Fréttablaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 102
Félagarnir Halli og Heiðar
úr rokksveitinni Botn-
leðju hafa gefið út barna-
plötuna Pollapönk. Þetta
er fyrsta barnaplatan
sem þeir gera í samein-
ingu en áður hafði
Halli gefið út plöt-
una Hallilúja þar sem hann naut aðstoðar
ýmissa tónlistarmanna, þar á meðal Heið-
ars.
Að sögn Halla var platan hluti af loka-
verkefni þeirra félaga við Kennarahá-
skóla Íslands en þaðan útskrifuðust þeir
sem leikskólakennarar í vor. „Við tókum
þetta eins og hvert annað verkefni. Við
hittumst á morgnana og byrjuðum að
semja lög sem við fullunnum svo í fram-
haldinu,“ segir Halli.
Þeir félagar voru í hálft ár að vinna
plötuna, auk þess sem þeir skiluðu líka
inn skýrslu um barnamenningu á Íslandi.
„Við tengdum þessa plötu bæði nám-
skeiðinu sem við vorum í og því sem við
höfðum lært í skólanum. Þetta var ótrú-
lega skemmtileg reynsla. Við erum vanir
að búa til lög á æfingum allir saman, spil-
andi á bassa, trommu og gítar í bölvuðum
hávaða en fyrir þessa plötu
vorum við bara saman með
kassagítarinn. Þetta var alveg
ný reynsla.“
Raggi, bassaleikari Botn-
leðju, spilar jafnframt á bassa á
plötunni og má því segja að Botn-
leðja eigi þarna ákveðna endur-
komu. „Botnleðja hefur legið í
dvala eins og björn í híði og
safnað forða. Við ætlum að
byrja æfa bráðum og semja
plötu og gera eitthvað skrít-
ið,“ segir Halli.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Mér leiddist á Íslandi enda er hér
kalt og dimmt meirihluta árs,“
segir hin 23 ára Monika Klonow-
ski. Erfitt er annað en að vera sam-
mála henni í kuldakastinu sem
ríður yfir landið þessa dagana.
Monika er nýkomin heim eftir að
hafa verið í tæp tvö ár á eyjunni
Roatan í Karíbahafinu þar sem
hún vinnur sem köfunarkennari.
„Þetta var nú ekki planið til að
byrja með. Ég fór sem skiptinemi
til Kosta Ríka í tvö ár þar sem við
heimsóttum þessa eyju. Þetta er
fallegasti staður sem ég hef farið
á, hvítar strendur og grænblár
sjór,“ segir Monika en eftir að hún
kláraði spænskunám sitt í Kosta
Ríka átti hún tvo mánuði aflögu
áður en farmiði hennar til Íslands
tók gildi. „Þannig að ég skellti mér
bara í köfunarnám á Roatan sem
er ódýrasti staður í heimi til að
kafa á.“
Eftir það var Monika komin
með kafarabakteríuna, hún henti
flugmiða sínum til Íslands og
ákvað að setjast að í Karíbahafinu.
Hún er komin hingað heim núna
en ætlar að flytja alfarið út eftir
áramót enda komin með innfædd-
an upp á arminn og því verður ekki
aftur snúið.
Það sem heillaði Moniku við
þessa eyju voru ekki bara hvítu
strendurnar, sjórinn og veðrið sem
ávallt er gott heldur líka það að
þar er svo ódýrt að lifa. „Ég leigi
hús við ströndina á rúmar 17.000
íslenskar krónur á mánuði sem er
með rafmagni og hita,“ segir Mon-
ika en húsið hennar er lítið einbýl-
ishús.
Margt hefur á daga Moniku
drifið síðan hún byrjaði að búa á
eyjunni og varð hún meðal annars
fyrir þeirri ólukku að fá malaríu.
„Ég hélt að ég væri að deyja, Þetta
er það versta sem ég upplifað,“
segir Monika en fjölskylda og
vinir voru áhyggjufullir á Íslandi
þar sem Monika leyfir þeim að
fylgjast með sér gegnum blogg-
síðu sína þar sem símasamband er
ekki upp á marga fiska á eyjunni.
,„Ég gat ekki bloggað í viku og for-
eldrar mínir því orðnir frekar
áhyggjufullir.“
Monika er pólsk að uppruna en
er eini meðlimur fjölskyldu sinnar
sem er fæddur á Íslandi. Fjöl-
skyldan hennar var með fyrstu
pólsku innflytjendum á Íslandi.
„Ég er mjög ánægð þarna úti og tel
mig hafa fundið mína paradís á
jörðu. Lífið er svo rólegt og þægi-
legt þar, ekki svona mikið stress
eins og hér á Íslandi,“ segir þessi
ungi ferðalangur að lokum.
Flökkukindin Jón Sigurður Eyj-
ólfsson hélt á vit ævintýranna
fyrir skömmu og fluttist til smá-
bæjarins Carbonero sem er á
spænsku hásléttunni en hann á
þar spænska dóttur. Þar sinnir Jón
einkakennslu í ensku fyrir fyrir-
tæki og einstaklinga en á milli
kennslustunda leyfir hann íbúum
bæjarins að njóta tónlistarsmekks
síns á útvarpsstöð bæjarins, Car-
bonero Radio. „Ég vissi nú bara af
þessari útvarpsstöð og vildi láta
til mín taka,“ svarar Jón Sigurður
þegar hann er spurður hvernig
standi á því að hann stjórni
útvarpsþætti í smábæ. „Þátturinn
heitir Strengjað vegabréf en í
hverri viku tek ég fyrir eitt land
og spila tónlist frá því,“ segir Jón
Sigurður sem leggur mikinn metn-
að í útvarpsþáttinn, hefur spilað
lög frá Grikklandi og ætlar í næstu
viku að taka á móti búlgörskum og
rúmenskum íbúum bæjarins og fá
þá til að segja frá landi og þjóð.
Íslandi hefur að sjálfsögðu
verið gert hátt undir höfði og tók
útvarpsmaðurinn meðal annars
fyrir gamla heimabæinn sinn
Bíldudal. „Ég sagði frá gömlum
prakkarastrikum mínum þar,
kynnti Jón Kr. Eyjólfsson og spil-
aði tónlist eftir sveitunga mína,“
útskýrir Jón og bætir við að hann
ætli að taka Bubba Morthens fyrir
í næsta þætti. „Íbúunum fannst
þetta stórmerkilegt enda hafa
margir hverjir ekki einu sinni séð
sjóinn,“ útskýrir Jón.
Stjórnar þætti í spænsku sveitaútvarpi
Gerðu barnaplötu sem lokaverkefni
…fær Pétur H. Ármannsson sem
flytur erindi um ævistarf Einars
Sveinssonar arkitekts á
aldarafmæli hans og sér þar
með til þess að merkt framlag
Einars til byggingarlistar
gleymist ekki.
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Öll verð miðast við að tveir séu saman í herbergi.
Tottenham–Wigan
58.900 kr.24.–27. nóv.
27.–29. nóv.
George Michael
69.900 kr.
Berlín í jólaundirbúningi
51.900 kr.24.–27. nóv.
Aðventuferð til Trier
59.900 kr.8.–11. des.
Sheraton Real de Faula
Verð frá 59.180 kr.Valfrjálst
Arsenal–Man. City
54.900 kr.30.–31. jan.
Chelsea–Arsenal
69.900 kr.9.–11. des.
Arsenal–Portsmouth
59.900 kr.15.–17. des.
Óli Palli og The Pogues
59.900 kr.16.–18. des.
Liverpool–Everton
84.900 kr.2.–4. feb.
Hvernig væri nú að skella sér á leik Arsenal
og Manchester City á Emirates Stadium,
flottasta leikvelli í Englandi og sjá auðvitað
flottan fótboltaleik í leiðinni. Innifalið: Flug
með sköttum, hótel í eina nótt með
morgunverði og miði á leikinn.
George Michael er í mikilli tónleikaferð um
þessar mundir og í lok nóvember verður hann
í London. Michael mun spila öll sín
vinsælustu lög á tónleikunum – og er af nógu
að taka! Innifalið: Innifalið: Flug með sköttum,
hótel í 2 nætur og miði á tónleikana.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI