Fréttablaðið - 22.09.2006, Page 78

Fréttablaðið - 22.09.2006, Page 78
 22. september 2006 FÖSTUDAGUR46 „Ég var í endurhæfingu á þeim stórkostlega stað Reykjalundi, svo það er búið að gefa manni start,“ segir Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður. Hann er nú óðum að braggast eftir erfið veikindi og með ýmis járn í eldinum; bæði er hann með leikrit í bígerð auk þess sem til stendur að kvikmynda bók eftir hann. Þorvaldur var lagður inn á spít- ala í vor eftir að hafa fengið vægt heilablóðfall. „Þegar betur var að gáð kom í ljós að það var líka eitt- hvað að hjartanu í mér svo ég þurfti að gangast undir hnífinn.“ Við tók ströng endurhæfing og þurfti Þorvaldur að draga sig í hlé frá störfum, bæði sem listamaður og sem formaður Bandalags íslenskra listamanna. Hann er nú allur að koma saman og vill byrja að vinna aftur sem fyrst. „Mér er sagt að ég megi byrja aftur í nóv- ember. Núna er ég að setja mig inn í þetta aftur en um leið gæta þess að halda mig á mottunni,“ segir hann. Þorvaldur er með í smíðum handrit að leikriti fyrir Leikfélag Akureyrar og Nemendaleikhúsið, sem heitir Lífið - notkunarreglur og verður frumsýnt í vor. „Þetta verk er gamall draumur, eins konar framhald af And Björk of course; að minnsta hin hliðin á þeim pen- ingi. Þá var hugsunin sú að strjúka köttinn andhæris, ef svo má að orði komast, en núna hef ég hugsað mér að strjúka honum í rétta átt. Ég vona að hann eigi eftir að mala,“ segir Þorvaldur og hlær. Þá vinnur kvikmyndagerðar- maðurinn Ólafur Jóhannesson að kvikmyndahandriti upp úr bókinni Við fótskör meistarans eftir Þor- vald. „Ég þykist vera að hjálpa honum með þetta en hann er búinn að móta handritið eftir sínu höfði og mér líst vel á það. Mér er ekki vel við að hver sem er vinni eitthvað úr verkum mínum, en ég hef unnið með Ólafi áður, átt við hann gott samstarf og treysti honum vel.“ Rétt eins og skriftirnar þurfti myndlistin að sitja á hakanum á meðan á endurhæfingu stóð en Þor- valdur vonar að það standi til bóta. „Ég er að minnsta kosti búinn að leigja vinnustofu hjá SÍM og get því vonandi farið að taka upp úr þeim kössum innan tíðar.“ bergsteinn@frettabladid.is ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON: NÆR SÉR Á STRIK EFTIR ERFIÐ VEIKINDI Leikrit og mynd í smíðum ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON Er allur að koma saman eftir að hafa fengið heilablóðfall og gengist undir skurðaðgerð á hjarta í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HRÓSIÐ … 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 FRÉTTIR AF FÓLKI ...fá Hrönn Marinósdóttir og Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík fyrir að bjóða Íslendingum upp á kvikmyndir sem að öllu jöfnu myndu ekki rata í kvikmyndahús borgar- innar. LÁRÉTT 2 plat 6 hljóm 8 skordýr 9 kann 11 verkfæri 12 ás 14 flækja 16 tímaeining 17 æðri vera 18 flan 20 tveir eins 21 lítill. LÓÐRÉTT 1 vörumerki 3 frá 4 félaus 5 bæli 7 jafnframt 10 að 13 nægilega 15 sjá eftir 16 tímabils 19 dreifa. LAUSN „Ég þurfti að berjast við skrifræð- ið í heilt ár áður en ég fékk þetta samþykkt,“ segir hinn 21 árs gamli Benjamín Náttmörður Árnason, sem fékk hinu sérstaka millinafni bætt við nafn sitt í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í gær. Náttmörður er í hljómsveitinni Man Behind the Wheel og segir mikilvægt að hafa grípandi nafn í rokkbransanum. Tilurð nafnsins má einmitt rekja til tónleikaferða- lags hljómsveitarinnar í Banda- ríkjunum í fyrra. „Við vorum að túra þar og eins og gerist þegar maður dvelur fjarri heimahögun- um er auðvelt að ruglast í ríminu. Einu sinni vaknaði ég af slæmum svefni og ruglaði saman orðinu martröð og enska orðinu nightmare og sagði stundarhátt: Strákar, ég fékk hrikalegan nátt- mörð.“ Eftir það var Benjamín ekki kallaður annað en Náttmörður. „Þetta er líka flott nafn og fellur vel að íslenskunni, þannig að ég dreif mig upp í ráðuneyti og sótti um að fá því bætt við nafnið mitt.“ Þá tók við það sem Náttmörður kallar „búrókratískt stríð“ við dómsmálaráðuneytið, sem lauk á miðvikudag þegar hann fékk bréf frá ráðuneytinu þess efnis að nafn- ið hefði verið samþykkt. Nátt- mörður mætti í dómsmálaráðu- neytið í gær, ásamt fríðu föruneyti, og skrifaði undir gjörninginn. Eftir á var skálað í kampavíni enda heimsfrægð í seilingarfjarlægð. „Með svona flott nafn verður ekk- ert mál að sigra heiminn.“ - bs Tók upp millinafnið Náttmörður BENJAMÍN NÁTTVÖRÐUR ÁRNASON Skálaði í kampavíni ásamt vinum sínum eftir nafnabreytinguna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Auðmýkt háðfuglsins fyrrverandi, Jóns Gnarr, virðist jafn mikil og sérhlífni hans er lítil. Í Bakþönkum sínum í Fréttablaðinu í gær fjallar Jón um íslenskar kvikmyndir, sem honum þykir ekki mikið til koma á heildina litið. Hann hrósar þó myndinni Börn í bak og fyrir og telur hana marka spor í íslenskri kvikmyndagerð. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ engan bjánahroll á íslenskri bíómynd,“ segir Jón meðal annars í grein sinni. Þessi fullyrðing er athyglisverð í ljósi þess að sjálfur hefur Jón leikið í að minnsta kosti tveimur íslenskum myndum, Íslenska drauminum og Manni eins og mér, en almennt var gerður góður rómur að þeim báðum á sínum tíma. Björgvin Halldórsson hefur mikinn húmor fyrir sjálfum sér eins og sjá má á forsíðu Sirkus sem fylgdi Fréttablaðinu í morgun. Þar stendur Björgvin með skilti sem á stendur „go“ en söngvarinn er þekktur fyrir frasann. „Það er ekkert gó fyrr en bó segir gó“. Reyndar var hugmyndin sú að Björgvin yrði jafnframt í bol á forsíðunni sem ritstjóri blaðsins, Breki Logason, hafði útbúið og á stóð „Ég er bolur“. Þegar að myndatök- unni kom sagði Björg- vin hins vegar nei en hirti bolinn úr höndum ljósmyndarans. „Ég er hins vegar að fara í sjónvarpið og ætla að vera í honum þá.“ Matarsérfræðingurinn Nanna Rögnvaldardóttir hefur kvatt Gestgjafann eftir farsælt starf um árabil. Ekki er vitað með vissu hvað Nanna ætlar að taka sér fyrir hendur nú þegar þessu Fróða-samstarfi er lokið en á heimasíðu sinni greinir matar- gúrúið frá því að hún ætli að bregða sér í sumarfrí til Andalúsíu- héraðs. „Til að safna kröftum fyrir þýðing- ar og fleira.“ - bs/fgg Endurkoma Sykurmolanna hefur vakið mikla athygli en eins og Fréttablaði greindi frá í gær hefur fjöldi erlendra fjölmiðla verið með fréttir af tónleikunum á vefsíðum sínum. Einar Örn Benediktsson, söngvari sveitarinnar, var upp með sér yfir þessum mikla áhuga en við- urkenndi að þetta kæmi sér spánskt fyrir sjónir. „Við erum að gera þetta hérna á Íslandi vegna þess að við erum íslensk,“ segir hann en benti hins vegar á að Flugleiðir væru að bjóða ferðir á atburðinn og því hefði verið viðbúið að eitthvað af útlend- ingum myndi koma hingað til að sjá hljómsveitina á sviði. „Síðast þegar Björk spilaði hérna heima kom lítill hópur frá Japan.“ Einar verður hins vegar hálf undrandi þegar blaðamaður upplýs- ir að veftímarit í Norður-Kóreu hafi fjallað um endurkomuna. „Ef þeir í Norður-Kóreu hafa áhuga á sam- starfi verðum við auðvitað að skoða allar hliðar málsins,“ segir Einar Örn og bætir við að ekki hafi verið tekin nein ákvörðun um hvað Sykurmolarnir ætli sér að gera fyrir erlenda fjöl- miðla. „Hið undarlega í mál- inu er að við erum bara með þessa einu tónleika og erum ekkert að kynna eitthvað verkefni eins og svo oft þegar fólk er að gera svona.“ Athygli hefur vakið að allur ágóði af tónleikunum rennur til útgáfufyrirtækisins Smekkleysu og hefur því verið fleygt fram að fyrir- tækið sé á vonarvöl. Einar Örn vísar því algjörlega á bug en segir að það glími við lítinn markað rétt eins og önnur útgáfufyrirtæki. „Friðrik Erlingsson teiknaði póstkort vegna leiðtoga- fundar Reagans og Gor- batsjovs og var ágóðinn af því notaður til að gefa út Birthday. Þegar Sykurmolarn- ir og smáskífan fóru að selja voru þeir peningar not- aðir til að gefa út aðrar hljómsveitir á borð við Risa- eðluna og Ham,“ útskýr- ir Einar og segir að hluti af gróða tón- leikanna verði notað- ur til að hnýta nokkra lausa enda en síðan verði fjár- magnið notað til að skapa hresst umhverfi fyrir útgáfu. - fgg Sykurmolar undrandi á erlendum áhuga EINAR ÖRN BENEDIKTSSON Undr- andi á áhuga erlendra fjölmiðla og ekki síst á áhuga fjölmiðla frá Norður-Kóreu. BJÖRK Það er ekki síst nærvera Bjarkar sem hefur vakið áhuga erlendra fjölmiðla en Sykurmolarnir lögðu grunninn að velgengni sólóferils hennar. LÁRÉTT: 2 gabb, 6 óm, 8 fló, 9 get, 11 al, 12 óðinn, 14 flóki, 16 ár, 17 guð, 18 ras, 20 rr, 21 smár. LÓÐRÉTT: 1 lógó, 3 af, 4 blankur, 5 ból, 7 meðfram, 10 til, 13 nóg, 15 iðra, 16 árs, 19 sá. ���� ����������� ��������� ������� ����� �������������� ����� ����������������� ���� ���������� ������� ������������� ��� ���������� ��� ��������� ���� ����������� ��������� ������ � ��� �������������� ����� ���� ��� ��� � � �� ���������� ������� ������������� ��� ���������� ��� ��������� ���� ����������� ��������� ������� ����� � � ����� ����� ��� ���� ��� � �� ���������� ������� ���� ���� � ��� �� � ��� � ��� � �� ���� � �� � �� ��� �� � � � � ��� �� ����������������� ���� � � � � ��� � � � �� �� � � ��� ��������� �� �� � � ��������� ������� ����� �������������� ����� ����������������� ���� ���������� ������� ������������� ��� ���������� ��� ���������

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.