Tíminn - 11.02.1979, Blaðsíða 10

Tíminn - 11.02.1979, Blaðsíða 10
10 Sunnudagur 11. febrúar 1979 „Þaö er mjög mikið hægt að gera fyrir ofnæmis- segir Davíð Gíslason læknir í þessu viðtali hún haldi áfram að versna, ef ekkert er að gert? — Jú, hún gerir það. Að vfsu eru til lyf, sem halda sjúkdómn- um niðri en annars er ekki nema eitt öruggt ráð til og það er að hætta að umgangast hey. Okkur hefur virst, aö bændur sem þjást af heymæði fái lungna- þembu með árunum og það ger- ir málið vitanlega enn erfiðara viöfangs. — Er hey ekki misjafnt, eftir þvi hvernig það er verkað? — Jú, allar likur benda til þess að heyverkunin sé þýöingar- mikið atriði. Það er t.d. mjög liklegt, að þar sem mikið er um súrhey sé heymæöi sjaldgæfari en þar sem heyið er eingöngu verkað sem þurrhey. Eins er liklegt, að súgþurrkun hafi einnig nokkur áhrif i sömu átt. Hvort tveggja ætti að stuðla að þvi að minna veröi af ryki og myglu i heyinu. — Ég spurði áðan/hvort hey- mæði stafaði af ofnæmi. Er eitt- hvað meira að segja, en þegar er komið fram, um orsakir þessa sjúkleika? — Orsök til heymæði er of- næmi fyrir sérstakri tegund myglu, sem virðist fyrst og fremst þrifast i heyi. Ástæða til bjartsýni — Við höfum rætt hér um sjúkdóma sem tengdir eru tveim flokkum ofnæmis.annars vegar ofnæmi I húð og slimhúð, en hins vegar heymæði. Hvað er að segja um útbreiðslu eöa tiðni þessara sjúkdóma — eða þess- ara flokka ofnæmis? — Ef við tökum fyrri flokkinn, þá eru tölur býsna breytilegar eftir löndum og eftir þvi hvernig tiðnin hefur veriö rannsökuð. En það má alveg gera ráð fyrir þvi að u.þ.b. tiu af hundraöi allra manna fái alvarieg ein- kenni ofnæmis einhvern tima á ævinni. Hér á landi er sáralitið vitað um útbreiðslu einstakra ofnæmissjúkdóma en þess má geta, aö nú stendur yfir rann- sókn, sem m.a. miðar að þvi að finna tiöni ofnæmissjúkdóma á Islandi. Það er svokölluö rann- sóknarnefnd læknanema, sem hefur unnið að þessu núna i þrjú ár, og mun halda þvi áfram enn um sinn. Tiðni astma hefur verið áætluð 2-5% I nágrannalöndum okkar, en þó nokkru hærri hjá börnum. Það er athyglisvert, aö tölur um astmaveik börn fara alltaf hækkandi. Þær eru veru- lega hærri nú en fyrir tiu til tuttugu árum. Frjókornaof- næmi er algengasti ofnæmis- sjúkdómurinn erlendis, og lik- lega einnig hér á Islandi, þótt Framhaíd á bls. 31 sjúklinga Ekki er óalgengt, að menn taki svo til orða að þeir „hafi ofnæmi fyrir" þessum eða hinum. Venjulega táknar þetta, að sá er svo mælir telji sig ekki geta þolað ein- hverja tiltekna persónu í nærveru sinni. „Ég hef ofnæmi fyrir honum" táknar þá: „hann fer í taugarnar á mér", eða hreint og beint: „ég þoli hann ekki nálægt mér". Ofnæmi gegn gróðri er algengast En flestir vita, aö til er annars konar ofnæmi, og það er það sem um veröur rætt I þessu spjalli. Hingað er kominn Davlö Gislason læknir og hann er ein- mitt sérfræðingur á þvl sviði sem ætlunin er að ræöa um hér. Og þá er best að hefja sam- ræðuna meö þvi að spyrja þig, Davið: — Hvað er ofnæmi? — Það er erfitt aö svara þessu I stuttu máli þannig að lesendur verði einhverju nær. En til þess að hægt sé að tala um ofnæmi þarf likami hins veika að hafa myndað mótefni gegn ofnæmis- valdinum. Sem dæmi um þetta má nefna ofnæmi gegn gróöri sem er langalgengasta ofnæmiö hér á landi. Þá er ofnæmissjúk- lingurinn með mótefni af alveg sérstakri gerð gegn gróöri, sér- staklega grösum, en það eru einmitt þau sem oftast valda of- næmi hér á landi. En viöa I ná- grannalöndum okkar er einnig algengt að fólk fái ofnæmi fyrir öðrum gróöri, einkanlega lauf- trjám, eins og t.d. birki. Aftur á móti er slikt ofnæmi sjaldgæft á Islandi vegna þess hve tsland er tiltölulega skóglltið land. — En hvernig getur fólk vitaö hvort það hefur ofnæmi eða ekki? Hver eru einkenni þessa sjúkleika? — Ofnæmiseinkenni koma einkum frá hörundi og slímhúö. Þetta stafar af þvl að i húð og slimhúö er sérstaklega mikið af þeim efnum, sem valda of- næmiseinkennum. Ef við tökum slimhúöina fyrst, þá koma ein- kennin gjarna frá nefi,augum og lungum, en auk þess geta þau lika komið frá meltingarfærum. A sumrin fá menn oft sjúkdóm I nef, sem kaliaður er frjókorna- ofnæmi. Einkennin eru þau, aö menn fá þrálátt nefrennsli og þvi fylgir oft kláði I nefi, hnerraköst og jafnvel stiflað nef. 1 upphafi getur þetta ástand llkst kvefi en þegar um ofnæmi er aö ræöa koma venjulega fleiri einkenni i ljós.svo sem kláði og roöi i augum og rennsli úr augunum sem greinir of- næmiö frá kvefi eöa öðrum langvarandi bólgum i nefi. En ofnæmiseinkenni frá lung- um lýsa sérsem astmi. Hins ber þó að gæta að menn geta veriö meö astma án þess að hægt sé að sýna fram á ofnæmi. Þetta á einkum við um það fólk, sem veikist á fullorðins aldri. Það er meira að segja sjaldnast um of- næmi að ræöa hjá þvi en hjá börnum er algengt, aö ofnæmi sé ein af orsökum astma. Ef við höldum áfram aö tala um einkenni ofnæmis, má geta þess, að komi einkennin fram i húð, lýsa þau sér sem dálltiö upphleyptar roðaskellur og venjulega fylgir þeim kláði. Þetta er kallaður ofsakláði og ef bjúgur er llka mikill er hann kallaður ofsabjúgur. Ofnæmi fyrir gróöri í nýjum heimkynnum — Það er sjálfsagt fánýtt að spyrja hvernig hægt sé að foröast að fá ofnæmi? — Sjúklingarnir mynda auövitað ofnæmi vegna þess að þeir hafa veriö I námunda viö ofnæmisvaldinn i lengri eða skemmri tima. Það er t.d al- gengt að börn fái ofnæmi fyrir gæludýrum, sem eru á heimili þeirra og taliö er að þau þurfi að hafa verið samvistum við dýrið a.m.k. hálft ár, áður en ein- kennin fara aö koma I ljós. Sé ofnæmisvaidurinn aftur á móti á heimili leikfélagans, þar sem barniö er ekki aö staðaldri heldur kemur þar oft, kannski daglega þá tekur enn lengri tima að mynda ofnæmið. Menn eru miklu lengur að mynda ofnæmi fyrir gróðri vegna þess, að það er svo stutt- ur timi á ári hverju sem frjó- kornin eru á sveimi I loftinu. Þetta kemur einkar vel I ljós við Davlð Gisiason. — Timamynd Róbert. um heyið á meðan verið er að þurrka það og hirða að sumrinu, þá geta þeir sem eru með frjó- kornaofnæmi fengiö svæsin of- næmiseinkenni, jafnvel hvort sem um er að ræöa óslegið gras eða hey, sem verið er að þurrka. Hins vegar eru þeir sem fá of- næmiseinkenni á veturna. Þá er yfirleitt um heymæöi að ræða. í sjálfu sér er heymæði mun al- varlegri sjúkdómur en hið svo- kallaöa frjókornaofnæmi, vegna þess, að heymæðin veldur varanlegum lungnaskemmdum hjá mönnum, ef þeir halda áfram að vinna i heyi, jafnvel árum saman eftir aö einkennin fóru að koma I ljós. Heymæði viröist vera einn algengasti at- vinnusjúkdómur á íslandi og þvi er full ástæöa til þess að gefa henni verulegan gaum. — Hafa heygrimurnar ekki leyst einhvern vanda I sam- bandi við þennan sjúkdóm? — Þaö er alveg vist að bændur þekkja heygrlmurnar og hafa fullan hug á aö færa sér þær I nyt en gallinn er sá, að þær grímur sem verja menn best fyrir ryki eru erfiðar I notkun. Það er mikil mótstaða i þeim og þvi er erfitt aö vinna með þær og aö anda I gegnum þær. Menn svitna mikiö undan þessum grímum, — en, eins og ég sagði þá eru þaö einmmitt þessar grlmur sem gera mest gagn. — Er ekki heymæði eins og aðrir sjúkdómar að þvl leyti, að búferlaflutninga á milli landa. Fólk fer ekki að fá ofnæmi fyrir gróöri hinna nýju heimkynna, fyrr en eftir fimm ár eða svo. — Hver er algengasta tlma- lengdin, þangað til einkenni of- næmis fara að koma i ljós? — Um það er ekki hægt að segja, vegna þess að þetta er svo ákaflega breytilegt. Mjög oft koma einkennin fram á barnsaldri, hvort sem um er að ræöa ofnæmi fyrir dýrum, ofnæmi sem orsök til astma hjá fólki sem komið er um/eða yfir fimmtíu ára aldur. Heymæði virðist vera einn algengasti atvinnu- sjúkdómur á Islandi. — Þú nefndir gróður fyrr i þessu spjalli okkar. Og þá dett- — ræðir við Davíð Gíslason gróðri eða öörum ofnæmisvöld- um, eins og t.d. ryki og svoköll- uöum rykmaur, sem nýlega hefur verið uppgötvaður sem of- næmisvaldur og er ein aöal- uppistaöan i „ryk-ofnæmi”. A það má leggja áherslu aö þvl eldri sem menn verða þeim mun minni hætta er á þvl aö of- næmiseinkenni komi fram. Þetta hefur verið athugað I sambandi við astma og ofnæmi sem orsök hans og þaö er afar sjaldgæft að hægt sé aö benda á ur mér I hug sjúkdómur, sem hrjáir marga bændur. Það er heymæöin. Stafar hún af of- næmi? — Sú heymæði sem bændur fá er ofnæmissjúkdómur, en af annarri gerð en þaö ofnæmi sem viö vorum aö tala um áðan. Þó er rétt aö benda á, að hér er á ferðinni nokkur ruglingur með nöfnin á þessum sjúkdómum, þvi aö það sem ég kalla frjó- kornaofnæmi, kalla margir hey- mæði. — Ef við byrjum að tala Valgeir Sigurðsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.