltaf möguleiki á að um
sé að ræða staðbundið vandamál
þegar veggjatítla finnst.
Langtíma viðvera veggjatítlu
getur veikt burðarvirki húsa og
valdið alvarlegum skaða og fjár-
hagslegu tjóni.
Þegar fólk þarf að fá til
sín meindýraeyði eða
garðúðara þá skal alltaf
óska eftir að fá að sjá
starfsskírteini útgefið
af Umhverfisstofnun
og eiturefnaleyfi gefið
út af lögreglustjóra/
sýslumanni og það
mikilvægasta er að
viðkomandi hafi starfs-
leyfi frá viðkomandi
sveitafélagi. Starfsrétt-
indi meindýraeyða og garðúðara
hafa ein sér ekkert gildi. Athugaðu
hvort öll skírteini séu í gildi. Félag-
ar í Félagi Meindýraeyða eru með
félagsskírteini á sér.
Fáðu alltaf nótu vegna viðskipt-
anna.
Réttindi meindýraeyða og garð-
úðara frá erlendum ríkjum og félaga-
samtökum gilda ekki á Íslandi.
Heimildir:
Upplýsingar og fróðleikur um
Meindýr og varnir 2004
Pöddur rit landverndar nr. 9 1989,
Stóra skordýrabók Fjölva 1974,
Heimasíða www.ni.is Erling Ólaf-
son.
Veggjatítla – seinni hluti
(Anobium punctatum) Wood Borgin Beetles
Fuglahúsin fást í öllum
regnbogans litum
og litbrigðum. Allt
frá póstkassarauðu
eða barnabláu yfir í
dumbrautt, gult eða
dökkblátt.
Veggjatítla
meindýr
Þessi litli fugl þarf
ekki að þjást vegna
andfagurfræðilegs
áreitis í garðinum.
Hann nýtur matar
síns í fuglahúsi
sem þykir bera af
hvað varðar stíl og
smekkvísi.
�����������
������������������������
����������������������������������������������
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-16
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
06