Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.09.2006, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 22.09.2006, Qupperneq 40
8 Björgvin Halldórsson ætlar að fylla þrjár Laug- ardalshallir með Sinfóníuhljómsveit Íslands um helgina. Þar verður einnig 60 manna kór, ryþ- masveit, gestasöngvarar og bakraddir. Björgvin hefur hljóðritað á bilinu 700-800 lög um tíðina og segist aldrei hafa verið betri. „Mér finnst ég vita meira hvað ég er að gera núna en í den.“ Björgvin hefur aldrei staðið á sviði með Krumma syni sínum sem ætlar að syngja með Sinfóní- unni, pabba og Svölu systur um helgina. Sirkus spjallaði við Björgvin og fyrsta spurningin var einföld. Lengi staðið til? „Maður stendur náttúrulega á tímamótum þegar maður er orðinn hálf hundrað ára og þetta hefur blundað í mér lengi. Nú er þetta bara að skella á og það verður ekkert aftur snúið. Þetta er æðislega spennandi og það er mikill hugur í fólki enda stærsta „live“ verkefni sem ég hef tekið mér fyrir hendur og hugsanlega fleiri.“ Fyrsta skiptið sem Björgvin vann með Sinfón- íuhljómsveitinni var árið 1992 þegar hann stjórnaði upptökum á plötu sem hét í Takt við tímann. Hefur Björgvin alltaf verið í takt við tímann? „Ég ætla rétt að vona það enda fylgist ég mjög vel með, ég fer nú samt ekki að gera hiphop- plötu alveg í bráð. Ég reyni að þroskast með því sem ég er að gera og þær móttökur sem ég hef fengið um árin sýna að ég hef verið þó nokkuð í takt við tímann.“ Björgvin hefur samt alltaf passað sig á því að vera ekki með of mikið af tónleikum til þess að ofgera ekki fólki. Hann hefur til dæmis ekki haldið tónleika í mörg ár, en aftur á móti haldið fjölmargar söngskemmtanir á Broadway. Hann segist þurfa að finna hjá sér sterka hvöt til þess að gera plötur og halda tónleika. En hvaða lög verða tekin? „Það er hernaðarleyndarmál en ég get sagt frá því að við verðum með lítinn forleik sem kallast Skýjasvítan og er byggður á lagabrotum eftir mig. Það er hann Hrafnkell Orri Egilsson sem útsetti hann og flytur Sinfónían forleikinn instru- mental í byrjun. Það er samt erfitt að koma öllu fyrir. Ég á mikið af lögum sem eru stór og mikið af ballöðum. Ætli ég sé ekki búinn að hljóðrita á bilinu 700- 800 lög og ég er svo heppinn að mörg þeirra eru þekkt og hafa staðist tímans tönn.“ Björgvin kemur fram ásamt Sinfóníuljómsveit- inni, ryþmasveit, bakröddum, gestasöngvurum og svo 60 manna karlakór. „Þegar þetta er orðið svona stórt auðveldar það náttúrulega valið á lögunum. Með fullri virð- ingu fyrir Nínu og Geira og fjölskyldu, þá myndi það tiltekna lag ekki gera sig í þessu dæmi. Þú velur lögin eftir því hvernig hljóðfæraskipan er hverju sinni. Stóru ballöðurnar verða samt þarna og ég get t.d. nefnt Skýið og Vetrarsól, sem eru lög sem mér þykir afskaplega vænt um. Þetta eru lög sem ég frumflutti og hafa að mörgu leyti mótað mig í bransanum“ Þrennir tónleikar verða haldnir um helgina en það er ekki á færi margra að fylla þrjár Laugar- dalshallir. „Fyrsta frumsýningin er á laugardaginn klukkan 17.00 en það er Straumsvík hérna í Hafnarfirði sem keypti þá tónleika. Ísal er nefnilega fjörutíu ára og ætlar að bjóða starfsfólki og Hafnfirðing- um á tónleikana sem er afskaplega gaman fyrir strák úr Hafnarfirði. Svo eru aðrir um kvöldið og svo aukatónleikar á sunnudagskvöldið.“ Björgvin Halldórsson er fimmtíu og fimm ára og hefur verið í bransanum ansi lengi. Hann hefur verið einn afkastamesti og vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar nær allan þann tíma. Hvernig hefur þetta verið? „Þetta er bara búið að vera eins og þeir segja í Bandaríkjunum, a fantastic ride. Það hefur auð- vitað ýmislegt komið upp á, en það hverfur eins og hjá öllu fólki sem lítur yfir farinn veg og góðu tímarnir standa upp úr. Ég er bara feginn því að standa enn í lappirnar og vera að búa til tónlist. Mér finnst ég loksins vera farinn að kunna þetta núna.“ Aldrei verið betri? „Mér finnst ég að minnsta kosti vita meira hvað ég er að gera núna. Ætli það sé ekki bara gamla reynslan sem er að koma sterk inn.“ Alltaf verið atvinnutónlistarmaður? „Fyrst gerði ég ekkert annað alveg í mörg, mörg ár. Síðan fann ég hjá mér hvöt til þess að gera eitthvað annað vegna þess að ég þykist nú hafa vit á svo mörgu öðru. Ég stjórnaði útvarpsstöð, kvikmyndarásum, vann á auglýsingastofum, umboðsskrifstofu og fékkst við ráðgjöf. Ég er eiginlega búinn að vera ofan á borðinu, undir borðinu og við borðið í þessum miðlunarbransa. Það hefur líka gefið mér mikla ánægju og reynslu að sjá allar hliðarnar á þessum bransa. Það kemur mér eiginlega á óvart hve ég hef fengist við mörg störf um tíðina.“ Alltaf verið svona mikill töffari? „Ég er enginn töffari. Þetta er allt bara einhver brynja og leikur. Maður markast auðvitað af samferðamönnum sínum og í þessum bransa, rokkinu og músíkinni, skemmir ekki fyrir að vera með smá attitjút.“ Er þetta þá allt meðvitað? „Nei, ég held að þetta hafi byrjað hjá mér í barnaskóla. Þá var ég mjög lítill að vexti og var stundum tekinn af stóru strákunum í bakaríið, þetta er kallað einelti í dag. Ég varð að bregð- ast við þessu og fór þá bara að nota munninn.“ Þú ert húmoristi? „Já, það er alveg á hreinu. Húmorinn verður að vera til staðar og ég tek lífið ekki of hátíðlega. Það er enginn tími til þess að taka þetta alvar- lega.“ Það verður ekki hjá því komist að spyrja Björg- vin út í frasana sem hafa verið hans aðalmerki í mörg ár. Hvernig er það, vellur þetta bara upp úr þér? „Nei, ég pæli nú ekkert í þessu. Það er hellingur af samferðarmönnum mínum sem eru svona líka. Ég kalla þetta einlínunga eða „one-liners“. Þú finnur bara einhverja setningu sem lýsir ákveðnum hlut án þess að gera þetta of langt og flókið. Maður temur sér þetta bara og hefur gaman af. Ég fæ líka oft marga góða á mig sjálf- an; ef þeir eru nógu góðir þá nota ég þá bara sjálfur. Það er ekkert nýtt undir sólinni maður, en það er rétt, þetta hefur svolítið fest við mann.“ Af hverju? „Það er bara þannig að sumar sögur festast við mann. Þetta er bara eins og með norsku brand- arana sem urðu að Hafnarfjarðabröndurum. Eitthvað af þessum sögum um mig eru sannar en aðrar ekki, þetta lífgar bara upp á stemning- una í hópnum.“ Einhver frægasti einlínungur Björgvins er hinn svokallaði „Bolur“ en annan á hann líka sem er „Hilmar á lyftaranum“. Hver er það? „Hann er sko forveri bolsins. Bolurinn er bara eitt orð yfir alþýðumanninn, almúgann eða límið sem heldur þjóðfélaginu saman. Þetta er bara eins og „Ordinary-Joe“ eða Siggi í næsta húsi. En allt saman vel meint enda erum við allir bolir inn við beinið, bara misjafnar gerðir af bolum. Þú getur verið í bol frá Sólningu og svo geturðu verið bolur frá Armani.“ viðtalið BOLURINN BJÖRGVIN HALLDÓRSSON TEKUR LÍFIÐ EKKI OF ALVARLEGA Ég er enginn töffari „Ég er bara feginn því að standa enn í lapp- irnar og vera að búa til tónlist. Mér finnst ég loksins vera farinn að kunna þetta núna.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.