Fréttablaðið - 27.10.2006, Side 46
Þú dýfir þér í Vesturbæjarlaugina og opnar dyr í nýjan
heim. Gamaldags laugin er vin í eyðimörk borgarinnar.
Það eru engin rauð ljós í Vesturbæjarlauginni, engir
öskrandi símar eða gargandi sjónvarpsskjáir. Heldur
vinaleg stemning, ró og næði.
Góður vinur minn sagði eitt sinn: Í sundi kemstu næst
þeirri tilfinningu að svamla í móðurkviði. Einhverjar
stöðvar í undirmeðvitundinni virkjast og vellíðunartilfinn-
ing kviknar um leið og þú finnur heitt vatnið umlykja þig.
Tásublásari í inniklefa
Hvað sundfíkla varðar uppfyllir Vesturbæjarlaugin flest öll
skilyrði góðrar sundlaugar. Henni er vel við haldið,
hún er þrifaleg og skemmtilega hönnuð. Starfsfólkið
heilsar þér með brosi á vör og býður þig velkominn. Þú
ert meira að segja varaður við ef þú færð lykil að skáp
númer 13.
Okkur karlmönnum bjóðast þrír valkostir í Vesturbæj-
arlauginni. Inniklefinn er ágætur, sturturnar kraftmiklar og
gott pláss til að þurrka sig. Skemmtileg „rúsína í
pylsuendanum“ er hárblásari eða réttara sagt – tásublás-
ari – sem komið hefur verið upp við gólfið hjá skápunum.
Það er frábær tilfinning að smella sér í sokkana með
skraufþurrar tær.
Kynlegur baðklefi
Fyrir þá sem kunna betur að meta heiðskíran himininn og
hvíld frá öskrandi krakkaskara er sem betur fer útiklefi í
Vesturbæjarlauginni. Þar eru yfirleitt fáir á ferli og tilvalið
að gera æfingar á rimlum eða gólfinu til að koma blóðinu
á hreyfingu.
Stór galli á útiklefanum er þó sturtuleysið. Það er
undarleg tilhögun að þurfa að hlaupa yfir laugarbakkann
og aftur inn til að komast í sturtu og sápu.
Þriðji valkosturinn er svo baðklefinn þar sem hægt er
að skella sér í þurrgufu. Baðklefinn var afar vinsæll meðal
samkynhneigðra gesta og kunna margir „kynlegar“ sögur
af því sem þar fór fram. Ég mæli þó eindregið með
útiklefanum enda órjúfanlegur þáttur af sundreynslunni
að láta líkamann þorna undir berum himni.
Egyptar bannaðir!
En aftur að lauginni. Yfirleitt er nóg pláss á sundbrautun-
um en ef í hart fer er ein braut sérstaklega merkt fyrir þá
sem vilja synda rösklega. Barnalaugin er svo rúmgóð og
vel afmörkuð. Auk þess
er nóg pláss til að liggja
í sólbaði þegar vel
viðrar.
Eitt af því sem
skapar gæði í sundlaug
eru heitu pottarnir. Þar
er hreinlega skorið úr
um hvort laugin sé góð
eða slæm. Í Vesturbæj-
arlauginni eru pottarnir
fjórir, afar þægilegir en
því miður frekar litlir og
stundum er erfitt að
finna sér pláss.
Miðjupotturinn er
sérstaklega vinsæll
enda 39-41 gráðu
heitur sem er vinsælasta
hitastigið í pottum
landsins. Þar er einnig nuddtæki sem fólk bíður í röðum
eftir að nota. Ein skondin saga sem gaman er að rifja upp
er frá síðasta sumri. Ég sat í pottinum ásamt pari frá
Þýskalandi. Stúlkan starði á skilti fyrir ofan nuddtækið. Á
skiltinu er rautt strik dregið yfir mynd af síðhærðum manni
teiknuðum frá hlið. Eftir stutta þögn spurði stúlkan
manninn hvað hann héldi að þetta skilti táknaði.
„Það er augljóst,“ svaraði maðurinn. „Egyptar
bannaðir!“
Mafíósar í eimbaði
Þegar skrifað er um Vesturbæjarlaugina er ekki hægt að
sleppa að minnast á eimbaðið, tromp Vesturbæjarlaugar,
sem sumir segja einna líkast sviðsmynd í Sopranos-þætti
... Í flestum laugum eru litlir vatnsgufuklefar úr plasti þar
sem maður nánast þjáist af innilokunarkennd. Ekki í
Vesturbæjarlauginni. Klefinn er bæði stór og á sólardög-
um lýsa geislarnir upp vatnsúðann svo að litlir regnbogar
myndast inni í gufunni.
Það verður því enginn svikinn af heimsókn í þessa
frábæru sundlaug sem er svo sannarlega falinn gimsteinn
í Vesturbæ Reykjavíkur.
SÍMON BIRGISSON GAGNRÝNIR SUNDLAUGAR
Vesturbæjarlaugin:
Vin í eyðimörkinni
BÚINN AÐ SYNDA Gott pláss er á sundbrautunum í Vesturbæjarlauginni.
Í HEITA POTTINUM Tilfinningin líkust því að vera í móðurkviði.
Í STURTU EFTIR EIMBAÐIÐ Tromp Vesturbæjarlaugarinnar eins
og sviðsmynd í Sopranos-þætti.
UNDIR BERUM HIMNI Gott að gera æfingar í útiklefanum.
„Það er frá-
bær tilfinn-
ing að smella
sér í sokkana
með skrauf-
þurrar tær.“
EGYPTAR BANNAÐIR! Skiltið
sem útlendingarnir misskildu svo
hrapalega
www.bluelagoon.is
Líf
6