Fréttablaðið - 27.10.2006, Page 32
[ ]
Kókoshnetan er nokkuð klunna-
leg í útliti en þrátt fyrir
þumbaralegt ytra byrði er
kókoshnetan í raun fræ úr
aldini kókospálmans.
Kókoshnetan er sæt
á bragðið, þó ekki yfir-
þyrmandi, ásamt því að
hún er fersk og góð. Lögun
hnetunnar býður einnig
upp á marga möguleika í
matseldinni. Sé kókoshnet-
an meðhöndluð óþroskuð má auð-
veldlega skera ofan af henni og
borða upp úr henni með skeið.
Hins vegar fást aðeins mjög þrosk-
aðar kókoshnetur hér á landi og þá
er skelin æði hörð.
Við val á kókoshnetu er best að
hrista hana til að kanna gæði henn-
ar. Gutli í hnetunni er hún lagi,
gutli ekki þá hefur safinn væntan-
lega þornað upp. Nokkra lagni þarf
svo við að komast í gúmmulaðið
inni í hnetunni. Fyrsta skrefið er
að stinga í augu hnetunnar, sem
eru á enda hennar, með oddhvössu
áhaldi svo safinn leki úr. Svo er
farið í verkfærakassann og náð í
hamar sem hjálpar til við að opna
hnetuna. Kjötið er skorið innan úr
en munið að taka ysta lagið, sem er
brúnleitt, frá.
Þá er að hefjast handa við mat-
seldina. Kókoskjötið er ákaflega
gott í ávaxtasalat, með ís eða
öðrum eftirréttum og safann má
nýta í margt til að bragðbæta.
Skemmtilegt er að bera fram
ávaxtasalat í sjálfri skelinni sé
hún nokkuð heil eftir aflmikið
högg hamarsins. Hér fylgja svo
nokkrar uppskriftir að skemmti-
legum kókosrétt-
um. Ekki láta hart
yfirborð kókoshnet-
unnar hræða ykkur
frá, munið, hún er eftir
allt bara lítið fræ.
johannas@frettabladid.is
KÓKOSSÓSA
3 dl niðursoðin kókosmjólk
1 msk hveiti
2 msk sykur
1/2 tsk kanill
Kanil, hveiti og sykri er blandað saman
í pott og hrært vel í. Kókos-
mjólkinni er smám saman
bætt í innihaldið í pottinum,
hitið pottinn og hrærið í á meðan. Látið
blönduna þykkna við meðalhita. Þegar sósan
er orðin þykk er hún látin sjóða í um það bil
þrjár mínútur. Kókossósan hentar vel bæði
með ávöxtum, fiski eða í raun hverju sem er.
Lykilatriðið er að smakka sig áfram.
KARABÍSKUR VILLIHRÍS-
GRJÓNARÉTTUR
FYRIR FJÓRA
1 bolli villihrísgjrón
1 saxaður laukur millistór
2 stórir tómatar
2 stórar rauðar paprikur
2 stórar gular paprikur
1 1/2 bolli ferskt kókoskjöt
rifið
2/3 bolli kókosrjómi
2 tsk chili-duft
1 til 4 pressuð hvít-
lauksrif
2 tsk koríander
1 tsk möluð brún sinnepsfræ
1-2 tsk rifinn lime-börkur
safi úr einu lime
Tamarí eða salt eftir smekk
Leggið hrísgrjónin í bleyti í 36 til
48 tíma. Skiptið um vatn tvisvar
sinnum, látið spíra í tvo til sex
daga. Skolið tvisvar á dag. Þegar
hrísgrjónin eru tilbúin, skerið
laukinn, tómatana, rauðu og gulu
paprikurnar og rífið kókósinn, blandið
saman í stóra skál og bætið hrísgrjón-
unum út í. Í aðra skál er blandað saman
kókosrjóma, límónusafa og berki, pressuðum
hvítlauk, kryddi og salti. Hellið yfir hrísgrjónin
og grænmetið og blandið vel.
KÓKOSFISKISÚPA
FYRIR EINN
1 dós kókosmjólk
um það bil einn sentimetri engiferrót
1 lítill rauður chili
1/4 dós sítrónugras
1 til 2 hvítlauksrif
1 msk fiskisósa eða slatti af góðu
sjávarsalti
smá rauð paprika
rækjur
fiskur í litlum bitum
Skerið engifer, chili og hvítlauk eins smátt og
hægt er. Setjið í pott ásamt sítrónugrasi. Hrærið
stöðugt svo ekki brenni við. Leyfið innihaldinu
að mýkjast lítillega. Kókosmjólk og
salti bætt við og hitað að suðu.
Ekki láta sjóða. Geymið í
minnst klukkutíma og allt
að hálfan dag. Bætið þá
smátt skorinni papriku
og fiski út í. Hitið að
suðu og haldið súpunni
í þeim hita í um það
bil tíu mínútur á
meðan fiskurinn
eldast. Bætið
rækjunum út
í um það bil
þremur mínútum
áður en áður en fisk-
urinn er tilbúinn. Gott er að bæta hrísgrjónum
við súpuna þegar hún er komin á diskinn. Öflug
súpa sem sögð er allra meina bót.
GRILLAÐUR MANGÓ MEÐ KÓKOS,
KÓRÍANDER OG KARRÍI
FYRIR FJÓRA
4 msk appelsínumarmelaði
4 msk hlynsíróp
1¼ msk kókosmjöl
1¼ msk brætt smjör
1 msk kóríanderfræ
1 tsk karrí
2 stk mangóávextir, afhýddir, skornir í
tvennt og kjarnhreinsaðir
4 arkir af álpappír, um það bil 60
sentimetrar að lengd.
Brjótið álpappírsarkirnar saman um miðju.
Leggið hálfan mangóávöxt á hverja tvöfalda
álpappírsörk. Blandið afganginum, sem á að
fara í uppskriftina, saman og skiptið blönd-
unni yfir ávextina. Brjótið álpappírinn yfir og
lokið samskeytunum vel með því að brjóta
þrisvar til fjórum sinnum upp á kantana.
Grillið bögglana í um það bil þrjár mínútur
án þess að snúa þeim við. Berið fram með
sýrðum rjóma, þeyttum rjóma eða ís. Í stað
kókosmjöls má einnig nota ferskt kókoskjöt.
Einhvern tíma einhvers staðar tók
einhver upp á því að brjóta kókos-
hnetu í tvennt. Hver sem það nú var
á hrós skilið fyrir að uppgötva þenn-
an ávöxt enda hafa bragðlaukar
víða um heim hoppað af kæti
síðan þá.
Skeljarnar af hnetunni geta einnig nýst sem matarskálar. Skreytið disk með kók-
ospálma, setjið fisk með kókossósu þar ofan í og berið fram. Já, eða bara sjálfa
hnetuna með kókoskjötinu í eftirrétt. Algjör snilld.
Rófur eru bráðhollar og góðar á bragðið. Þær henta vel í snakk á
milli mála og þar sem þær teljast til rótargrænmetis eru þær einnig
góðar fyrir meltinguna.
Fagmenn í fóðurleit
ÚT AÐ BORÐA MEÐ LIONEL
Kaffisetrið
LAUGAVEGI 103
BORÐAÐ: Steiktar eggjanúðlur með
kjúkling og steikt hrísgrjón í chilisósu
með kjúkling.
GÆÐI FÆÐIS: Gríðarleg gæði, mikið
og gott bragð, enginn fituviðbjóður.
Báðir réttirnir vel útilátnir og girnilegir.
Það er deginum ljósara að í eldhúskróknum er að verki
reynslumikið fólk sem hefur tileinkað sér mörg þúsund
ára matarhefðir forfeðra sinna og náði svo sannarlega að
fullnægja þörmum okkar.
VERÐ: 1000 karl á mann. Vel sloppið.
STEMNING: Virkilega góð. Austurlandabúar og Íslending-
ar með gjaldþrotagreiðslu skapa framandi og afslappaða
stemningu. Lágstemmd lýsingin inni á staðnum þvingar
mann í rómantískt leiðsluástand sem
getur fengið ófaglærða menn til að
fella tár. Staðurinn leynir svo sannar-
lega á sér. Í gegnum tíðina hafa staðir
í námunda við Hlemm haft það orð
á sér að vera hálfgerð skítapleis en
Kaffisetrið nær að rísa úr soranum
sem fyrirrennarar þess og nágrannar
sköpuðu. Við leggjum því til að nafn-
inu verði breytt í Óðalssetrið.
ÞJÓNUSTA: Elskuleg þjónusta en þó ekki um of. Okkur
fannst við vera velkomnir.
DOLLAN: Gæði dollunnar voru ekki könnuð til hins
ítrasta í þessari heimsókn en þó fá niðurgangslitaðir
veggirnir mann vissulega til að hugsa sig um þrisvar áður
en pantaður er karríréttur.
Fagmenn þakka fóðrið.
KENNARAEINKUNN: 25 FISKAR.
Góð stemning og gríðarleg gæði fæðis á
Kaffisetrinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hvítur og sætur kókos
Við Fjöruborðið
Eyrarbraut 3 • 825 Stokkseyri • S. 483 1550
www.fjorubordid.is • ifno@fjorubordid.is
������������
�����������������
����� ����������������������� ������� �
������������������������������ ������� �
����������� ��
���������
������������������������������
Jói
Fel
F
A
B
R
IK
A
N
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is
Merrild 103
Me›alrista› gæ›akaffi
Fæst nú í heilbaunum!
Hefur flú prófa›?E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
3
4
6
2