Fréttablaðið - 18.09.2006, Síða 71
Breska hljómsveitin The
Go! Team spilar á Iceland
Airwaves-hátíðinni í októ-
ber. Freyr Bjarnason ræddi
við Ian Barton, stofnanda
sveitarinnar, sem er að
koma til Íslands í fyrsta
sinn.
The Go! Team, sex manna hljóm-
sveit, hefur aðsetur í Brighton á
Englandi og er merkileg fyrir þær
sakir að hún er með tvo trommara
í sínum röðum, auk þess sem helm-
ingur meðlima er kvenkyns. Auk
Ian heita meðlimirnir Chi „Ky“
Fukami Taylor, Kaori Tsuchida,
Jamie Bell, Ninja og Sam Dook.
Skemmtileg blanda
Eins og þessi óvenjulega skipan
gefur til kynna spilar sveitin
blöndu af alls kyns tónlistarstefn-
um, þar á meðal gamaldags hip
hoppi, fönki og hljóðbútum úr
öllum áttum. Fyrsta og eina plata
The Go! Team til þessa, Thunder,
Lighting, Strike, er skemmtileg
samsuða og kemur ekki á óvart að
hún skuli hafa verið tilnefnd til
hinna virtu Mercury-verðlauna á
síðasta ári, án þess þó að hreppa
fyrsta sætið. Í kjölfarið fór sveit-
in að vekja aukna athygli og hefur
hún m.a. hitað upp bæði fyrir
Flaming Lips og átrúnaðargoðin
sín í Sonic Youth í Bretlandi og
Bandaríkjunum.
Forsprakkinn Ian Barton er
spenntur fyrir komunni til Íslands.
„Þetta verður frábært. Ísland var
í fyrsta sæti yfir þá staði sem
okkur langaði að heimsækja. Við
erum búin að fara á marga
skemmtilega staði og Ísland er
einn af þeim síðustu sem við
áttum eftir að heimsækja,“ segir
Ian.
Tekin upp í eldhúsi
Ian segist ekki hafa átt von á til-
nefningunni til Mercury-verðlaun-
anna, sérstaklega þar sem platan
var bókstaflega tekin upp í eld-
húsi. „Við notuðum tölvu, fimm til
sex hljóðnema, slatta af plötum og
það var eiginlega allt og sumt.
Mörgum finnst hljómurinn á plöt-
unni undarlegur. Hann er ekki
mjög nútímalegur þannig að þessi
tilnefning var eiginlega sigur
fyrir Lo-Fi stefnuna. Mér finnst
gaman að tónlist hljómi eins og
hún sé heimagerð í stað þess að
vera gerð með miklum glamúr,“
segir hann.
Ný plata í vinnslu
The Go! Team hefur verið önnum
kafin við upptökur á sinni annarri
plötu að undanförnu og hefur því
tekið því rólega í öllu tónleika-
haldi. Ian segir upptökurnar ganga
prýðilega. „Ég mæti á hverjum
degi í hljóðverið og legg mig allan
fram. Við erum komin skammt á
veg, bara nokkur lög tilbúin, en
það var kominn tími á þetta,“ segir
hann og varpar mæðunni.
Segir hann að platan verði upp-
full af mismunandi stefnum sem
fyrr þótt lögin verði ekki eins og
áður. „Það eru svo margir mögu-
leikar þarna úti. Það er ekkert sem
takmarkar mann í raun og veru og
maður getur prófað sig áfram
endalaust. Þegar maður fer að
blanda saman ólíkum stefnum opn-
ast fyrir manni nýr heimur með
alls konar skemmtilegum hug-
myndum,“ segir hann.
Færri hljóðbútar
Bútar úr öðrum lögum eru notaðir
á nýju plötunni en þó ekki í eins
miklum mæli og áður enda lenti
sveitin í vandræðum vegna þess á
fyrri plötunni. Þar voru bútarnir
alls 60 til 70 talsins og höfðu Ian og
félagar ekki fengið leyfi til að nota
þá alla. Var sveitinni hótað lögsókn
ef hún tæki þá ekki í burtu og sendi
frá sér nýja útgáfu af plötunni.
„Ég ætla að reyna að vera skyn-
samari núna. Það er alveg hægt að
nota búta á skynsaman hátt og ég
ætla að gera það núna. Síðast greip
ég bara gamlar plötur af handa-
hófi og skellti því á plötuna sem
hljómaði vel. Reyndar er ég alveg
tilbúinn til að gefa frá mér allan
höfundarréttinn af laginu ef það
hljómar vel,“ segir Ian ákveðinn.
Kraftur í Hafnarhúsinu
The Go! Team mun spila í Hafnar-
húsinu á Iceland Airwaves. Ian
lofar kraftmiklum tónleikum.
„Sumir fíla okkur betur á tónleik-
um en aðrir fíla plöturnar okkar
betur. Við reynum bara að hafa
kraftinn í fyrirrúmi. Við erum úti
um allt svið og skiptum ört um
hljóðfæri. Ninja er síðan mið-
punkturinn og það er hún sem
skipar öllum fyrir,“ segir hann og
hlær.
Heimagerður hljómur
er skemmtilegastur
THE GO! TEAM Hressileg sveit frá Englandi sem spilar á Airwaves í næsta mánuði.
Hljómsveitin hefur vakið athygli síðustu misseri og þykir einstaklega skemmtileg á
tónleikum.
Britney Spears, sem eins og kunn-
ungt er eignaðist sitt annað barn á
dögunum, hefur gefið nýfæddum
syni sínum nafn, samkvæmt blað-
inu The Sun. Hann mun heita Sutt-
on Pierce Federline og ber því
sömu upphafsstafi og stóri bróðir
hans, sem heitir Sean Preston
Federline.
Barnsfaðir Britney Spears er
dansarinn Kevin Federline. Aðeins
munar þremur dögum á fæðingar-
dögum bræðranna og eru þeir því
í sama stjörnumerki. Þetta virðist
því vera allt saman vel skipulagt
hjá poppprinsessunni en sam-
kvæmt The Sun mun Britney setja
myndir af nýfædda drengunum í
dreifingu innan skamms.
Sonurinn fær nafn
NÝBAKAÐIR FORELDRAR Britney Spears
og Kevin Federline ásamt Sean Preston,
fyrra barni sínu, en nú eiga þau saman
tvo syni. Seinni sonurinn hefur fengið
sömu upphafsstafi og bróðir hans.
Leikarinn Sean Penn segir að
bróðir sinn Chris hafi dáið af völd-
um offitu en ekki vegna áfengis-
og eiturlyfjanotkunar.
„Á ákveðnum tímabilum í lífi
sínu fór hann mjög illa með sjálf-
an sig en það var ekki það sem
gerðist undir það síðasta,“ sagði
Penn í viðtali við Larry King á
CNN.
Penn sagði að bróðir sinn, sem
lést í janúar, hefði dáið af eðlileg-
um orsökum, að hluta til vegna
vímuefnanotkunar sinnar en aðal-
lega vegna offitu.
Meðal þess sem fannst í líkama
Chris við krufningu var valíum,
morfín og maríjúana. Penn segir
þá bræðurna hafa verið mjög
nána. „Þetta er hluti af þér en
svona er lífið og fólk þarf oft að
ganga í gegnum svona lagað,“
sagði hann.
Penn hefur að undanförnu
verið staddur á kvikmyndahátíð-
inni í Toronto til að kynna nýjustu
mynd sína All the King´s Men.
Vakti hann mikla reiði í borginni
eftir að hann sást reykja sígarett-
ur á blaðamannafundi á Sutton
Place-hótelinu. Á hann yfir höfði
sér rúmar fjörutíu þúsund króna
sekt fyrir athæfið.
Offita olli dauða
SEAN PENN Leikarinn Sean Penn heldur
á sígarettu á blaðamannafundinum í
Toronto. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Tónlistarmaðurinn Robbie Willi-
ams hefur frestað tónleikaferða-
lagi sínu um Asíu vegna mikillar
streitu.
Robbie hefur gert víðreist um
heiminn á tónleikaferðalagi sínu
sem hefur tekið sinn toll og treyst-
ir hann sér ekki til að fara til Asíu.
Robbie átti að halda tónleika í sex
borgum í Asíu dagana 4. til 26.
nóvember og var miðasalan þegar
hafin.
Hættir við
Asíuferð
ROBBIE WILLIAMS Tónlistarmaðurinn
breski hefur frestað för sinni til Asíu.
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
HAGATORGI • S. 530 1919
/ KEFLAVÍK
/ AKUYREYRI
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI BÖRN kl. 5:45 - 8 - 10.15 B.i.12.ára.
AN INCONVENIENT TRUTH kl. 8 Leyfð
BJÓLFSKVIÐA kl. 8 - 10:15 B.i.16 .ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 10:15 B.i. 12.ára.
THE ANT BULLY M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð
NACHO LIBRE kl. 4 - 6:10 - 8 - 10:20 B.i. 7.ára.
NACHO LIBRE VIP kl. 5:10 - 8 - 10:20
BÖRN kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.12.ára.
STEP UP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7.ára.
MAURAHRELLIRINN M/- Ísl tal. kl. 4 - 6 Leyfð
THE ANT BULLY M/- ensku tal. kl. 6:20 Leyfð
LADY IN THE WATER kl. 8:10 - 10:20 B.i. 12.ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8:20 B.i. 12.ára.
OVER THE HEDGE M/- Ísl tal. kl. 4 Leyfð
BÍLAR M/- Ísl tal. kl. 4 Leyfð
UNITED 93 kl. 10:10 B.i. 12
LADY IN THE WATER kl. 10:10 B.i. 12
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8
YOU, ME AND DUPREE kl. 8 B.i. 12
NACHO LIBRE kl. 6 - 8 - 10
ANT BULLY m/ísl. tali kl. 6 Leyfð
STEP UP kl. 8 Leyfð
UNITED 93 kl. 10 B.i.12
THE PROPOSITION - FORSÝNING. kl. 8 B.i.16
The Libertine kl. 5:45 B.i.12
Renaissance kl. 10:15 B.i.12
Down in the Valley kl. 8 B.i. 16
A cock and bull story kl. 5:45 B.i. 16
Öskrandi api, ballett í leynum kl. 10:15 B.i. 12
Þann 11.september 2001 var fjórum flugvélum rænt.
Þrjár þeirra flugu á skotmörk sín. Þetta er saga fjórðu vélarinnar.
4 vikur
á toppnum á Íslandi !
V.J.V. TOPP5.IS
����
����
S.U.S. XFM 91,9.
����
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
Frábær dansmynd hlaðin geggjaðri tónlist en
myndin kom heldur betur á óvart í USA fyrir nokkru.
Þegar þú færð annað tækifæri
þarftu að taka fyrsta sporið.
FRÁBÆR OG FJÖRUG STAFRÆN TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.
„the ant bully“
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
Með hinum eina sanna Jack Black og frá leikstjóra
„Napoleon Dynamite“ kemur frumlegasti grínsmellurinn í ár.
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
ICELAND FILM FESTIVAL 2006
Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGA 30. ÁGÚST - 21. SEPTEMBER
BJÓLFS
KVIÐA
����
V.J.V. TOPP5.IS
�����
H.J. / MBL
The Libertine
Down the valleyA cock and bull ..
Kvikmyndahátíð
Renaissance
Deitmynd ársins.
Með kyntröllinu
Channing Tatum
(“She’s the Man”)
Jack Black
er
NACHO LIBRE kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7.ára.
STEP UP kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7.ára.
UNITED 93 kl. 8 - 10:20 B.i.14.ára.
MAURAHRELLIRINN M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð