Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 70
 22. september 2006 FÖSTUDAGUR38 Breska rokksveitin Placebo tók upp nýtt myndband fyr- ir skemmstu. Íslendingar voru afar áberandi við gerð myndbandsins. Félagarnir Stefán Árni og Siggi Kinski, fyrrum meðlimir Gus Gus, tóku nýverið upp myndband við lagið Follow the Cops Back Home með ensku rokksveitinni Placebo. Lagið var samið á Íslandi og upphaflega stóð til að taka það upp hér á landi en á endanum varð Los Angeles fyrir valinu. Með aðalhlutverk í mynd- bandinu fara Erna Ómarsdóttir dansari og Harry Dean Stanton, sem er m.a. þekktur fyrir hlutverk sín í Wild at Heart, The Green Mile, Repo Man og Paris, Texas. Auk þeirra koma leikstjórarnir sjálfir við sögu í myndbandinu. Erna var í tvo daga í Los Angel- es við tökurnar og segir hún upp- lifunina hafa verið mjög sérstaka. „Þetta er allt annar heimur en ég er í en það er mjög hollt að upplifa aðra hluti. Þetta var mjög skemmti- legt og upplífgandi,“ segir Erna. Í mynd- bandinu er sögð saga af stúlku, sem er leikin af Ernu, sem lítur út fyrir að hafa sloppið frá lögreglunni, sem Stefán Árni og Siggi leika. Fer hún að dansa um í handjárnum þar til Harry Dean Stanton nær í lykilinn að þeim og bjargar henni. Dansa þau síðan saman í lokin. „Þetta var ekki leið- inlegt og hann kenndi mér nokkra góða takta,“ segir Erna um Harry Dean. „Hann er einn af mínum uppáhaldsleikurum og það var mjög gaman að dansa við hann. Hann er skemmtilegur karakter. Hann virkaði frekar þreytulegur í byrjun en svo lifnaði yfir honum þegar ég fór að kenna honum íslensku,“ segir hún. Erna er um þessar mundir búsett í Belgíu þar sem hún undir- býr m.a. sýningu með fjöllista- hópnum Pony. Er hún einnig með annan fótinn á Íslandi. Hún er ekki ókunnug tónlistarmyndböndum því hún hefur áður leikið í mynd- bandi við Bjarkarlagið Where Is the Line? af plötunni Medúlla. Þar fór hún eftirminnilega með hlut- verk djöfuls sem brýst út úr Björk. Stefán Árni og Siggi hafa áður tekið upp myndbönd fyrir sveitir á borð við Snow Patrol, Travis og Iggy Pop og eru því ýmsu vanir í bransanum. Einnig tóku þeir upp myndband við lag Sigur Rósar, Glósóli, sem var valið besta rokk- myndbandið á Sköpunar- og hönn- unarverðlaununum sem voru afhent í Hammersmith Palais í London á dögunum. freyr@frettabladid.is Íslendingar allt í öllu í nýju myndbandi hjá Placebo VIÐ TÖKUR Erna Ómarsdóttir við tökur á myndbandinu ásamt Stefáni, Sigga og Harry Dean Stanton. ERNA Erna Ómarsdóttir dansaði við Harry Dean Stanton í Los Angeles. Brad Pitt og Angelina Jolie eru augljóslega ekki á flæðiskeri stödd því parið gaf nýverið tvær milljónir bandaríkjadala, sem samsvara tæplega 150 milljónum íslenskra króna, til Global Action for Children og samtakanna Lækna án landamæra en þetta kemur fram í tilkynningu frá tals- manni skötuhjúanna. Í yfirlýs- ingu sem Trevor Neilson, ráðgjafi Pitt-Jolie sjóðsins, las upp fyrir fjölmiðla kemur fram að Jolie hafi lengi fylgst með læknum og hjúkrunarfólki vinna starf við ótrúlegar aðstæður. „Og ég dáist að framtaki þeirra,“ segir í yfir- lýsingunni. Jennifer Delaney, fram- kvæmdastjóri Global Action for Children, lýsti yfir þakklæti sínu og sagði að þau Pitt og Jolie væru ekki einungis umhyggjusöm held- ur létu þau til sín taka í málefnum barna sem misst hafa foreldra sína úr alnæmi og öðrum sjúk- dómum. „Meirihluti þessara barna byggir afkomu sína á því að utan- aðkomandi fjölskyldur taki þau að sér og við þurfum fólk sem vill vinna að því að útrýma HIV og fátækt,“ sagði Jennifer. Gjafmildir leikarar PITT OG JOLIE Gáfu nýverið tvær milljón- ir dala til góðgerðarmála en Jolie er ein- mitt sendiherra Sameinuðu þjóðanna í málefnum flóttamanna. Þrátt fyrir að ég hafi verið með pent diss við karlmenn í síðustu viku, þegar ég lýsti því yfir að mér fyndist þeir ekki nógu duglegir að bjóða konum á deit, ætla ég að koma með aðra yfirlýsingu sem fer eflaust fyrir brjóstið á mörgum. Þannig er mál með vexti að mér finnst að karl- menn eigi að vera karlmenn og konur eigi að vera konur. Ég er ekki frá því að þetta sé farið að renna allhressilega saman. Ég þekki til dæmis einn mann sem er lengur en konan hans að gera hárið á sér fínt áður en þau fara út á lífið. Þetta finnst mér einhvernveginn svo á skjön við allt sem ég er alin upp við og þekki af eigin raun. Í mínum huga eiga karlmenn að vera karlmannlegir og náttúrulega fallegir. Það getur svo reyndar vel verið að mín skilgreining á því hvað sé karlmennska sé einhver allt önnur en hjá öðrum konum. Ég skil til að mynda ekki hvernig stendur á því að mjög margir karlmenn eru farnir að raka á sér bringuhárin, hvað á það eiginlega að þýða? Í mínum huga er það eitt af aðalsmerkjum karlmennskunnar að vera vel hærðir, og þá meina ég ekki á höfðinu. Ég veit meira að segja um einn sem rakar sig undir höndunum. Ég fékk bilað hláturskast þegar ég heyrði það. Smart að vera með brodda undir höndunum strákar, hvað þá á bringunni! Ég get þó alveg skilið það að menn noti dagkrem til að komast hjá því að verða hrukkóttir fyrir aldur fram en þegar þeir eru farnir að vera með augnkrem, dagkrem, næturkrem, brúnkukrem og gloss finnst mér heldur mikið af hinu góða í gangi. Svo ekki sé minnst á allar mismunandi hárvörurnar sem þeir eru að klína í hárið á sér. Snyrtibuddur metrómannanna eru orðnar heldur vel útilátnar og ég vil segja stopp hér. Það er ekki langt síðan við hefðum allar fengið hlátur- skast við þá tilhugsun að karlmenn myndu fara að dúlla sér fyrir framan spegilinn kvölds og morgna og kaupa snyrtivörur fyrir tugi þúsunda á ári. Hugmynd mín um alvöru karlmenni er meira í þá átt- ina að vera með grófar hendur, mikinn hárvöxt, og koma til dyranna eins og þeir eru klæddir. Það er kannski hræsni í mér að vera með þessar yfirlýsingar þar sem ég eyði duglegum tíma í að punta mig á hverjum degi en mér finnst það bara allt annar handleggur. Fyrst þetta er að hellast yfir okkur með þeim látum sem raun ber vitni getum við rétt ímyndað okkur hvernig þetta endar allt saman. Það er jú rétt að í hverjum karlmanni býr ögn af kvenleika en það er mjög takmarkað hversu mikið kvenleikinn á að skína í gegnum brynjuna. Kannski þarf ég að fara að opna hugann gagnvart þess- ari metróbylgju og sætta mig við það sem koma skal? En þang- að til ég geri það ætla ég ekki að hvika í baráttu minni gegn snyrtiæðinu! REYKJAVÍKURNÆTUR HÖRPU PÉTURSDÓTTUR FINNST AÐ KARLMENN EIGI AÐ VERA KARLMENN Beckham-væðingin „Mér fannst vera gat á markaðn- um fyrir svona búð hérlendis. Eitt- hvað blandar saman afþreyingu og verslunarmennsku,“ segir Guð- laug Halldórsdóttir, annar eigandi nýrrar lífstílsbúðar sem ber nafn- ið 3 Hæðir og verður opnuð á Laugavegi 60 í dag. Helga Valfells er meðeigandi Guðlaugar, sem löngum hefur verið kennd við búð- ina Má Mí Mó þar sem hún hefur selt allskyns hönnunarvöru. „Ég ákvað að gera þetta fyrir ári síðan enda alltaf með löngun í að gera eitthvað nýtt og spennandi,“ segir Guðlaug en eins og nafnið gefur til kynna er búðin á þremur hæðum sem er skipt eftir viðfangs- efnum. Á fyrstu hæðinni er smávara; töskur, skartgripir, tæki á borð við iPod og mp3-spilara, bækur og tón- list. „Fyrsta hæðin er eiginlega svona herradeild þótt að konur finni þar eitthvað við sitt hæfi líka.“ Önnur hæðin er tileinkuð fatnaði og eru þar merki á borð við Albertu Ferretti, Comme des Garcon og Dsquered ásamt fleiri frægum hönnuðum. „Við verðum með fatn- að fyrir bæði kynin í búðinni og skiptum út vörum á tveggja vikna fresti. Þannig verðum við ávallt með eitthvað nýtt að sjá í búðinni og viðskiptavinurinn verður að fylgjast vel með.“ Verslunar- og framkvæmda- stjóri í búðinni er hönnuðurinn og stílistinn Hildur Hafstein sem ásamt Guðlaugu mun standa vakt- ina bak við afgreiðsluborðið. Á efstu hæðinni verður svo veit- ingastaður sem aðeins verður opinn á búðartíma. Hann mun bjóða upp á allt frá mat upp í kökur fyrir þá sem vilja hvíla sig milli búða á mið- bæjarröltinu en einnig er hægt að panta mat til að taka með, sem er hentugt fyrir þá sem vinna í nágrenninu. „Maturinn er allt frá Ítalíu til Japans og því fjölbreytt úrval af öllu hjá okkur. Fatnaði, smávöru og mat,“ segir Guðlaug að lokum. - áp Lífstílsbúð opnar í miðbænum GUÐLAUG HALLDÓRSDÓTTIR Opnar í dag nýja lífstílsbúð á Laugarveginum sem ber nafnið 3 Hæðir en þar kennir ýmissa grasa allt frá tónlist til matar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Lögreglan í Los Angeles rannsak- ar nú kæru sem leikkonan Camer- on Diaz lagði fram gegn ljósmynd- ara en þar sakar hún hann um að hafa ógnað lífi sínu og limum. Atvikið átti sér stað fyrir utan hús vinar Diaz og unnusta hennar Justin Timberlake og segir Diaz að þegar parið hafi verið að fara heim hafi ljósmyndari komið aðvífandi og viljað taka myndir af skötuhjúunum en fékk ekki. Samkvæmt skýrslu sem tekin var af Diaz lét ljósmyndarinn ekki segjast, settist upp í bílinn sinn og ók í átt að þeim þannig að Diaz neyddist að stökkva frá til að verða ekki fyrir bifreiðinni. Samkvæmt talsmanni lögregl- unnar, April Harding, er rannsókn nú á frumstigi en ríkisstjórinn í Kaliforníu, Arnold Schwarzen- egger, hefur tilkynnt um hertar refsingar gagnvart svokölluðum paparazzi-ljósmyndurum ef þeir stofna lífi fræga fólksins í hættu þegar ná á myndum. Þegar hafa leikkonurnar Lindsay Lohan og Scarlett Johansson lent í smá- vægilegum slysum vegna þess að þær voru að eigin sögn að flýja undan ljósmyndurum. Diaz kærir ljósmyndara DIAZ OG TIMBERLAKE Komust í hann krappan þegar ljósmyndari brást illa við eftir að parið neitaði honum um myndatöku. FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.