Fréttablaðið - 16.11.2006, Side 1
Á tuskubrúðu sem
gleður á morgnana
Smáauglýsingasími550 5000
Auglý i
Andrea Róbertsdóttir á tuskubrúðu semkemur henni í gott skap á morgnana.„Þetta er svona gaur sem kemur manni allt-
af í gott skap,“ segir Andrea um Herra Bros,
tuskubrúðu sem hún keypti þegar hún var á
ferðalagi um Asíu.„Maður vaknar ekki alltaf í partístuði
þannig að Herra Bros minnir mig á að líta á
björtu hliðarnar. Að smæla framan í heim-
inn á morgnana getur gert gæfumuninn.
Vanalega er það kærastinn minn sem ég sé
við hliðina á mér á koddanum þegar ég
vakna og það gerir mig káta þ
fer inn á b ð
Andrea sem almennt trúir ekki á efnisleg
gæði og þar af leiðandi er það ekkert hús-
gagn sem gefur henni hamingju.Í upphafi þessa árs seldi hún nánast allar
sínar eigur og hélt í langferð um Asíu ein
síns liðs, en nýlega kom út bók á vegum JPV
sem fjallar um þessa ferð.„Það er eiginlega Fréttablaðinu að kenna
að ég gaf þessa bók út. Ég bloggaði á ferða-
laginu og hélt að ég væri bara að skrifa til
minna nánustu á veraldarvefnum. En blaða-
menn á Fréttablaðinu vitn ðþegar é
Sólstrandargæi snýr
aftur frá Danmörku
HEIMSFRUMSÝND
Á MORGUN!
FORSALAN Á NÝJU
JAMES BOND MYNDINA
ER HAFIN Á MIDI.IS/BIO
midi.is/bio
BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag
Opið til 21
í kvöld
Yngsta barnið sem
kom á Barna- og unglingageðdeild
(BUGL) á síðasta ári vegna mats á
sjálfsvígshættu var þá níu ára,
samkvæmt upplýsingum frá
BUGL. Yngsta barnið sem komið
hefur á þessu ári af sömu sökum
er tíu ára.
Samtals komu 138 ný bráðamál
til afgreiðslu á göngudeild BUGL
á síðasta ári. Þar áttu hlut að máli
78 stelpur og 60 strákar. Af þess-
um 138 málum voru 70 til 80 ein-
staklingar sem komu vegna mats
á sjálfsvígshættu.
Á þessu ári hafa þegar komið
128 ný bráðamál til afgreiðslu á
göngudeildinni. Um er að ræða 73
stelpur og 55 stráka, 60 til 70 þess-
ara barna og unglinga hafa komið
vegna mats á sjálfsvígshættu.
Taka ber fram að í þessum tölum
eru ekki börn sem þegar eru komin
í meðferð á göngudeild BUGL og
greinast í sjálfsvígshættu. Einnig
ber að taka fram að algengast er að
einstaklingar sem koma til mats á
sjálfsvígshættu séu á aldrinum
þrettán til sautján ára og mjög
sjaldgæft er að níu og tíu ára börn
komi á BUGL af þeirri ástæðu.
Að sögn Ólafs Guðmundssonar,
yfirlæknis á BUGL, eru helstu
ástæður þessa þunglyndi og kvíði í
tengslum við lífsviðburði, svo sem
höfnun, áföll, þar með talið kyn-
ferðislega misnotkun eða van-
rækslu.
„Vímuefni spila sjaldan inn í hjá
börnum og yngri unglingum en
vega þyngra hjá eldri unglingum,“
segir hann. „Einnig geta hvatvís
börn gripið til sjálfsskaðahegðunar
eða jafnvel sjálfsvígstilrauna,
stundum með alvarlegum afleið-
ingum.“
Spurður hvort börn niður í níu
til tíu ára hafi þurft á meðferð að
halda hjá BUGL vegna beinna hug-
leiðinga um sjálfsvíg segir Ólafur
svo vera. „En það er þá alltaf í
tengslum við undirliggjandi vanda
sem ég nefni hér að framan,“ bætir
hann við. Hann segir enn fremur að
unglingar sem hafi beinlínis reynt
að svipta sig lífi áður en þeir komu
á Barna- og unglingageðdeild hafi
oftast verið á aldrinum fjórtán til
sautján ára, en í einstaka tilfellum
yngri.
Börn allt niður í níu
ára í sjálfsvígshættu
Yngsta barnið sem kom á Barna- og unglingageðdeild á síðasta ári vegna mats
á sjálfsvígshættu var níu ára. Yngsta barnið sem komið hefur af sömu sökum á
þessu ári er tíu ára. Helstu ástæður slíkrar líðanar eru þunglyndi og kvíði.
Sá sérstaki atburður átti
sér stað í gær að barn kom í heim-
inn í bíl á Reykjanesbrautinni.
Foreldrar drengsins voru á leið-
inni á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja þar sem fæðingin átti að
eiga sér stað. Sveinn Speight, hinn
nýbakaði faðir, segir að Silvía
Ósk, kona hans, hafi misst vatnið
áður en þau lögðu af stað úr Hafn-
arfirði en þau ákváðu að freista
þess að komast til Keflavíkur.
„Það var ekki um annað að
ræða en að stöðva bílinn og taka á
móti barninu. Ég var í sambandi
við sjúkraflutningamenn sem
leiðbeindu mér í gegnum síma
meðan á fæðingunni stóð. Sjúkra-
bílarnir komu síðan skömmu eftir
að strákurinn fæddist og keyrðu
okkur á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja,“ segir Sveinn.
Fyrir eiga Sveinn og Silvía
fimm ára strák og átján mánaða
stelpu og heilsast móður og hinum
nýfædda syni vel. Drengurinn var
4.125 grömm og 53 sentímetrar á
lengd.
Litlum manni lá á í heiminn
Arnar Jensson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
embætti Ríkislögreglustjóra,
segir dómstóla hér á landi ekki í
stakk búna til þess að taka á
stórum og flóknum málum eins og
Baugsmálinu. „Mér finnst hafa
komið í ljós að dómstólar, líkt og
kerfið á öllum stigum, séu ekki
búnir til þess að taka á stórum
málum eins og Baugsmálinu. Það
vantar reynslu og þekkingu en
sem betur fer koma stór og flókin
mál sjaldan upp.“
Freyr Ófeigsson, varaformað-
ur dómstólaráðs og dómstjóri í
héraðsdómi Norðurlands eystra,
vísar alfarið á bug að íslenskir
dómstólar geti ekki tekið á stórum
málum. „Ég kannast ekki við að
það séu dómstólar sem ekki ráði
við Baugsmálið. Mér finnst það
ámælisvert að dómarar fái
aðdróttanir eins og þessar frá
lögreglu.“
Gagnrýnir
dómstólana
Knattspyrnusamband
Íslands (KSÍ) sagði í byrjun ársins
upp styrktarsamningi við Íslands-
póst sem var eini styrktaraðili A-
landsliðs kvenna. Styrkurinn var
um 2,5 milljónir króna á ári sem
er fjórðungur af kostnaði við
rekstur landsliðsins árið 2005.
Samkvæmt upplýsingum frá
Íslandspósti gaf KSÍ upp þá
ástæðu að sambandið væri að
breyta styrkjakerfi sínu þannig að
allir styrktaraðilar sambandsins
styrki alla starfsemi KSÍ.
Hafnaði fé til
kvennaliðsins