Fréttablaðið - 22.09.2006, Side 6
6 22. september 2006 FÖSTUDAGUR
KJÖRKASSINN
Dreifbýlisstefna í Alaska
Ávísun með arðgreiðslu upp á tæpar
80.000 krónur verður send hverjum
og einum íbúa í Alaska á þessu ári
frá olíufjárfestinganefnd ríkisins.
Skilyrði fyrir greiðslu er búseta í
Alaska í minnst eitt ár. Alaskabúar
hafa fengið greidda 1.002 milljarða
síðan 1982.
BANDARÍKIN
Hnífur og gaffall
í steikina
– úrvals stál.
Kr. 3.680.-
LÖGGÆSLUMÁL „Ég vil ekki gefa
frekari afslátt á einkalífs- og
mannréttindum en þegar er orðið,“
segir Atli Gíslason hæstaréttar-
lögmaður spurður álits á auknum
heimildum lögreglu til rannsókna
í málum er varða þjóðaröryggi.
Atli kveðst ekki vilja láta
hryðjuverkamenn stjórna sínu lífi
né annarra með því að taka mann-
réttindi af fólki. Gerist það megi
líta svo á að hryðjuverkamenn
hafi í rauninni farið með sigur af
hólmi.
Spurður álits á hugmyndum
um sérstaka öryggis- og greining-
ardeild er hefði rýmri heimildir
en lögregla hefur nú um öflun
upplýsinga segir Atli „víðs fjarri“
að þörf sé á slíkri deild. Þeim
fjármunum sem ætlaðir séu til
þess starfs sé betur farið til
aðstoðar börnum sem eigi við les-
blindu, ofvirkni og athyglisbrest
að stríða, þannig að ekki sé hætta
á að þau lendi í klóm fíkniefna
eða annars vanda þegar þau eru
15 - 16 ára.
„Staðan á Íslandi er sú, að menn
ofmeta þörfina á svonefndri
öryggisþjónustu,“ bætir Atli við.
„Þetta mál sem Fréttablaðið
greindi frá í gær kemur upp vegna
ábendingar. Þar þurfti enga grein-
ingardeild til. Almenningur bregst
þarna við. Hann er virkastur til
eftirlits.“ - jss
Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður um auknar rannsóknarheimildir:
Vil ekki frekari afslátt á
mannréttindum en orðið er
ATLI GÍSLASON
HRL.
„Menn ofmeta
þörfina á svo-
nefndri öryggis-
þjónustu.“
Hefur þú lent í slagsmálum?
Já 42%
Nei 58%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu sátt(ur) við launin þín?
Segðu skoðun þína á visir.is
UMHVERFISMÁL Ómar Ragnarsson sjónvarpsfrétta-
maður er hættur að fjalla um umhverfismál í
Sjónvarpinu og ætlar að beita sér í umhverfismálum
þjóðarinnar. Hann segir það hafa verið draum sinn
frá tíu ára aldri að beita sér í þjóðmálaumræðu.
Ómar útilokar ekki framboð en telur nýtt
umhverfisafl vanta. „Ég er til í allt,“ segir hann. „Ég
hef leyst hendur mínar frá bakinu og ætla niður á
völlinn til þess að spila með öðru liðinu.“
Í áratugi hefur Ómar reynt að miðla upplýsingum
um umhverfismál af fagmennsku og óhlutdrægni en
segir þá viðleitni sína hafa af mörgum verið túlkaða
„sem barátta gegn þeirri stefnu sem fylgt hefur
verið“. Hann mun fjalla um önnur mál en umhverf-
ismál og vinna efni sem hann á.
Í blaði sem Ómar gefur út og dreifir til þjóðarinn-
ar um helgina leggur hann til að Kárahnjúkavirkjun
verði geymd ógangsett og tekjur þannig fengnar.
„Með því að sökkva ekki dalnum myndi suðurveggur
Kárahnjúkastíflu sem ber af norðurhliðinni að
glæsileik, blasa við ferðafólki í stað þess að verða
hulinn vatni,“ segir Ómar. „Hægt yrði að fara um
undirgöng og rangala stíflunnar og í járnbraut inn í
opin aðrennslisgöngin.“ - ghs
KOMINN Í ANNAÐ LIÐIÐ „Ég er til í allt,“ segir Ómar Ragnars-
son sjónvarpsfréttamaður FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ómar Ragnarsson hættir að fjalla um umhverfismál í fréttum:
Ætlar að spila með öðru liðinu
UMHVERFISMÁL Þorsteinn Hilm-
arsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar, segir það
túlkunaratriði hvort Ómar
Ragnarsson fjalli minna eða
meira um umhverfismál á
næstunni. „Ætli hann fjalli ekki
bara þeim mun meira um þau,“
segir hann.
„Við höfum alltaf átt gott
samstarf við Ómar og kvíðum
því ekki eftirleiðis en hingað
til,“ segir Þorsteinn og kveðst
ekki vera sammála því sem
Ómar hafi sagt á blaðamanna-
fundinum en hann sé ekki óvinur
Landsvirkjunar númer eitt.
„Hann er bara góður vinur.“ - ghs
Þorsteinn Hilmarsson:
Ómar er bara
góður vinur
Olmert óvinsæll
Ný skoðanakönnun gefur til kynna að
68 prósent Ísraela séu óánægð með
Ehud Olmert forsætisráðherra og að
flokkur Olmerts fengi ekki umboð til
meirihlutaviðræðna ef gengið væri til
kosninga nú.
ÍSRAEL
LÖGGÆSLUMÁL Lögregla hér á landi
getur ekki farið fram á heimild
dómara til að beita sérstökum
rannsóknaraðferðum nema um
rökstuddan grun um afbrot sé að
ræða, segir Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra spurður um
möguleika þess að grípa inn í mál,
sem gætu bent til yfirvofandi
hryðjuverka.
Björn bendir á að á vettvangi
Evrópusambandsins hafi verið
unnið verulegt starf til að móta
inntak forvirkra aðferða í ljósi
breyttra áherslna þegar krafa sé
gerð um að lögregla rannsaki ekki
aðeins afbrot heldur haldi einnig
úti rannsóknum til að koma í veg
fyrir afbrot. Rannsóknir lögreglu
í því skyni að koma í veg fyrir
afbrot megi kenna við forvörn
sem byggist á greiningu á atvik-
um og ábendingum.
„Ég hef verið að vekja máls á
þörf fyrir öryggis- og greiningar-
deild hér á landi til þess að vekja
athygli almennings, stjórnmála-
manna og annarra á því að við
erum í sérstakri stöðu. Síðan verð-
um við að átta okkur á því hvort
við viljum ganga skrefi lengra eða
ekki. Ég vil eiga samstarf við
stjórnmálamenn úr öllum flokk-
um um þetta mál og hef stuðlað að
því. Þetta er ekki flokkspólitískt
mál, heldur mál sem við stöndum
frammi fyrir sem berum ábyrgð á
öryggi Íslendinga. Við verðum að
átta okkur á því hvernig staðan er
í þessum málum.“
Björn segir að ekki verði geng-
ið lengra en gert hefði verið með
samþykkt laga um breytingar á
lögreglulögum 2. júní, án þess að
komið verði á fót eftirlitskerfi
Alþingis með störfum öryggis- og
greiningardeildar og sett verði
þar um sérstök lög, með tilliti til
þess sem menn hafi verið að gera
í nágrannalöndunum. Þar hafi
verið farnar mismunandi leiðir.
„Í Noregi eru sérstök lög um
öryggis- og greiningarþjónustu og
í Danmörku er um að ræða sér-
stakan hluta af réttarfars- og lög-
reglulöggjöf.
Hér hefur verið dregin upp sú
mynd af málinu að verið sé að
fara út á eitthvert svið sem sé
algjörlega óþekkt, en því fer
fjarri, eins og þeir geta komist að
raun um sem vilja kynna sér
stöðu mála í nágrannalöndun-
um.“
Björn segir enn fremur að
starfssvið öryggis- og greiningar-
þjónustu myndi ekki einskorðast
við þjóðaröryggismál, heldur
einnig aðferðir til að takast á við
mansal, skipulagða glæpastarf-
semi, fíkniefnamál og fleira af
því tagi. jss@frettabladid.is
TAKMARKAÐAR HEIMILDIR Lögregla getur ekki látið til skarar skríða í málum er varða
þjóðaröryggi nema um rökstuddan grun um afbrot sé að ræða.
Það þarf rökstudd-
an grun um afbrot
Lögregla hefur ekki mikið svigrúm til að grípa inn í mál sem bent geta til yfir-
vofandi hryðjuverka. Hún getur ekki farið fram á heimild dómara til að beita
sérstökum rannsóknaraðferðum, nema um rökstuddan grun sé að ræða.
Ég hef verið að vekja
máls á þörf fyrir öryggis-
og greiningardeild hér á landi
BJÖRN BJARNASON
DÓMSMÁLARÁÐHERRA