Fréttablaðið - 27.10.2006, Qupperneq 83
FÖSTUDAGUR 27. október 2006
Michael J. Fox varpaði
sprengju inn í bandarískt
þjóðfélag fyrir skömmu
þegar hann birtist í auglýs-
ingu til styrktar stofnfrumu-
rannsóknum, sem eru afar
eldfimt mál þar vestra.
Fox þjáist af Parkinson-sjúk-
dómnum og sést í auglýsingunni
skjálfa mikið af völdum sjúk-
dómsins auk þess sem hann á erf-
itt með mál. Auglýsingin er gerð
fyrir Demókrataflokk-
inn, sem berst fyrir að
frumvarp um að leyfa
rannsóknir á fóstur-
vísum og stofnfrum-
um þeirra verði
samþykkt en
vísindamenn
vonast til að
með slíku
leyfi gæti
verið hægt
að vinna á
sjúkdóm-
um eins og
Parkinsons.
Málið hefur
vakið mikla
athygli í Banda-
ríkjunum enda
er forsetinn
George W. Bush
algjörlega and-
snúinn þessum
rannsóknum en
hart er sótt að
Repúblikana-
flokknum um
þessar mundir og
benda spár til þess
að hann missi
meirihluta sinn á
þinginu. Bush neit-
aði í júlí að sam-
þykkja lög sem
hefðu leyft fjáröfl-
un fyrir rannsóknir
á stofnfrumum.
„Þetta brýtur gegn siðferðismörk-
um samfélags okkar og því ætla ég
ekki að samþykkja frumvarpið,“
sagði Bush á sínum tíma. Kaþólska
kirkjan hefur enn fremur mót-
mælt stofnfrumurannsóknum og
segir þær einfaldlega undanfara
þess að hefja klónun á mönnum.
Nærvera Fox hefur reitt íhalds-
sama áhrifamenn í bandarísku
þjóðfélagi til reiði og sagði hinn
þekkti álitsgjafi Rush Limbaugh
að annað hvort væri Michael J.
Fox hættur á lyfjunum sínum eða
færi það svona vel úr hendi að
leika mann með Parkinson. Larry
Sabato, prófessor í stjórnmála-
fræði við háskólann í Virginiu,
taldi hins vegar að ef einhver aug-
lýsing hefði áhrif væri það þessi.
„Þetta er raunverulegt. Fox er
ekki að leika mann með Parkin-
sons heldur er með Parkin-
sons.“
Michael J. Fox, sem sló í
gegn sem Marty McFly í
kvikmyndunum Aftur til
framtíðar, segir í aug-
lýsingunni að frum-
varp á borð við
þetta hafi
áhrif á millj-
ónir Banda-
ríkjamanna.
„Bandaríkja-
manna eins og mín,“
segir leikarinn á áhrifaríkan
hátt. Fox greindist með sjúk-
dóminn fyrir fimmtán árum en
sagði opinberlega frá honum sjö
árum seinna. Leikaraferli hans
lauk árið 2000 og stofnaði Michael
í kjölfarið Michael J. Fox-stofn-
unina sem leitast við að finna
lækningu við sjúkdómnum.
freyrgigja@frettabladid.is
Fox varpar sprengju
Á KYNNINGARFUNDI Nærvera Michael J. Fox í auglýsingu sem mælir með stofn-
frumurannsóknum hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Á MÓTI George W. Bush neitaði að
samþykkja lög sem hefðu gefið leyfi til
að safna peningum fyrir stofnfrumu-
rannsóknir.
Faðir malavíska drengsins Peter
Banda sem Madonna vill ættleiða
hefur hvatt mannréttindasamtök
sem vilja koma í veg fyrir ættleið-
inguna að hætta því hið snarasta.
Vill hann að drengurinn sé látinn í
friði og fái að njóta sín hjá hinni
nýju móður sinni.
Madonna sagðist í viðtali við
Oprah Winfrey vera vonsvikin
yfir viðbrögðum fjölmiðla við ætt-
leiðingunni. „Með því að fjalla
svona neikvætt um málið eru fjöl-
miðlar gera munaðarlausu börn-
unum í Afríku mikinn grikk,“
sagði hún.
Drengurinn fái frið
MEÐ BÖRNUNUM Madonna með Banda
og hinum börnunum sínum tveimur,
Lourdes og Rocco. FRÉTTABLAÐIÐ/AP