Tíminn - 11.02.1979, Blaðsíða 11

Tíminn - 11.02.1979, Blaðsíða 11
Sunnudagur 11. febrúar 1979 L'-3llllÁATlil:1. ill'. 11 Samstæban meö Jóhannesi Páli I. Frímerkj asaf narinn Vatíkaniö Hinn 11. desember siðastliö- inn minntist Póstmálastofnun Vatikansins páfans er sat svo stutt i hásæti, að hann náði ekki að lesa innsetningarmessuna I Péturskirkjunni. Það var Jóhannes Páll I. sem þá var minnst með fjórum frimerkj- um. A 70 lira frimerki situr hann ihásæti páfa. Á 250 llra frimerki er hann á göngu i görðum Vati- kansins. A 350 lira frimerki er hann svo að blessa mannfjöld- ann á Péturstorginu. Auk verðsins sem er letrað á frimerkin og Poste Vaticane, stendur á þeim ”26 Agosto — 28 Settembre 1978”, en það var. timi sá er þessi páfi sat á stóli Péturs. Vatikaniðhefirnúsentfrá sér skrá yfir þau frimerki er það hyggst gefa út á árinu 1979: 1) Samstæöatilað minnastþess að hinn pólski páfi, Jóhannes Páll II. settist á stól Péturs. 2) Samstæða til að minnast jesúitans og stjörnufræðings- ins Fr. Angelo Secchi S.J., en 1978 voru liðin 100 ár frá andláti hans. Voru þessi merki áætluð til útgáfu á þvi ári, en urðu að vikja fyrir öðrum útgáfum. 3) Samstæða til aö minnast þess að sextán aldir eru liðnar frá dauða heilags Basils hins mikla. 4) Samstæða til að minnast þess að niu aldir eru liðnar frá dauða heilags Stanislaus. 5) Samstæða til að minnast þess, að 50 ár eru liðin frá þvi að Vatikaniö hlaut fullan rétt, sem sjálfstætt riki og viðurkenningu Italiustjórnar sem slikt, árið 1929. 6) Samstæða til að minnast barnaárs Sameinuðu Þjóð- anna. 7) Þá verðuroggefin út ný gerð flugbréfa á árinu. 8) Póstkortasamstæöa meö áprentuðum frimerkjum til að minnast 50 ara fullveldis- afmælis Vatikansins. wmmm ii. Til að gerast áskrifandi að frimerkjum Vatikansins verður að senda greiðslu I pósti, a.m.k. 10 dögum fyrir útgáfu merkja ásamt pöntun. Þeir sem gerast áskrifendur að 10 samstæðum eða minna, geta gerst áskrif- endur hjá Pósthúsinu á St. Péturstorgi og þá lagt )>ar fé á reikning, sem siðan er dregið af verð merkja þeirra er út koma ásamt sendingarkostnaði. Send- ing merkjanna er á áhættu kaupanda, nema hann greiöi ábyrgðargjald að auki. Þeir sem kaupa vilja meira en 10 samstæöur, verða að skrifa frimerkjasölu Vatikansins, eða „Ufficio Filatelico, Citta del Vaticano, Vaticano”. Margir hafa orðið tilað spyrja mig um hvernig ætti að komast i samband til kaupa á frimerkjum Vatikansins, en mér er ekki kunnugt um að þeir sendi út sérstök fréttabréf eins og flestar þjóðir. Þvl hefi ég orðið að afla mér upplýsinga um þetta með þvi að vera áskrif- andi að „L’osservatore Romano”, sem er hið opinbera málgagn Vatikansins. Sigurður H. Þorsteinsson. Electronic Chef fér sigurför um allt land KENWOOD ElectronicChef fæst á eftirtöldum stöóum: Rafha Austurveri Liverpool, Laugavegi 18 H.G. Guójónsson, Stigahlió 45 Örin, Akranesi Stjarnan, Borgarnesi Einar Stefánsson, Raftækjaverslun, Búóardal Kaupfélag Saurbæinga, skrióuiandi, Dai Póllinn hf., ísafirði Verslun Einars Guófinnssonar, Boiungarvík Rafbær sisigiufirói Verslun Valgeirs Jónssonar Patreksfirói Vesturljós, Patreksfirði Kaupfélag Húnvetninga, Biönduósi Hegri, Sauóárkróki Kaupfélag Eyfiróinga, Akureyri Askja hf., Húsavík Verslunin Mosfell, Heiiu Radío og sjónvarpsstofan, Seifossi Kaupfélag Árnesinga, Seifossi Rafbær Hveragerói Stafnes sf., Vestmannaeyjum Kjarni hf„ Vestmannaeyjum Stapafell hf., Keflavik Hér er einlítil systir... CHEFETTE ....og hér er önnur MINI HEKLA hf LAUGAVEG1170-172 -SÍMAR 21240-11687 Concorde hljóðhverf- an fær leyfi til innanlandsflugs í USA Umtalsverður sigur í baráttu Breta og Frakka við bandarísk flugmálayfirvöld Concorde-þotan/ sem flýgur hraðar en hljóðið/ hefur átt örðugt upp- dráttar í Bandaríkjunum. Nýlega vannst þó mikils- verður sigur á boðum og bönnum Bandaríkja- manna, þegar þotunni var heimilt að fljúga hvert sem er um Banda- rikin— undir hljóðhraða. Gert er ráð fyrir að Concorde muni mjög bráðlega hefja flug á leiðinni Washington/Dallas i Texas, en sem kunnugt er þá lenda Concorde-botur frá Air France og British Airways bæði i Washington og New Vork. Það mun verða bandariska flugfélagið Barniff, sem taka mun við Concorde fluginu innan Bandarikjanna. Sem stendur eru Concorde-- þoturnotaðar á Norður-Atlants- hafinu og einnig á flugleiðinni London-Paris, Rio og Dakar. A öllum þessum flugleiðum er umtalsverður timasparnaður fólginn iþvi að fljúga með hljóð- fráum þotum. Concorde-hljóðhverfan á flugi Einnig er flogið frá Evrópu til komast á markaðinn þótt seint Caracas og Mcxikó, þannig aö sé. Concorde-hijóðhverfan cr aö JG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.