Fréttablaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 79
Tangófélagið stendur fyrir
tangódansleik, milongu, í
Gyllta salnum á Hótel Borg
í kvöld. Áður en ballið byrj-
ar fá þeir sem vilja tilsögn í
tangó svo að þeir séu betur
í stakk búnir að láta ljós sitt
skína á dansgólfinu.
„Við vorum með vorball á Borg-
inni fyrir nokkrum árum og núna
langar okkur að prófa hvernig
þetta gerir sig svona á fimmtu-
degi,“ sagði Þórdís Kristleifsdótt-
ir, sem hefur verið tangófélagi
og dansari í um það bil sex ár.
„Við erum mjög spennt,
þetta er svo fallegur salur
og mikil stemning,“ sagði
hún, en Tangófélagið
stendur einnig fyrir
hálfsmánaðarlegum
æfingakvöldum í Kram-
húsinu og miðvikudags-
böllum í Alþjóðahúsinu.
„Tilsögnin á að duga til að
fólk átti sig á tónlistinni og
fái innsýn í út á hvað
dansinn gengur,“ sagði
Þórdís. „Ég hef séð fólk
gera mjög skemmtilega
hluti á dansgólfinu eftir
klukkutíma kennslu.
Tangó snýst heldur ekki
um fyrirfram ákveðin
skref, heldur spuna
tveggja einstaklinga,“
sagði hún, en Þórdís
segir þennan spuna
vera einna mest heill-
andi við tangóinn. „Ég
er alveg ómöguleg í fyr-
irfram gefnum rút-
ínum,“ sagði hún og hló.
Það er ekki nauðsyn að
mæta með dansfélaga
upp á arminn á mílong-
una. „Á böllum er eigin-
lega ætlast til þess að
fólk bjóði upp fleirum en
bara dansfélaga sínum,“
sagði Þórdís. „Sumir
geta verið feimnir við
það til að byrja með, ef
að fólk er óöruggt og er að
byrja að dansa. Fólk kemst fljótt
að því hvað það er gaman að dansa
við aðra,“ bætti hún við. Þórdís
segir félagið leggja mikla áherslu
á að halda dansleiki. „Annars
getur fólk fests í því að vera alltaf
á námskeiðum. Ef maður notar
dansinn ekki neitt gleymir maður
dansinum og tekur hann kannski
fram einu sinni á ári.„ Tilsögnin
hefst klukkan átta á fimmtudags-
kvöld og dansleikurinn klukku-
stund síðar. Allar nánari upplýs-
ingar um starfsemi félagsins má
finna á heimasíðu þess, tango.is.
Tangódansleikur á Hótel Borg