Fréttablaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 78
Í sumar ákváðum við
maðurinn minn að gera
endurbætur á aldargömlu
húsinu okkar. Það reynd-
ist ekki seinna vænna þar
sem í ljós kom að húsið lá
undir skemmdum á nokkr-
um stöðum. Svo var ákveðið
að gera nokkrar breytingar á því í
fegrunarskyni. Við hefðum kannski
látið það ógert hefði okkur órað fyrir
hversu mikla vinnu það myndi kosta.
Með hverjum deginum sem leið
líktist húsið minna draumahúsinu
okkar þvert gegn öllum væntingum
og í raun meira eins og stór sprengja
hefði lent ofan á því. Þar sem ég lá
uppi í rúmi eitt kvöldið, umvafinn
plasthengjum sem höfðu verið sett
upp til varnar ryki og drullu, varð
mér hugsað til geimálfsins E.T. sem
var næstum því dreginn til dauða af
framandi og fjandsamlegum aðstæð-
um hér á jörðinni. „E.T. go home,“
kjökraði ég.
Næsta dag var samband haft við
móðurskipið til að grenja út vist. Ekki
stóð á því og við félagarnir fengum að
hreiðra okkur um í gamla herberginu
mínu, sem vel á minnst hefur verið
haldið nánast óbreyttu síðan ég flutti
út fyrir níu árum, eins og verið sé að
halda minningu einhvers látins á
lofti.
Kostirnir við að snúa aftur í for-
eldrahús eru margir. Helsti gallinn er
þó sá að engu líkara er en hjól tímans
snúist aftur á bak og gömul sam-
skiptamynstur glæðist nýju lífi.
Fyrsta vísbendingin um það var nokk-
uð táknræn, eða þegar gamli dimmit-
er-búningurinn minn datt ofan úr hillu
á mig fyrsta kvöldið, eins og draugur
aftur úr grárri forneskju. Svo byrj-
uðu þriðju gráða yfirheyrslurnar:
Hvert ertu að fara, hvenær kemurðu
heim? o.s.frv.
Í fyrstu pirraði þetta mig. Svo
hætti ég bara að ergja mig á þessu,
enda ekki eins og ég búi við slæm kjör.
Hjá foreldrum mínum er hugsað ofsa-
lega vel um okkur. Það er meira að
segja hugsað fyrir okkur. Er þá ekki
betra að tilheyra einhverri samvitund
eins og Borgverjarnir í Star Trek held-
ur en að vera geimálfur á banabeðin-
um? Við ykkur sem búið við þessar
aðstæður vil ég því gefa það heilræði
að sætta ykkur bara við ástandið. And-
spyrna er hvort eð er gagnslaus.
V
in
n
in
g
ar
v
er
ða
a
fh
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í
SM
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
ti
ð.
Sendu SMS BTC PCV á númerið
1900 og þú gætir unnið!
Aðalvinningur er
DVD spilari + Pirates of the Caribbean
Vinningar eru Pirates of the Caribbean,
tölvuleikir, DVD myndir og margt fleira
9. hver
vinnur!
LENDIR16.11.06 Í BT