Fréttablaðið - 22.09.2006, Síða 27

Fréttablaðið - 22.09.2006, Síða 27
FÖSTUDAGUR 22. september 2006 3 Íslenska byggið er undirstaðan í þessum girnilega rétti. Til hnífs og skeiðar GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR Bygg-rísottó með graskeri Heilsuvöruverslanir hér á landi, með öllum sínum pökkum og flöskum, finnst mér oft hafa yfirbragð lyfjaverslana og skorta það krassandi aðdráttarafl sem mann dreymir um og margar hollustu- matvörubúðir erlendis hafa. Þó leynist ýmislegt gott í mörgum af þeim pokum og pökkum sem hér fást. Íslenska banka- byggið, til dæmis, er alveg frábært. Það er uppistaðan í rétti dagsins. 3 dl bankabygg 9 dl vatn 1 lítið grasker ( eða butternut kúrbítur) 2 rauðir laukar 4 hvítlauksgeirar 2 msk sólblómaolía salt og pipar sletta af tabasco 250 ml kókósmjólk 1 stilkur sítrónugras 1 msk soyasósa hnefafylli af ferskum kóríander 1 rauður chili (ef vill) 1. Sjóðið bankabyggið eftir leiðbeining- unum í um 40 mínútur og sigtið þá allt vatn sem eftir er í pottinum vel frá. 2. Á meðan byggið sýður, fræhreinsið og afhýðið graskerið og skerið það í um þumlungsstóra bita og skerið laukinn í fleyga. Setjið grænmetið í eldfast fat ásamt olíunni og hvít- lauksgeirunum. Saltið og piprið og skvettið tabasco-sósu út á eftir smekk. Bakið í 220 gráðu heitum ofni í 20-25 mínútur , eða þangað til bitarnir eru eldaðir í gegn og teknir að brúnast. 3. Setjið kókósmjólkina og soyasósuna á pönnu og hitið upp ásamt sítrónugras- inu, sem hefur verið marið aðeins með hnífsblaði og svo sett heilt út í. Látið malla í nokkra stund. Setjið þá soðið bankabyggið út í, slökkvið á hit- anum undir pönnunni og látið byggið drekka mólkina í sig í um 5 mínútur. Hrærið í nokkrum sinnum á meðan. 4. Berið bygg-rísottóið fram með bökuðu graskeri og lauk og sáldrið ferskum kóríander og niðurskornu fræhreins- uðu chili yfir eftir smekk. 1944 réttirnir eru komnir í nýjar umbúðir. Nú hafa umbúð- ir 1944 réttanna breytt bæði um útlit og form. Eins og neyt- endur vita eflaust eru 1944 réttirnir lystugur heim- ilismatur á borð við hangi- kjöt, kjötbollur, fiskbollur og kál- böggla. Þeir hafa þegar skapað sér fastan sess á markaðnum. Hluti réttanna er nú kominn í stærri og veglegri þriggja hólfa bakka í stað eins til tveggja hólfa áður. Skammtar hafa líka stækkað og bætt hefur verið við meðlæti. Breytt útlit og innihald Fiskbollurnar eru ein þeirra tegunda sem nú fást í þriggja hólfa bökkum. Þernur býflugnabúa fóðra drottninguna á mjólkurhvítu efni, það er blómasafa, úr munnvatnskirtlum sínum. Blómsaf- inn veldur því að drottningin verður stærri, frjósamari og langlífari en ófrjóu þernurnar. Býflugnabændur taka blómasafann eða drottningarhunangið úr býkúpum, hreinsa og vinna frekar þar til það er fullunnið. Náttúrulæknar halda því fram að drottningarhunang hafi svipuð áhrif á fólk og á býflugnadrottninguna, það lengi lífið, auki frjósemi og líkamsstærð. Sjá www.lyfja.is. Hvað er? drottningarhunang SÓMABAKKAR Nánari uppl‡singar á somi.is *Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr. PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.