Fréttablaðið - 22.09.2006, Page 18
22. september 2006 FÖSTUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
Skoðanakönnun sem Capac-
ent Gallup vann fyrir
Landsamband íslenskra út-
vegsmanna sýnir að meiri-
hluti þjóðarinnar vill hefja
hvalveiðar í atvinnuskyni
að nýju. Aðeins fjögur
prósent tóku eindregna af-
stöðu gegn slíkum veiðum.
Sjávarútvegsráðherra telur
sýnt að þjóðareining hafi
myndast um hvalveiðar.
Niðurstöður könnunarinnar nú
sýna að 73,1 prósent aðspurðra eru
fylgjandi hvalveiðum. Andvígir eru
11,5 prósent og 15,4 prósent eru
hvorki með eða á móti. Sambærileg
könnun frá árinu 1997 sýnir svipað
hlutfall þegar kemur að fylgni við
hvalveiðar en þá voru 20,8 prósent
andvíg veiðunum. Samkvæmt þess-
um niðurstöðum hefur andstaða við
hvalveiðar Íslendinga í atvinnu-
skyni minnkað verulega.
Þjóðareining
Aðspurður um þessar niðurstöður
segir Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra að allar efnislegar
ástæður séu til staðar til að hefja
veiðar og þjóðréttarlega séu heim-
ildir skýrar. „Þessi könnun segir
okkur að það er þjóðareining um að
hefja atvinnuhvalveiðar. Það er
mikill stuðningur við mína skoðun
að það sé eðlilegt markmið okkar
að hér séu stundaðar hvalveiðar í
atvinnuskyni samhliða öðrum
atvinnurekstri. Við höfum stundað
veiðar í vísindaskyni í þrjú ár og
það hefur ekki valdið þeim óróa
sem margir óttuðust.“ Aðspurður
um hvenær hann telji eðlilegt að
hefja veiðarnar svarar Einar. „Við
verðum að velja tímapunktinn vel
og erum ekki komnir að neinni nið-
urstöðu varðandi það ennþá.“
Að selja hvali
Meginrök þeirra sem eru andvígir
hvalveiðum í atvinnuskyni er að
erfitt eða jafnvel útilokað sé að
koma hvalaafurðum í verð. Mjög er
horft til Japansmarkaðar en Nátt-
úruverndarsamtök Íslands telja
hann í raun lokaðan og óraunhæft
að byggja hvalveiðar í atvinnu-
skyni á væntanlegri sölu þar í landi.
Samtökin telja að japanski markað-
urinn fyrir hvalkjöt sé mettur eftir
að hvalveiðar Japana í vísindaskyni
voru stórauknar og því líklegt að
söluaðilar þar í landi leggist gegn
innflutningi frá Íslandi. Ekki síst í
ljósi þess að Norðmenn muni ganga
á lagið en þeir hafa lengi reynt að
koma hrefnukjöti inn á Japans-
markað en ætíð snúið bónleiðir til
búðar.
Þessum fullyrðingum hafna
hvalveiðisinnar með öllu. Jón Gunn-
arsson, formaður Sjávarnytja,
segir þessi rök í raun óhróður. Hann
telur að hægt sé að hefja sölu á
hvalafurðum á Japansmarkaði
strax á þessu ári ef leyfi til hval-
veiða fæst á haustmánuðum. Mark-
aðurinn sé stór og ekkert í alþjóða-
lögum komi í veg fyrir að hefja
viðskipti.
Jón nefnir að japönsk sendi-
nefnd, sem var hérlendis á dögun-
um að afla sér viðskiptasambanda,
segi að hvalkjöt í Japan hafi lækk-
að um tuttugu prósent í verði að
undanförnu vegna aukins fram-
boðs og salan hafi strax aukist um
50 prósent. Gunnar Bergmann,
framkvæmdastjóri Félags hrefnu-
veiðimanna, segir að ef tvö þúsund
krónur fáist fyrir kíló af hrefnu-
kjöti á Japansmarkaði verði
hrefnuveiðar í atvinnuskyni arð-
bærar. Kílóið á fiskmörkuðum í
dag er fimm til átta þúsund og í
smásölu rúmlega tuttugu þúsund
krónur.
Afrán hvala á Íslandsmiðum
Fjöldi hrefna á landgrunnssvæðinu
við Ísland var 43.600 dýr sam-
kvæmt síðustu talningum Hafrann-
sóknastofnunar sem fram fóru í
sumar. Stofninn er talinn vera
nálægt sögulegu hámarki. Hvalir
við Ísland eru taldir éta um sex
milljónir tonna af fæðu árlega og
þar er hrefnan atkvæðamest með
tvær milljónir tonna af heildar-
magni og eina milljón tonna af fiski.
Landssamband íslenskra útvegs-
manna vill leyfa hvalveiðar í
atvinnuskyni, fyrst og fremst til að
grisja stofnanna.
Vilhjálmur Jens Árnason, aðstoð-
arframkvæmdastjóri LÍÚ, segir að
frá sjónarhóli útvegsmanna sé stóra
málið varðandi hvalveiðar í atvinnu-
skyni afrán hvala á nytjastofnum
Íslendinga. „Við erum mikið að
hugsa um hvalveiðar út frá grisjun-
arsjónarmiðum. Samkvæmt nýj-
ustu rannsóknum er hrefnan meiri
afræningi en talið var áður og það
ýtir enn meira undir þá kröfu að
veiða úr stofninum.“
Frumathuganir Hafrannsókna-
stofnunar með fjölstofnalíkan
benda til að frekari vöxtur hvala-
stofna geti haft veruleg áhrif á
langtíma afrakstur þorskstofnsins.
Þannig er talið að tuttugu prósenta
minni afrakstur verði af þorsk-
stofninum ef hvalastofninn er sjö-
tíu prósent af hámarksstærð. Að
mati LÍÚ eru um sextíu þúsund
tonn að verðmæti 8,5 milljarðar
króna sé miðað við þrjú hundruð
þúsund tonna þorskkvóta.
Gísli Víkingsson, sérfræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun, segir
hugmyndir vera um að sjálfbær
hrefnustofn sé veiði upp á fjögur
hundruð dýr á ári. „Þessar tillögur
byggja á hugmyndum vísinda-
nefndar Norður-Atlantshafs sjáv-
arspendýraráðsins sem segir að
hún sé ólíkleg til að færa stofninn
niður fyrir sjötíu prósent af
hámarksstærð.“ Aðspurður um
hvað þurfi að veiða mikið af hrefnu
þannig að henni fækki nægilega
mikið til að hafa áhrif á veiði nytja-
stofna til skamms tíma litið, svarar
Gísli að hér sé um langtímamark-
mið að ræða. „Í þessum útreikning-
um vörpuðum við því fram að það
tæki tuttugu ár að fækka hrefnunni
niður í sjötíu prósent af hámarks-
stærð. Ef á að keyra stofninn niður
á örfáum árum er augljóst að það
þarf miklu meiri veiði.“
Að skoða eða skjóta
Sjónarmið ólíkra hagsmunahópa
virðast í fljótu bragði ósættanleg.
Hvalveiðisinnar telja það rétt þjóð-
arinnar og skildu að nýta hvalinn
eins og hverja aðra auðlind. Nú,
eftir rúmlega tveggja áratuga bar-
áttu, sé þjóðin komin í þá aðstöðu
að hefja hvalveiðar og það tæki-
færi skuli nýtt, skilyrðislaust. Á
sama tíma telja verndunarsinnar
að meiri hagsmunir tapist fyrir
minni og til dæmis muni ferða-
mannaiðnaðurinn líða fyrir veið-
arnar. Hvalveiðar sé ekki hægt að
réttlæta og fyrirsjáanlegt að slíkar
veiðar verði Íslendingum fjötur um
fót á alþjóðavettvangi. Hvalaskoð-
un er vaxandi atvinnuvegur og talið
að tæplega hundrað þúsund manns
fari í skoðunarferðir á þessu ári.
Raddir þeirra sem þessa atvinnu-
grein stunda hafa verið áberandi
og vilja þeir meina að hún muni líða
undir lok ef hvalveiðar hefjist á ný.
Á sama tíma er ekki að merkja að
vísindaveiðar á hrefnu síðan 2003
hafi haft áhrif á komur ferðamanna
til landsins né aðsókn að hvalaskoð-
un, þvert á móti.
Mergur málsins er að Íslending-
ar eru veiðmannasamfélag sem
mun aldrei sætta sig við að vera
bannað að nýta auðlindir sínar.
Þetta á við um hval eins og allt
annað. Hvalveiðar eru prinsippmál
og það verður að finna leið til að
sætta sjónarmið ólíkra hópa.
Svona erum við
FRÉTTASKÝRING
SVAVAR HÁVARÐSSON
svavar@frettabladid.is
> Kjarnafjölskyldur á Íslandi
70
.5
94
73
.6
65
66
.6
50
1997 2001 2005
Heimild: Hagstofa Íslands
Hvalveiðar skýlaus þjóðarvilji
BITBEIN Tólf tegundir hvala lifa hér við land. Helstu stofnar eru hrefna, langreyður, sandreyður og hnúfubakur. Veiðar eru áætlað-
ar úr þremur fyrst töldu stofnunum. Stofnar hrefnu og langreyðar eru taldir í sögulegu hámarki.
Heildarlausn fyrir snyrtinguna
Lotus Professional
R
V
62
15
A
Blár sápuskammtari Foam
Blátt WC Compact statíf fyrir tvær rúllur
Á tilboði í september
Arngrímur Þorgrímsson
Sölustjóri hjá RV
3.982 kr.
1.865 kr.
1.865 kr.
Blár enMotion snertifrír skammtari
Já*
26,6%
Nei
73,4%
*72,7% þeirra sem hafa farið í hvala-
skoðunarferð eru fylgjandi hvalveiðum
í atvinnuskyni.
HEFUR ÞÚ FARIÐ Í HVALASKOÐUN?
Heimild: Capacent Gallup
Já*
73,1%
Nei
11,5%
HEFUR ÞÚ BORÐAÐ HVALKJÖT?
*28,3% borðuðu hvalkjöt á síðastliðnu ári.
ERTU FYLGJANDI EÐA ANDVÍGUR
ÞVÍ AÐ ÍSLENDINGAR STUNDI
HVALVEIÐAR Í ATVINNUSKYNI?
Fylgjandi
73,1%
Andvíg(ur)
11,5%
Hvorki né;
15,4%
Þessi könnun segir okkur
að það er þjóðareining
um að hefja atvinnuhvalveiðar ...
EINAR K. GUÐFINNSSON
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
Fólk kveikir vart á útvarpi, les blöð eða horfir
á sjónvarp án þess að minnst sé á Úrvals-
vísitölu Kauphallar Íslands. Sú vísitala hækk-
ar eða lækkar daglega en hvað stendur þessi
vísitala fyrir og hverju er henni ætlað að
áorka?
Hvað er Úrvalsvísitalan?
Afar gróflega má segja að Úrvalsvísitalan
íslenska eigi við um þau íslensku fyrirtæki
sem auðveldast og ódýrast er að eiga viðskipti
með hverju sinni. Þó eru aðeins fimmtán fyr-
irtæki í hverju úrtaki fyrir Úrvalsvísitöluna og
er það endurskoðað á sex mánaða fresti og
með tilliti til markaðarins hvort breyta eigi
þeim fyrirtækjum sem þar eru hverju sinni.
Hvers vegna hækkar hún og lækkar?
Úrvalsvísitalan hækkar og lækkar hverju
sinni í takt við gengi þeirra fimmtán fyrir-
tækja sem vísitalan er byggð á. Þar er þó ekki
litið til heildarmarkaðsvirðis heldur það sem
fagmenn kalla flotgengi sem eru þau bréf í
viðkomandi fyrirtækjum sem aðgengileg eru
fjárfestum til kaups og sölu. Fjölmargar aðrar
reglur og takmörk sem ekki
verða tíunduð hér hafa
einnig áhrif á mæl-
ingu hvers og eins
fyrirtækis og áhrif
þeirra á Úrvals-
vísitöluna. Sem
dæmi þurfa ekki
að vera mikil við-
skipti hjá íslensku
bönkunum til
þess að þau hafi
áhrif á vísitöluna
þar sem bankarnir allir eru mjög stórir aðilar
á markaðnum.
Hver er tilgangurinn?
Úrvalsvísitalan gefur leikmönnum sem áhuga-
fólki grófa stöðu hvern dag fyrir flest stærstu
fyrirtæki landsins. Fagfjárfestar
nota bæði Úrvalsvísitöluna
og aðrar vísitölur eins og
Hlutabréfavísitöluna til
að fá yfirsýn yfir mark-
aðinn á stuttum tíma.
Úrvalsvísitalan gefur
þannig upplýsing-
ar um verðþróun
en er einnig hvati
því þangað komast
aðeins útvalin fyrir-
tæki.
FBL GREINING: ÚRVALSVÍSITALAN
Einfölduð mynd af gengi fyrirtækja