Fréttablaðið - 22.09.2006, Page 74
42 22. september 2006 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Sérkennileg uppákoma
varð í hálfleik á leik Fram og
Stjörnunnar í meistarakeppni HSÍ
á miðvikudagskvöldið. Stuðnings-
maður Stjörnunnar, Magnús Viðar
Heimisson, bað um að stuðnings-
mannalag Stjörnunnar yrði spilað
í hátalarakerfi íþróttahússins í
Safamýri en vallarkynnir neitaði.
Í kjölfarið ræddi hann málið
við Kjartan Ragnarsson, formann
handknattleiksdeildar Fram, og
lauk þeim samskiptum með því að
Kjartan vísaði Magnúsi úr húsi
með valdi eins og sést á meðfylgj-
andi myndum sem eru fengnar frá
NFS en myndatökumaður stöðvar-
innar náði góðum myndum af
atvikinu.
„Þetta var alls ekkert alvarlegt
atvik,“ sagði Kjartan við Frétta-
blaðið. „Hann reif bara kjaft og
var með dónaskap. Það fauk í mig
og ég henti honum út. En þetta risti
ekki djúpt enda kom hann aftur í
húsið og kláraði að horfa á leikinn.
Það urðu engin eftirmál að þessu.“
Sjálfur segist Magnús alls ekki
hafa verið með neinn dónaskap,
hvorki þegar hann ræddi við vall-
arkynninn né Kjartan. „Ég reyndi
að rökræða málið við hann og rífur
hann þannig í mig að það sér enn á
mér og henti mér út,“ sagði Magn-
ús Viðar frekar ósáttur.
Stuðningsmenn Stjörnunnar
vildu frumflytja nýtt stuðnings-
mannalag á leiknum og fannst
kjörið tækifæri til þess í hálfleik
enda sé meistaraleikur HSÍ að
forminu til hlutlaus leikur. „Það er
rétt, leikurinn á að vera á hlutlaus-
um velli en HSÍ sá sér ekki fært að
halda þessa leiki og fela Íslands-
meisturunum að gera það. Því er
það gert algerlega á okkar for-
sendum,“ sagði Kjartan.
Þorsteinn Rafn Johnsen,
formaður handknattleiksdeildar
Stjörnunnar, tók í svipaðan streng
og Magnús og sagði að Stjörnu-
menn hefðu átt rétt á að fá lagið
spilað. „Kynnirinn braut allar
hefðir sem hafa verið í svona leikj-
um og lét eins og um heimaleik
Fram í deildinni væri að ræða.“
Það er óhætt að segja að hand-
boltatímabilið fari líflega af stað
og verður gaman að fylgjast með
þegar þessi sömu lið mætast í 1.
umferð deildarinnar í lok mánað-
arins. - esá
Skrautleg uppákoma í Meistarakeppni HSÍ:
Formaðurinn henti stuðn-
ingsmanni Stjörnunnar út
HASAR Það dugðu engin vettlingatök þegar Kjartan Ragnarsson, formaður handknattleiksdeildar Fram, henti Magnúsi
Viðari Heimissyni, stuðningsmanni Stjörnunnar, út úr húsi. Magnús sneri fljótt aftur inn í húsið og var aðalmaðurinn í
myndatökum eftir leikinn þar sem hann hélt á bikarnum en ekki fyrirliði eða leikmenn liðsins.
1 2
3 4
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
> Ragnhildur úr leik
Ragnhildur Sigurðardóttir, kylfingur úr GR, komst ekki í gegn-
um niðurskurðinn á úrtökumóti fyrir LPGA-mótaröðina í golfi
en leikið var í Palm Springs í Kaliforníu. Ragnhildur lék fyrstu
hringina tvo á 81 og 76 höggum og er því ekki ein af þeim
70 keppendum sem fá að klára síðari tvo hringina. 30 efstu
keppendur að mótinu loknu komast á lokaúrtöku-
mótið fyrir mótaröðina. Ragnhildur ætlar að
freista gæfunnar á öðru úrtökumóti sem fer
fram í Flórída í byrjun október.
FÓTBOLTI Guðmundur Benedikts-
son, leikmaður Vals í knatt-
spyrnu, hefur framlengt samning
sinn við félagið um eitt ár.
Guðmundur er nú að klára sitt
annað ár sem leikmaður Vals og
nú er ljóst að hann mun leika með
liðinu í a.m.k. eitt ár til viðbótar.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá Val að vilji sé hjá báðum
aðilum að Guðmundur taki að sér
störf þjálfara hjá félaginu að
ferlinum loknum. - dsd
Guðmundur Benediktsson:
Framlengir
um eitt ár
GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON Áfram í
Val.
FÓTBOLTI 1. deildarmeistarar Fram
tilkynntu í gær að þeir hefðu
ákveðið að framlengja ekki samn-
ingi sínum við Ásgeir Elíasson.
Ásgeir var með þriggja ára samn-
ing við Fram en félagið ákvað að
nýta uppsagnarákvæði í samn-
ingnum. Tíðindin koma nokkuð á
óvart þar sem undir stjórn Ásgeirs
vann Fram öruggan sigur í 1.
deildinni.
„Þeir sem sáu liðið spila í sumar
ættu að vita af hverju við tökum
þessa ákvörðun. Menn voru ein-
faldlega ekki sáttir við spila-
mennskuna,“ sagði Finnbjörn Agn-
arsson, formaður Fótboltafélags
Reykjavíkur hf., sem er rekstrar-
félag meistaraflokks Fram. „Nú
þurfum við að horfa fram á veginn
og fá nýjan mann í starfið sem fær
það verkefni að koma Fram aftur í
fremstu röð.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa Framarar mikinn
áhuga á að fá Guðjón Þórðarson til
að rífa liðið upp en Finnbjörn stað-
festi áhuga félagsins á Guðjóni
fyrr í vikunni. Fram er einnig talið
hafa áhuga á öðrum Skagamanni,
Ólafi Þórðarsyni. Finnbjörn vildi
ekki staðfesta að búið væri að
ræða við þessa menn í gær.
„Við höfum heyrt í nokkrum
mönnum en ég vil ekkert segja
hverjir það eru. Stjórnin er að
velta fyrir sér stöðunni og við
stefnum á að klára þjálfaramálin
fyrr frekar en síðar,“ sagði Finn-
björn.
Ásgeir Elíasson tekur tíðindun-
um með mikilli yfirvegun þó heyra
megi að þau hafi komið honum
nokkuð á óvart en hann segist
sjálfur ekki vera viss um að hafa
viljað halda áfram.
„Ég átti líka sjálfur eftir að
taka ákvörðun um hvort ég vildi
halda áfram og ég hefði hugsan-
lega ekki gert það að öllu óbreyttu.
Ég átta mig samt ekki alveg á um
hvað þetta snýst. Ég tel að liðið
hafi spilað vonum framar og
árangurinn var alveg ásættanleg-
ur að mínu mati. Markmiðunum
var náð,“ sagði Ásgeir, en er hann
ekkert fúll yfir þessum málalykt-
um? „Nei, þetta er bara svona. Ég
er þjálfari og þá getur maður búist
við öllu.“
Ásgeir segir að hann sé ekki
hættur að þjálfa og stefnir á að
mæta til leiks næsta sumar með
nýtt lið.
„Ég vænti þess að ég fái eitt-
hvað að gera. Mér liggur ekkert á
að hætta enda barnungur ennþá,“
segir Ásgeir léttur í bragði.
henry@frettabladid.is
Óásættanleg spilamennska
Finnbjörn Agnarsson, formaður Fótboltafélags Reykjavíkur hf, segir að stjórnin
hafi ekki getað sætt sig við þá spilamennsku sem boðið var upp á hjá Ásgeiri
Elíassyni og því hafi félagið ákveðið að slíta samstarfinu.
SVÆLDUR ÚR SAFAMÝRINNI Þótt Ásgeir Elíasson hafi komið Fram upp í úrvalsdeild á
sannfærandi hátt þá fær hann ekki að halda starfi sínu áfram. Hann ætlar að halda
áfram í þjálfun.
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
Sænska úrvalsdeildin
HAMMARBY-IFK GAUTABORG 3-3
Pétur Marteinsson spilaði allan leikinn fyrir Hamm-
arby en Gunnar Þór Gunnarsson kom af bekknum
á 55. mínútu - Hjálmar Jónsson var í byrjunarliði
Gautaborgar en fór af velli á 75. mínútu.
ÖRGRYTE-ÖSTER0 0-2
Helgi Valur Daníelsson lék allan leikinn fyrir
Öster.
MALMÖ-KALMAR 2-2
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir Malmö og
lagði upp annað marka liðsins.
STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA:
AIK 19 11 6 2 35-17 39
IF ELFSBORG 19 9 9 1 35-17 36
IFK GÖTEBORG 19 8 7 4 33-22 31
KALMAR FF 19 9 3 7 28-21 30
DJURGARDEN 19 8 6 5 22-16 30
MALMÖ FF 19 8 5 6 32-27 29
------------------------------------------------------------
GAIS 19 5 7 7 20-25 22
HALMSTADS 19 4 8 7 15-23 20
ÖRGRYTE IS 19 3 5 11 19-33 14
ÖSTERS IF 19 3 4 12 14-36 13
BK HACKEN 19 2 6 11 19-36 12
Hollenska bikarkeppnin
BENNEKOM TECPOOL-AZ ALKMAAR 0-10
Grétar Rafn Steinsson var í byrjunarliði AZ en
Jóhannes Karl Guðjónsson var ekki í hópnum.
FÓTBOLTI Keflvíkingurinn Ingvi
Rafn Guðmundsson hefur ekki
enn jafnað sig eftir tæklingu
Eyjamannsins Páls Hjarðar
síðasta sumar og er staddur í
Hollandi þessa dagana þar sem
hann reynir að fá bót meina sinna.
Að því er fram kemur á heima-
síðu Keflavíkurliðsins eru læknar
ytra bjartsýnir á að geta komið
Ingva í leikform á ný en hann fer
væntanlega í aðgerð á þriðjudag.
- hbg
Ingvi Rafn Guðmundsson:
Á leið í aðgerð í
Hollandi
Þessa dagana er í ganga skoðanakönnun á
spjallborðinu á heimasíðu ÍA þar sem kjósend-
ur geta kosið á milli þess hvort þeir vilji halda
bræðrunum Arnari og Bjarka sem þjálfurum
liðsins, fá Guðjón Þórðarson til starfa eða ein-
hvern annan. Þegar þetta er skrifað hafa
19 atkvæði verið greidd, 13 vilja halda
þeim bræðrum, 5 vilja fá Guðjón til
að stýra liðinu og einn vill ein-
hvern annan til starfsins. Flestir
sem tjá sig virðast síðan styðja
bræðurna.
Af þessu að dæma er því ljóst að Arnar og
Bjarki njóta töluverðs stuðnings hjá stuðnings-
mönnum Skagamanna. „Málið er að ef Guðjón
hefði komið á sínum tíma og reddað þessu þá
væri hann í guðatölu. En af því að þeir bræð-
ur tóku við þessu, sem var svona ódýr lausn,
þá finnst fólki þetta ekki alveg eins merkilegt.
Það er nú eins skrýtið og það er,“ sagði Þórður
Gylfason, formaður stuðningsmannafélags ÍA.
„Persónulega hef ég alls ekkert á móti
því að þeir bræður haldi áfram með
liðið, ef þeir hafa áhuga á því og
ná sér í þá þjálfaramenntun
sem þarf. Þeir eru búnir að
gera mjög góða hluti fyrir
okkur,“ sagði Þórður. „Ég
væri líka alveg til í að fá
Guðjón. Það er hins
vegar miklu auðveldara
fyrir stjórnina að vinna
með Arnari og Bjarka
heldur en nokkurn tím-
ann með Guðjóni, það hefur mar-
goft sýnt sig. Tvíburarnir eru minnst
að gera þetta peninganna vegna og
þeir leggja sig alla í þetta og fólkið
kann vel að meta það.“
Það fór ekki á milli mála hjá Þórði að fólkið
stendur þétt við bakið á þeim Arnari og Bjarka.
„Ég held að ég tali fyrir hönd flestra
þegar ég segi að það vill enginn
missa þá. Þetta var erfitt fyrir
okkur stuðningsmennina að sýna
liðinu stuðning þegar við töp-
uðum öllum þessum leikjum í
byrjun en á seinni hluta leik-
tíðarinnar er þetta búið að
vera mjög gaman,“ sagði
Þórður og bætti því við að
þessi tímasetning á yfir-
lýsingu Guðjóns um að
hann hefði áhuga á starf-
inu væri alveg út í hött.
„Ég var mjög hneykslaður,“
sagði Þórður að endingu.
ÞÓRÐUR GYLFASON: FORMAÐUR STUÐNINGSMANNAFÉLAGS ÍA ER ÁNÆGÐUR MEÐ TVÍBURANA
Flestir vilja hafa tvíburana áfram sem þjálfara
GOLF Ryder-keppnin hefst í dag en
að þessu sinni er leikið í Írlandi.
Athyglisverðasta rimma
dagsins er á milli Bandaríkja-
mannanna Tiger Woods og Jim
Fyryk sem mæta Evrópumönn-
unum Colin Montgomerie og
Padraig Harrington. Sýnt verður
beint frá mótinu á RÚV. - hbg
Ryder-bikarinn:
Tiger gegn
Montgomerie