Tíminn - 11.02.1979, Side 25
Sunnudagur XI. febrúar 1979
25
Halla. Fjalla-Eyvindar. Myndin máluö áriö 1905
Skólasýning
opnuð í
Ásgrímssalni
i dag veröur 15. skólasýning
Ásgrimssafns opnuö. Eins og
undanfarin ár er leitast viö aö
gerasýningu þessa sem fjölþætt-
asta og sýna hinar ýmsu hliöar i
listsköpun Ásgrims Jönssonar og
verkefnaval.
Sýndar eru i vinnustofu lista-
mannsins vatnslita- og ollumynd-
ir, einnig nokkrar þjóösagna-
teikningar. Viðfangsefni eru m.a.
landslag, blóm,hestar og eldgos.
í heimili Asgrims er sýning á
þjóðsagnamyndum frá ýmsum
timabilum, flestar málaðar með
vatnslitum, en safnið hefur gert
sér far um að kynna skólafólki
þessar merkilegu bókmenntir
okkar i' myndlist Asgrims Jóns-
sonar. Þær voru honum óþrjót-
andi viðfangsefhi allt hans ævi-
skeið. Ogsiðasta verkið sem hann
vann i fjórum dögum fyrir andlát
sitt, þá veikur á sjúkrahúsi, er
þjóðsagnateikning sem honum
tókst ekki að ljúka við. Hún er
ætið sýnd á öllum sýningum
safnsins.
Guðmundur Benediktsson
myndhöggvari aðstoðaði við val
mynda og sá um upphengingu
þeirra.
Þessar árlegu skólasýningar
Ásgrimssafns virðast njóta vax-
andi vinsælda. Ýmsir skólar gefa
nemendum sinum tómstund frá
námi til þess að skoða listaverka-
gjöf Ásgrims, hús hans og heimili
sem er nákvæmlega i sömu
skorðum og þegar Asgrimur
hvarf þaöan en heimili hans er
eina listamannaheimilið sem til
sýnis er i Reykjavik.
Skólayfirvöld borgarinnar hafa
stuðlað að heimsóknum nemenda
i söfn, enda virðist slik listkynn-
ing sjálfsagður þáttur i námi upp-
vaxandi kynslóðar.
Breyting hefur orðið á stjórn
Asgrimssafns. Hjörleifur
Sigurðsson listmálari sem verið
hefur i stjórn safnsins undanfarin
ár og tók við þvi starfi af Jóni
bróður Ásgrims er nú á förum til
útlanda um óákveðinn tíma. Við
starfi hans á meðan tekur Guð-
mundur Benediktsson mynd-
höggvari.
Þegar Asgrimur Jónsson kunn-
gerði erfðaskrá sina á sinni tið,
óskað hann þessaö i stjórn safns-
ins tæki sæti frænka hans Guð-
laug Jónsdóttir hjúkrunarkona.
En vegna heilsubrests lætur hún
af þvi starfi nú en við þvi tekur
Sigrún Guðmundsdóttir kennari.
Skólasýningin er öllum opin
sunnudag, þriðjudaga og fimmtu-
daga frá kl. 1,30-4. Sértima geta
skólar pantað hjá forstööukonu
Asgrimssafns i sima 14090 og
13644. Aðgangur ókeypis. Ás-
grimssafn, Bergstaðastræti 74.
Félag einstæðra foreldra
Býðst tíl að
reka Mæðra
heimilið
Stjórn Félags einstæöra
foreldra hefur nú boöist til aö
taka aösérrekstur Mæöraheimil-
isins við Sóleyjargötu. Var borg-
arráöi sent eftirfarandi bréf þar
aö lútandi:
Stjórn Félags einstæðra
foreldra harmar þau málalok, að
tillögu um breyttan rekstur
Mæðraheimilisins við Sólvalla-
götu, sem var samþykkt einróma
i Félagsmálaráði, skyldi hafnað i
Borgarráði.
Eins og flestum er kunnugt er
húsnæðisvandi og þau margþættu
vandamál, sem þeim fylgja oft
erfiðari einstæðum foreldrum og
börnum þeirra en flestum öðrum
þjóðfélagsþegnum.
Stjórn FEF hefur samþykkt að
bjóðast til þess að félagið taki að
sér rekstur Mæðraheimilisíns,
sem neyðar- og bráðabirgðahús-
næðis, til reynslu i eitt ár. óskar
stjórn FEF eftir þvi að viðræður
verði hiðfyrsta hafnar um málið
við fulltrúa borgarinnar, ef Borg-
arráð sér ástæðu til að sinna
þessu. Myndum við þá gera grein
fyrir hugmyndum okkar ef óskað
væri eftir.
Húsnæði FEF i Skeljanesi er
ekki tilbúið og vegna tafa sem
hafa orðið af ýmsum ófyrirsjáan-
legum ástæðum er sýnt, að
nokkrir mánuðir munu h'ða uns
verki þar lýkur. Við þurfum ugg-
laust ekki að lýsa þvi fyrir borg-
arráðsmönnum, hversu brýn mál
ýmissa skjólstæðinga okkar eru
og kalla á nauðsyn skjótrar úr-
lausnar ogá þaðekki hvaðsist við
um húsnæðismál. Þvi teljum við
að með þessu sé hægt að bæta lit-
illega úr þeim mikla vanda sem
fyrir er. Við leyfum okkur að
vænta jákvæöra undirtekta Borg-
arráðs.
Sýningarbíll
á staðnum
Til afgreiðslu strax á verði sem
flestir ráða við
TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ
Sterkasti fólksbíllinn á markaðinum
Hanrt er byggður á grind, með 65
hestafta tvigengisvél
(gamia Saab-vé/in)
Gormar á öllum hjólum og billinn þvl
dúnmjúkur.
Eiginleikar bilsins i lausamöl og á
holóttum vegi eru frábærir.
Sedan og Station, sem er mjög v
rúmgóður og bjartur.
Dragið ekki að panta bilinn.
Hafið samband við sölumenn okkar,
sem veita allar upplýsingar.
EFTIRSÓTTASTA BIFREÍÐIN AUSTAN TJALDS
Margra mánaða afgreiðsíufrestur tii fjöimargra ianda