Fréttablaðið - 22.09.2006, Síða 10

Fréttablaðið - 22.09.2006, Síða 10
10 22. september 2006 FÖSTUDAGUR ALENGUSTU EINKENNI KÆFISVEFNS: Einkenni í svefni: Háværar hrotur Öndunarhlé Óvær svefn - vaknar oft - martraðir Nætursviti Tíð næturþvaglát Einkenni í vöku: Dagsyfja Einbeitningarskortur og óþolinmæði Þreyta Syfja við akstur Þörf fyrir að leggja sig á daginn Vélindabakflæði HEILBRIGÐISMÁL „Okkar aðal- áhyggjumál er að biðlistar hafa farið mjög vaxandi. Í dag bíða 116 greindir kæfisvefnssjúklingar eftir meðferð og 178 manns eru á biðlista eftir mælingu,“ segir Þórarinn Gíslason, yfirlæknir lungnadeildar Landspítala–háskólasjúkrahúss. „Það þarf úrbætur á þessu sviði svo við getum staðið undir væntingum. Fólk sættir sig illa við að bíða í fjóra til sex mánuði eftir úrlausn sinna mála í þessu ríka samfélagi.“ Kæfi- svefn er meðal þess sem fjallað verður um á Vísindavöku Rannís í Listasafni Reykjavíkur í dag. Kæfisvefn er sjúkdómsástand skilgreint sem endurtekin öndunar- stopp þegar sjúklingur sefur, sem hafa í för með sér breytingar á líðan að degi til. Fólk nær ekki nægri hvíld og verður þreytt og syfjað að degi til. Lífshorfur fólks með kæfisvefn á háu stigi eru verulega skertar miðað við aðra á sama aldri. „Upphaflega var litið á kæfis- vefn sem sjálfstætt einangrað fyr- irbrigði sem fyrst og fremst ein- kenndist af hrotum, óværum svefni og syfju. Á síðustu árum hafa komið fram rannsóknir sem sýna greini- lega að það eru fylgikvillar með kæfisvefni. Þar á meðal háþrýsting- ur, gáttaflökt, hjarta- og æðasjúk- dómar, sykursýki og heilablóðföll,“ segir Þórarinn. Á Landspítalanum koma læknar, hjúkrunarfræðingar, líffræðingar og sálfræðingar að vísindarann- sóknum á kæfisvefni. Dagsyfja er helsta einkenni kæfi- svefns og hefur kanadísk rannsókn leitt í ljós að alvarleg umferðarslys voru þrefalt algengari meðal ómeð- höndlaðra kæfisvefnssjúklinga en meðal samanburðarhóps. Í virtu bresku læknatímariti var leitt að því líkum að með því að meðhöndla 500 kæfisvefnssjúklinga mætti koma í veg fyrir eitt banaslys, 75 slys með áverkum á fólki og yfir 200 slys með skemmdum á öku- tækjum. Samkvæmt skýrslu Rann- sóknarnefndar umferðarslysa varð að meðaltali eitt banaslys á ári hér- lendis frá 1998 til 2004 vegna syfju ökumanns. sdg@frettabladid.is INDVERSKUR FJÁRHIRÐIR Regntíminn setur svip á líf indverskra fjárhirða um þessar mundir. Gríðarlegt úrhelli var í borginni Kolkata (Kalkútta) í gær þar sem þessi mynd var tekin. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Fundarstjóri: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir SAMFÉLAGSMÁL Kjalarnesspróf- astsdæmi og Hafnarfjarðarkirkja standa að ráðstefnu um friðar- starf og sáttaferli í safnaðarheim- ilinu Strandbergi í dag. Dr. Rodney Petersen, forstöðu- maður Guðfræðistofnunarinnar í Boston, og dr. Raymond Helmick S. J., jesúítaprestur og alþjóðleg- ur sáttasemjari til fjölda ára, hafa þróað og beitt árangursríkum aðferðum til sáttaumleitana á átakasvæðum, meðal annars á Balkanskaga og Norður-Írlandi. Þeir flytja röð fyrirlestra á ráð- stefnunni um friðarstarf og sátta- ferli í Strandbergi sem hefst klukk- an 9.45 með stuttri helgistund í Hafnarfjarðarkirkju en safnaðar- heimilið opnar klukkan 9 með létt- um morgunverð. Fyrst fer fram kynning á félagslegu sáttaferli en síðan verður fjallað um fjögur lyk- ilhugtök í félagslegu sáttaferli í máli og myndum, erindum og umræðum. Ráðstefnan fer fram á ensku en stuttur útdráttur á íslensku verð- ur fluttur eftir hvern fyrirlestur. Ráðstefnan er öllum þeim opin sem láta sig málefni hennar varða. Í fyrrahaust heimsóttu prófast- ur og prestar úr Kjalarnesspróf- astsdæmi Guðfræðistofnunina í Boston og kynntu sér starfsemi hennar. Ráðstefnan í Strandbergi er ávöxtur af góðu samstarfi sem myndast hefur við stofnunina. - shá Ráðstefna í safnaðarheimilinu Strandbergi: Sáttaferli á átakasvæðum HAFNARFJARÐARKIRKJA Ráðstefna um friðarstarf og sáttaferli verður haldin í safnaðarheimilinu Strandbergi í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Löng bið hjá kæfisvefnssjúklingum: Kæfisvefn getur valdið slysum SVÍÞJÓÐ, AP Einn af leiðtogum vélhjólagengisins Bandidos í Svíþjóð var handtekinn í Gautaborg í gær í tengslum við tvær bílasprengjur, sem sprungu þar í borg á þriðjudag og miðvikudag. Lögreglan telur að sprengju- árásirnar hafi verið gerðar í hefndarskyni gegn leigubílstjóra og manni, sem sagður er þekktur í veitingahúsageiranum í Gautaborg. Enginn lét lífið af völdum sprenginganna, sem báðar voru framkvæmdar þannig að handsprengja var sett bak við eitt af hjólum bifreiðanna. - gb Bílasprengjurnar í Gautaborg: Vélhjólaforingi handtekinn Kæfisvefn stafar af þrengslum í loft- vegi og geta margvíslegar ástæður verið þar að baki. Um tveir af hverjum þremur kæfisvefnssjúklingum eru yfir kjörþyngd. Algengasta meðferðin við kæfisvefni er meðferð með svefnönd- unartæki sem er gríma fest yfir nef og munn. Um grímuna er blásið lofti sem heldur loftveginum opnum þegar sjúk- lingurinn sefur og kemur þannig í veg fyrir að loftvegur falli saman. Þá með- ferð þarf einstaklingur að nota þegar sofið er. Um síðustu áramót voru 1.820 manns með slíka meðferð. EDDA GUNNARSDÓTTIR, ERNA SIF ARNARDÓTTIR, BRYNDÍS HALLDÓRSDÓTTIR, ÞÓRARINN GYLFASON OG ATLI JÓSEFSSON Starfsfólk við kæfisvefnsrannsóknir á Landspítalanum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.