Fréttablaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 26
fréttir og fróðleikur Japanar stórauka sóknina í ár Siðrænir húmanistar Þú verslar á netinu Við hraðsendum postalconnections.com/199 postalconnections.com/199 Um 200.000 skráðir með- limir franska Sósíalista- flokksins ganga í dag að kjörborðinu til að velja frambjóðanda flokksins í forsetakosningunum í vor. Á lokaspretti baráttunnar milli keppinautanna þriggja hristu þeir af sér einingar- haminn og fóru að beina spjótum hver að öðrum. Segolene Royal, sem notið hefur mikils fylgisforskots í skoðana- könnunum, sakaði karlkyns keppi- nauta sína um karlrembu. Stuðn- ingsmenn Laurents Fabius, fyrrverandi forsætisráðherra og aldursforsetans í keppinautahópn- um, vöruðu við hugsanlegu kosn- ingasvindli. Og sterkur orðrómur komst á kreik um að þriðji keppi- nauturinn, Dominique Strauss- Kahn, hefði staðið á bak við að myndbandsupptaka af Royal á lok- uðum fundi í janúar gengur nú manna á milli í netheimum. Það lítur út fyrir að klofningur í röðum Sósíalistaflokksins, aðal- stjórnarandstöðuafls landsins, fari vaxandi nú þegar styttist í forsetakosningarnar í apríl. Flokkurinn hefur átt í forystu- vanda alveg síðan Lionel Jospin, þáverandi forsætisráðherra, féll illa í forsetakosningunum fyrir fjórum árum. Endurtaki þær inn- anflokksdeilur sig, sem settu mark sitt á flokkinn þá, er hætt við að eins fari fyrir frambjóð- anda flokksins að þessu sinni. Frambjóðendurnir þrír reyndu að halda í ásýnd innanflokksein- ingar í þeim sex skipulögðu kapp- ræðum sem flokkurinn stóð fyrir. Sú gagnkvæma kurteisi sem þar var allsráðandi virtist gleymd á endaspretti baráttunnar síðustu daga. Á mánudagskvöld réðst Royal gegn þeim sem hafa haldið því fram að hún hafi veigrað sér við að tjá sig um viss veigamikil mál. Andstæðingar Royal hafa viljað halda því fram að hún hafi of litla reynslu af ríkisstjórnarábyrgð til að vera treyst fyrir því að stjórna þungavigtarríki sem ræður yfir kjarnorkuvopnum. Slíkum aðdróttunum hefur Royal svarað með því að segja að þessir gagn- rýnendur hennar hafi „frekar karlrembulega hugmynd um vald- ið, sem felst í því að álíta að það að víkja sé að tapa manndómin- um“. „Ég væri fær um að aðlaga mig án þess að tapa manndómn- um,“ tjáði hún stuðningsmönnum á kosningafundi í París. Hún lýsti því hvernig hún hefði sem umhverfisráðherra farið á fund Strauss-Kahn árið 1992, þegar hann var iðnaðarráðherra í sömu stjórn, með tillögur um umhverfismál í kjölfar alþjóðlegs leiðtogafundar um umhverfismál. Hann hefði þá svarað: „Þetta er allt efni fyrir stelpur, það er ekki mikilvægt.“ Hún ávítti karlkeppinauta sína fyrir fleiri karlrembuummæli. Eftir Fabius er haft að hann hafi spurt: „En hver annast þá um börnin?“ eftir að framboð hennar kom til tals, en hún er fjögurra barna móðir og býr með Francois Hollande, formanni flokksins. Og Strauss-Kahn er sagður hafa sagt: „Henni væri nær að vera heima.“ Í lok síðustu viku færðist slag- urinn síðan inn á netið, er mynd- band skaut þar upp kollinum, þar sem Royal sést tala á lokuðum fundi í janúar síðastliðnum. Í upp- tökubútnum heyrist hún segja að það ætti að tvöfalda vinnutíma kennara, en kennarar eru hefð- bundið kjarnafylgi sósíalista. Royal segir sjálf að ummælin séu rifin úr samhengi. Í frönsku pressunni er líkum leitt að því að stuðningsmenn Strauss-Kahn standi á bak við dreifingu myndbandsbútsins, en hann skaut upp kollinum daginn eftir að síðustu skipulögðu kapp- ræðunum lauk, en Strauss-Kahn þótti ekki koma vel út úr þeim. Fabius og Strauss-Kahn hafa beint spjótum sínum fyrst og fremst að Royal, enda hafa vinsældir hennar meðal almennings og viðhorf sem stangast á við hina hefðbundnu flokkslínu valdið kurr í röðum „flokkseigendafélagsins“. Liðsmenn Fabius hafa líka varað við kosningasvikum. Þeir neituðu að viðurkenna félagatal úr einni héraðsdeild flokksins og létu að því liggja að falsaðir listar kæmu Royal til góða. En þótt allar skoðanakannanir sýni mikið fylgisforskot Royal á landsvísu – hún fékk 58% fylgi í könnun Ifop sem gerð var um helgina meðal stuðningsmanna sósíalistaflokksins, Strauss-Kahn 32 prósent og Fabius 10 prósent – gera forvalsreglur flokksins það að verkum að erfitt er að spá fyrir um úrslitin. Það eru aðeins skráðir meðlimir flokksins, um það bil 200.000 að tölu, sem hafa rétt til að greiða atkvæði, en sérfræðingar segja að þessi flokksholli kjarni sé hliðhollari Fabius og andstæðari Royal en franskur almenningur. Sá sem ber sigur úr býtum mun eiga harðan slag fyrir höndum við aðalframbjóðanda hægrimanna, en flestir búast við að það verði innanríkisráðherrann Nicolas Sar- kozy, jafnvel þótt eiginkona Jacqu- es Chiracs, núverandi forseta, hafi látið þau boð út berast í gær að karl sinn væri „stálsleginn“ og enn að íhuga að sækjast eftir end- urkjöri, þriðja kjörtímabilið í röð. Einingarhamurinn hristur af Þau keppa um útnefninguna Ségolène Royal, 53 ára: Dominique Strauss-Kahn, 57 ára: Styður ókeypis heilbrigðisþjónustu þar til skylduskólagöngu sleppir Styður lögleiðingu hjónabands samkyn- hneigðra og rétt samkynhneigðra para til ættleiðinga Laurent Fabius, 60 ára: Barðist gegn samþykkt stjórnarskrársáttmála ESB í þjóðaratkvæða- greiðslunni 2005; er andvígur aðild Tyrklands Kennir umdeildri löggjöf um 35 stunda vinnuviku um að rétt- indum verst settu laun- þeganna hefur hrakað 58 % * 32 % 9%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.